blaðið - 01.07.2006, Síða 4
4IFRÉTTIR
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 blaóiö
Ferðamönnum í maí hefur fjölgað um
70% á aðeins fjórum árum.
Ferðamönnum
fjölgar
Rúmlega þrjátíu og eitt þúsund er-
lendir ferðamenn heimsóttu ísland
í maí síðastliðnum, samkvæmt taln-
ingu Ferðamálastofu í Leifsstöð,
sem er aukning um 12,5% miðað við
sama mánuð í fyrra. Þetta kemur
fram í tölum sem Ferðamálastofa
sendi frá sér í gær. Þar kemur enn-
fremur fram að þar með sé fjöldi
erlendra ferðamanna frá áramótum
kominn í 104.500 sem sé fjölgun um
tæp 8% milli ára.
„Bandaríkjamenn voru fjölmenn-
astir í maí og þeim fjölgar einnig
verulega á milli ára, eða um tæp
13%. Bretar koma þar skammt á eftir,
rétt tæplega 5.000 ferðamenn, og
fjölgar þeim mest í maí, eða um 950
manns. Það sem af er ári er aukning
frá öllum helstu markaðssvæðum,
mest frá N-Ameríku. Þá er einnig
athyglisvert að gestum frá löndum
sem eru utan hinna hefðbundnu
markaðssvæða íslands fer fjölg-
andi,“ segir um málið á heimasíðu
Ferðamálastofu í gær.
Mikil fjölgun síðustu árin
Ferðamönnum í maímánuði hefur
fjölgað verulega síðustu ár. Þannig
hefur orðið um 70% fjölgun á að-
eins fjórum árum, og nú heimsækja
jafn margir ferðamenn ísland í maí
og komu hingað í júní fyrir fjórum
árum.
Spennan á Gaza kann að setja
áætlanir Olmerts í uppnám
Átökin á milli Israelsmanna og Pal-
estínumanna á Gaza-svæðinu und-
anfarna daga vekja upp efasemdir
meðal margra um hvort áætlanir
israelskra stjórnvalda um að leggja
niður landnemabyggðir á Vestur-
bakkanum muni skila tilætluðum
árangri.
Helsta stefnumál ríkisstjórnar
Ehuds Olmerts, forsætisráðherra
Israels, er að leggja niður landnema-
byggðir á Vesturbakkanum og draga
endanleg landamæri Israelsríkis
fyrir lok þessa áratugar. Áætl-
unin er sett fram til þess
að tryggja öryggi ísraels
og minnka spennuna í sam-
skiptum við Palestínumenn.
Atburðir liðinna daga
kunna að gera for-
sætisráðherranum
erfiðara um vik
að afla fylgis
meðal kjós-
enda við
áætlunina.
F y r i r
tæpuáriyf-
irgáfu fsra-
elsmenn
landnema-
byggðir
sínar á Gaza-
svæðinu og
þáverandi for-
sætisráðherra,
Ariel Sharon,
færði svipuð rök
fyrir þeirri ákvörðun
og þau sem eru sett fram
fyrir nauðsyn þess að leggja
niður landnemabyggðir á Vestur-
bakkanum. I grein í bandaríska
dagblaðinu Washington Post er
þeirri skoðun haldið fram að Palest-
inumenn hafi ekki nýtt sér þau tæki-
færi til uppbyggingar sem mynduð-
ust við brotthvarf Israelsmanna frá
Gaza-svæðinu. I stað þess hafi stjórn-
leysi aukist og ástandið versnað til
muna, ekki síst eftir að Hamas-sam-
tökin tóku við ríkisstjórn landsins.
I kjölfar þessa stjórnleysis hafi
meðal annars palestínskir vígamenn
fengið óáreittir að gera eldflauga-
árásir á Israel og nú um helgina farið
yfir landamærin, drepið tvo her-
menn og rænt þeim þriðja. Afleiðing-
arnar eru þær að ísraelsk stjórnvöld
sendu her-
sveitir
sínar
Stórskotaliðsmenn í ísraelska hernum gerðu árásir á Gaza-svæðið frá (srael í gær. Reuien
G a z a -
s v æ ð - isins og handtóku
ráðherra Hamas-samtakanna og fjöl-
marga þingmenn þeirra. Spennan
á svæðinu fer vaxandi með degi
hverjum og óttast er að allsherjar-
stríð geti brotist út.
Bent er á í greininni í Wash-
ington Post að brotthvarf
Israelsmanna frá Gaza var
smátt í sniðum miðað við
umfang þess að leggja
niður stóra hluta land-
nemabyggðar á Vestur-
bakkanum. Um átta
þúsund ísraelskir land-
nemar bjuggu í Gaza en
samkvæmt áætlun Olm-
erts munu um 70 þúsund
ísraelar þurfa að hverfa
frá byggðum sínum á Vest-
urbakkanum. Bent er á að
frá þessum byggðum dragi
eldflaugar vígamanna að þétt-
býliskjörnum í Israel.
Styrkist staða Olmerts?
Ehud Olmert hefur ekki tjáð sig
um framtíð áætlunar sinnar siðan
átökin á milli Israelsmanna og Pal-
estínu brutust út í vikunni. En Wash-
ington Post hefur eftir Otniel Shiller
þingmanni, nánum samverkamanni
Olmerts og einum af hugmyndafræð-
ingum áætlunar forsætisráðherrans
um fyrirhugað brotthvarf frá Vest-
urbakkanum, að stjórnvöld verði
að hugsa stefnuna upp á nýtt haldi
átökin áfram. Þrátt fyrir það er ekki
víst að ástandið veikji stöðu Olm-
erts. Sumir stjórnmálaskýrendur
telja að áframhaldandi spenna
muni auka skilning annarra ríkja
á öðru stefnumáli forsætisráðherr-
ans: Að draga endanleg landamæri
ísraels fyrir árið 2010. Hann hefur
lýst sig reiðubúinn að draga þessi
landamæri einhliða án viðræðna
við Palestínumenn. Deilurnar og
stjórnleysið á heimastjórnasvæðinu
gera að verkum að Israelsmenn telja
í auknum mæli að engar viðræður
geti farið fram þar sem enginn er til
þess að ræða við og það kann að efla
stuðning við áætlun Olmerts.
Skorar á ráðamenn
að huga að Þorláks-
höfn vegna Herjólfs
Herjólfur mun fara frá Þorlákshöfn
þar sem hann hefur verið í tugi ára
til nýrrar hafnar sem fyrirhugað er
að byggja í Bakkafjöru ef fyrirliggj-
andi tillögur ná fram að ganga. Brott-
för skipsins mun hafa allnokkurn
tekjumissi í för með sér fyrir bæjar-
félagið. Bæjarstjóri Ölfusar, Ólafur
Áki Ragnarsson, segir að Þorláks-
höfn hafi algerlega gleymst í þessari
umræðu og vill að ráðamenn beini
augum sínum að afleiðingunum ef
siglingar Herjólfs frá Þorlákshöfn
leggjast af.
„Það er ljóst að fari Herjólfur mun
það hafa í för með sér tekjumissi
fyrir bæinn,“ segir Ólafur Áki en
málið er nokkuð umdeilt á meðal
íbúa á Suðurlandi. Ástæðan fyrir
nýrri höfn er sögð sú að bæta þurfi
samgöngur til Vestmannaeyja sem
þykja hafa verið í óviðunandi horfi
síðastliðin ár.
Ólafur Áki segir að hann fagni
öllum breytingum sem verði til þess
að samgöngur batni til Vestmanna-
eyja. Hann bætir við að hugsanlega
sé það betri möguleiki að efla höfn-
ina í Þorlákshöfn og fá einnig betra
skip frekar en að byggja nýja höfn
annars staðar.
Ólafur segir að þeir sem kunn-
ugir eru staðarháttum telji að höfn í
Bakkafjöru sé ekki góður kostur.
„Ég skora á alþingismenn að skoða
ennan kost betur,“ segir Ólafur
ki og bætir við að vonandi finnist
skynsamleg lausn í þessu máli.
„Lögleysa að fresta
framkvæmdum"
Jón Bjarnason, þingmaður VG, segir niðurskurð í
samgöngumálum til að slá á þenslu alltof oft bitna
á íbúum Vestfjarða og Norðausturkjördæmis.
Eftir Atla fsleifsson
„Að slá á efna-
hagsþenslu
með því að
skera niður
í vegafram-
k v æ m d u m
á þessum
svæðum sýnir
veruleikafirr-
ingu þessarar
ríkisstjórnar,“
segir Jón BjarnaJón Bjarnason
son, þingmaður
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs. Hann segir ákvörðun rík-
isstjórnarinnar um að fresta vega-
framkvæmdum á Vestfjörðum og í
Norðausturkjördæmi vera lögleysu.
Jón hefur óskað eftir því við
Sturlu Böðvarsson, samgönguráð-
herra og fyrsta þingmann Norð-
vesturkjördæmisins, að hann kalli
saman fund stjórnenda Vegagerðar-
innar og þingmanna kjördæmisins
til að fjalla um framkvæmd sam-
gönguáætlunar, stöðu einstakra
framkvæmda og ráðstöfun fjár til
vegaframkvæmda i Norðausturkjör-
dæmi í ár og á næsta ári.
Jón segir að ríkisstjórnin Iáti þessi
kjördæmi æ ofan í æ taka á sig nið-
urskurð í samgöngumálum til að
slá á þenslu. „Ef menn ætla sér að
slá á þenslu, sem vissulega þarf að
gera, þá ætti að stöðva allar frekari
stóriðjuframkvæmdir. Þar eru stóru
upphæðirnar og stóru mistökin gerð.
Brjálæðisleg stóriðjustefna setur
efnahagslífið á hliðina með þessum
hætti, fyrst Kárahnjúkavirkjun og
svo hömulaust framhald hennar.
Þar ætti að setja stopp, en ekki á ein-
hverja vegarspotta á Vestfjörðum."
Lögleysa
Að sögn Jóns er búið að fresta stór-
framkvæmd við Mjóafjörð í ísafjarð-
ardjúpi, framkvæmd í Hrútafirði,
undirbúning að vegi um Arnkötlu-
dal, sem átti að vera tilbúin til
útboðs í haust, auk fleiri smærri
verka. „Þetta er til viðbótar niður-
skurði sem þegar var búið að beita,
en þegar var búið að skera niður um
tvo milljarða á vegaframkvæmdum
í landinu í ár og í fyrra.“
Jón segir Alþingi samþykkja fjár-
lög, og þar af leiðandi framlög til
vegaáætlunar. „Þingmenn hvers
kjördæmis koma saman og fara yfir
þau verkefni sem á döfinni eru, í við-
komandi kjördæmi. Þeir taka einnig
fyrir forgangsröðun þeirra og tíma-
setningar. Þessum ákvörðunum er
ekki hægt að breyta með þessum
hætti sem ríkisstjórnin er búin að
gera. Alþingi tók þessar ákvarðanir
og Alþingi verður að breyta þeim.
Þetta er í sjálfu sér lögleysa,“ segir
Jón.
atlii@bladid.net
Morgunblaðið
flytur í
Hádegismóa
mbl.is | Flutningar í nýtt húsnæði
Morgunblaðsins að Hádegis-
móum 2 við Rauðavatn hafa
staðið yfir undanfarna viku
og verður um helmingur starfs-
manna fluttur í nýtt húsnæði í
dag. Stefnt er að því að seinustu
starfsmennirnir flytji þann 9.
júli. Alls starfa um 250 manns
á blaðinu og því um umfangs-
mikla flutninga að ræða. Fram-
kvæmdir við hið nýja húsnæði
standa enn yfir og þá einkum á
neðri hæðinni, en andinn þykir
góður í hinu nýja húsnæði og um-
hverfið einkar fagurt.
Aðstoðar
iðnaðarráðherra
Arnar Þór Sævarsson, hdl., hefur
verið ráðinn aðstoðarmaður Jóns
Sigurðssonar,
iðnaðar- og við-
skiptaráðherra.
„Arnar Þór er 34
ára og starfaði
áður hjá Fjár-
málaeftirlitinu
frá árinu 1999 ZTríór
til 2001 og hjá Sævarsson
Símanum frá
1. janúar 2002 til 30. júní 2006.
Arnar Þór útskrifaðist frá Há-
skóla íslands árið 1999, öðlaðist
héraðsdómslögmannaréttindi
árið 2000 og lauk prófi í verð-
bréfaviðskiptum árið 2001,“ segir
í tilkynningu frá ráðuneytinu.