blaðið - 01.07.2006, Blaðsíða 35
blaöiö LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006
l 35
Draumalandið
Sjálfshjálparbók
Metsölulistinn - erlendar bækur
Metsölulistinn - allar bækur
1. Predator 1. Draumalandið: Sjálfshjálparbók...
Patricia Comwell Andri Snær Magnason
2. TheTravel Book 2. (slenska vegahandbókin
Lonely Planet Vegahandbókin ehf.
3. Fourthof July 3. Flugdrekahlauparinn - kilja
James Patterson Khaled Hosseini
4. The Devil's Feather 4. Skuggi vindsins
Minette Walters Carlos Ruiz Zafón
5. EndinTears 5. Vetrarborgin
Ruth Rendel Arnaldur Indriðason
6. UntillFindYou John Irving 6. 4. júli James Patterson
7. TheCamel Club 7. Lostin lceland
David Baldacci Sigurgeir Sigurjónsson
0 TheEarthFromthe Air 0 Munkurinn sem seldi sportbílinn sinn
ö. útg. Thames & Hudson 0. Robin Sharman
9. FireSale 9. Billog bakpoki
Sara Paretsky Páll Ásgeir Ásgeirsson
10. Deception Point 10. Ferðahandbók fjölskyldunnar
Dan Brown Bjarnheiður Halldórsdóttir og Tómas Guðmundsson
Listinn er gerður út frá sölu dagana 21.06.06 - 27.06.06
Bókabúðum Máls og menningar, Eymundsson og Penn-
anum
listinn et gerður út ftá sölu dagana 21.06.06 - 27.06.06
Bókabúðum Máls og menningar, Eymundsson og Penn-
anum
Ævintýrasaga frá Winterson
Winterson er guðmóðir eldri dóttur-
innar, Eleanor, og borgar fyrir hana
skólagjöld í einkaskóla. Stúlkurnar
dvelja hjá henni um helgar og vin-
áttan þarna á milli er sterk og mikil.
Tanglewreck er ævintýrabók sem
fjallar um tímaflakk og vonda en
fallega konu sem stefnir að heims-
yfirráðum. Hetjan í bókinni er ell-
efu ára gömul munaðarlaus stúlka
sem heitir Silver. Winterson og
hinar ungu vinkonur hennar sköp-
uðu fyrst persónurnar og aðalsögu-
þráðinn og Winterson settist síðan
niður og skrifaði bókina sem hún
segir að hefði aldrei orðið til nema
vegna hugmyndaríkis stúlknanna
tveggja. Winterson segir að Eleanor
hafi gefið bókinni einkunnina 8.5
og ekki viljað gefa henni tíu þar sem
Winterson lét vonda persónu í bók
inni sjá að sér í stað þess að skapa
henni ill endalok. Eleanor segist nú
hafa skipt um skoðun og vill gefa
bókinni 9.5.
Winterson sem er lesbísk á ekki
börn og segist aldrei hafa fundið
hjá sér þörf til að vera móðir. „Ef ég
hefði átt börn hefði ég einbeitt mér
að þeim og ekki getað skrifað," segir
hún. „Þetta fyrirkomulag hentar
mér ágætlega. Ég hef stelpurnar
hjá mér um helgar og við eigum frá-
bærar stundir saman, svo skila ég
þeim til foreldranna og sný aftur til
hins lífsins míns.“
Breska skáldkonan, Jeanette Winter-
son, er íslenskum bókaunnendum
að góðu kunn en bækur hennar
Kynjaber og Ástríðan hafa komið
út í íslenskri þýðingu. Nú hefur hún
sent frá sér nýja bók, Tanglewreck,
sem hún skrifaði með aðstoð tveggja
ungra vina, systranna Eleanor tíu
ára og Cöru sjö ára. Systurnar eru
dætur bestu vinkonu Wintersons
frá skólaárum hennar i Oxford.
Jeanette Winterson. Hefur skrifað
ævintýrabók meö aðstoð tveggja ungra
vinstúlkna sinna.
Lýrísk myndlist
í dag verður opnuð í Listasafni ASÍ
við Freyjugötu samsýningin Akvar-
ell. Þar sýna Daði Guðbjörnsson,
Eiríkur Smith, Hafsteinn Aust-
mann og Kristín Þorkelsdóttir verk
sín og auk þess eru sýnd verk eftir
Svavar Guðnason sem eru í eigu
Listasafnsins.
„Ég sýni vatnslitamy ndir, akvarellur.
Verkin eru öll unnin í vetur og eru af
hafinu með öllum sínum
táknum. Þetta er hafið í
okkur, hafið í kringum
okkur og mannhafið,"
segir Daði Guðbjörnsson
en hann er langyngstur
listamannanna. „Já, ég
er litla barnið í hópnum,“
segir hann. „Ég man ekki
nákvæmlega hvernig hóp-
urinn varð til, kannski var
það fyrst í spjalli hjá okkur
Hafsteini Áustmann á
Mokka. Við sitjum þar oft í
hádeginu og slæpumst eins
og alvöru listamenn. Hann
er fyrsti myndlistarkennarinn minn,
kenndi mér í barnaskóla. Hann hefur
sjálfsagt verið hvetjandi kennari, alla-
vega gerði hann ekki neitt vitlaust að
mínu áliti því ég fór út í myndlist.“
Þegar Daði er spurður hvort þarna
séu ólíkir listamenn að sýna segir
hann: „Ég, Kristín og Hafsteinn
erum lýrískir myndlistarmenn og Ei-
ríkur er það í rauninni líka þegar sá
gállinn er á honum. Salurinn er því
samstæður og fínn og mjög lýrískur.
Það er kannski skrýtið að sjá þessi
nöfn saman en þegar maður sér sýn-
inguna þá virðist þessi samsetning
rökrétt, þótt ég sé annars ekki hrifinn
af neinu sem er rökrétt.“
Á íslenska safnadaginn 9. júlí kl. 15
rnunu nokkrir listamannanna taka á
móti gestum og spjalla um verk sin.
,Þegar ég var í Mynd-
listar- og handíðaskól-
anum heyrði ég oft sagt
að menn ættu ekki að
vera að tala svo mikið
um verk sín,“ segir
Daði. „Ég fer milliveg,
tala um verkin en reyni
að segja ekki of mikið.
Stundum getur maður
alls elcki talað um þau,
ég veit ekki af hverju
það er. Það er einhver
mystík í myndlistinni
sem maður getur ekki
útskýrt. Það eyðileggur
ekki neitt að tala um verkin en ég vil
helst að verk mín séu þannig að það
sé hægt að upplifa þau án þess að vita
neitt um mig eða þau.“
Daði Guðbjörnsson.„Ég vil helst að verk
mín séu þannig að það sé hægt að upplifa
þau án þess að vita neitt um mig eða þau."
99............
Þegar égvarí
Myndlistar- og
handíðaskól-
anum heyrði
ég oft sagt að
menn ættu
ekki að vera að
tala svo mikið
um verksín