blaðið - 01.07.2006, Side 25
blaðið LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006
ÝMISLEGT I 25
Krabbi
(22. júní-22. júlO
Krabbinn
Þetta viðkvæma fólk hefur auðugt
ímyndunarafl en er hætt við að
framkvæma án þess að hugsa málið
til enda. Þú getur komist að eðli
Krabbans með því að fylgjast með
tunglinu. Breytilegt skapferli Krabb-
ans fylgir breytingum tunglsins á
sama hátt og flóð og fjara.
Krabbinn þráir ekki athygli eins
og Ljónið og hinir óútreiknanlegu
Bogmenn. En undir niðri hefur
þetta fólk gaman af jákvæðri athygli.
Það á það til að hlaupa í felur ef því
finnst að það sé verið að skjalla sig.
Ef þú ert í mannþröng getur þú þekkt
þetta fólk frá öðrum. Það hlær smit-
andi hlátri á miklu tónsviði þegar
það skemmtir sér og þá er Krabbinn
hrókur alls fagnaðar.
Þetta fólk getur orðið ólýsanlega
þunglynt. Krabbinn reynir þá að
fela líðan sína undir óþrjótandi
skopskyni sínu. Draumsýn er Krabb-
anum eins sjálfsögð og loftið sem
hann andar að sér. ímyndunaraflið
er óbeislað og stundum verður hann
hræddur við það enda getur það
skaðað ef ekki er haldið aftur af
því. Þetta fólk er oftast fallegt og
hjartahlýtt.
KARLMAÐURf KRABBA
Hann er sérfræðingur i málaleng-
ingum. Láttu þér ekki detta í hug að
hann opni þér dyr að leyndardómum
sálar sinnar strax. Þessi maður trúir
ekki ókunnugu fólki fyrir sinum
málurn og dregur sig í hlé. Ef hann
er ekki í góðu skapi þegar þú hittir
hann fyrst máttu ekki taka því sem
gefnu að hann hafi ekki áhuga fyrir
þér. Reyndu aftur.
Fullt tungl getur haft furðuleg
áhrif á Krabbann og það verður að
segjast að hann er ekki eins róman-
tískur og margir halda. Hann langar
til að verða ríkur og geta gefið þér og
börnunum ykkar allt sem hugurinn
girnist. Þar skiptast þessir menn í
tvo hópa. Annar hópurinn þolir
ekki að skulda og borgar alla reikn-
inga á gjalddaga. Hinn hópurinn eru
þeir Krabbar sem hafa spennt bog-
ann of hátt og komið sér í skuldir
sem þeir sjá ekki út úr. Þá hopa þeir
inn í skel sína og láta hverjum degi
nægja sína þjáningu. Þó verða þessir
menn oftast hagsýnir eftir miðjan
aldur og tekst þá að ná tökum á
fjármálunum.
KONAí KRABBA
Það er erfitt að átta sig á þessari
konu, stundum kemur hún fyrir
eins og villingur en þegar þú kynn-
ist henni betur sérðu að hún setur
prúðmennskuna ofar öllu.
Tunglið á sterk ítök í Krabbakon-
unni og hennar villtustu draumar
rætast þegar tunglið er næst jörðu.
Það leiðist ekki neinum sem er ná-
lægt henni.
Hún er einstök móðir og góð eigin-
kona. Kona í Krabbamerkinu er fag-
urkeri og veisluborð hennar eru eft-
irminnileg vegna glæsileika. Hún á
það til að fá eyðslukast, sérstaklega
ef henni finnst að sér vegið. Krabba-
konan hefur sveiflukennda lund,
hún getur orðið óskaplega sormædd
ef veðrið er vont. Um leið og sólin
skín léttist lundin. Ef þú ert giftur
konu í þessu merki er þér ráðlegra
að vera góður við foreldra hennar,
sama hvað þeir eru leiðinlegir. Hún
ein má segja sitt álit á þeim. Mundu
það.
ÞEKKT FÓLK í KRABBAMERKINU
• Helen Keller
• Júlíus Caesar
• Ernst Hemingway
• Karvel Pálmason
• Svavar Gestsson
• Sigurlaug Bjarnadóttir
Áhrifastjörnur þessa merkis eru:
Tunglið, Marz og Merkúr.
Happadagar:
Mánudagar og miðvikudagar.
Happalitir:
Silfurgrátt og grænt.
Heillasteinar:
Rúbínar og ópall.
Happtölur eru oftast
3 og stundum 5.
Helen Keller og Júlíus Caesar voru bæði í Krabbanum
Ömurlegar lýtaaðgerðir
Heil vefsíða tileinkuð misheppnuðum fegrunaraðgerðum.
Það kennir ýmissa grasa á bless-
uðu Alnetinu eins og það var
kallað í gamla daga og þar má
finna einhverjar upplýsingar um
nánast allt sem hægt er láta sér
detta í hug.
Í flóru þessara óendanlegu
rafheima er m.a. vefsíðan www.
awfulplasticsugery.com en sú er
algerlega helguð umfjöllun um
lélegar fegrunaraðgerðir.
Lesendur sem velta vöngum yfir
því hvort Sarah Jessica Parker,
Madonna, Victoria Beckham eða
fleiri hafi farið í aðgerðir geta
fundið réttu svörin á þessari síðu.
Þar eru ávallt samanburðarmyndir
af útliti stjarnanna fyrir og eftir
aðgerðir. Meðal nýjustu frétta má
sjá að fyrrum Bretaprinsessan
Sarah Fergusson virðist hafa látið
lyfta augabrúnunum, Steven Tyler,
söngvari Airosmith, líkist kven-
manni meira og meira og gamli
kappinn úr Kiss, Paul Stanley, er
orðinn eins og trúður úr hryllings-
mynd. Það fer heldur ekkert á milli
mála að Lindsey Lohan er búin
að „fá sér brjóst“ og ætti í raun að
kæra lækninn sem framkvæmdi
aðgerðina.
Lýtalæknir bloggar
En það eru samt ekki bara vondar
aðgerðir sem fólk getur fræðst um
á þessari síðu. Þar má einnig finna
fjölmargar vefsiður sem sýna vel
heppnaðar aðgerðir og umsagnir
lækna um fagið. Til dæmis er
bandarískur lýtalæknir, Dr Dis-
aia frá San Clemente í Kaliforníu,
með hlekk á bloggsíðu sína inni á
www.awfulplasticsugery.com. Þar
tíundar hann hugsanir sínar og
skoðanir á aðgerðum og bendir
á lausnir við lélegum útkomum.
Hann talar m.a. um nýju brjóstin
hennar Victoriu Beckham sem virð-
ist ekki hafa vandað valið á lækni.
Victoria er eins og flestir vita al-
veg örmjó. Læknirinn sem fram-
kvæmdi aðgerðina á henni hefur
sett sílikonpúðana ofan á vöðvann
og útkoman virkar eins og hún
hafi skorið brennóbolta í tvennt
og stungið undir peysuna. Mjög
ónáttúrulegt. Dr Disaia bendir á
að með því að setja minni sílikon-
púða undir brjóstvöðvann mætti
laga þetta lýti.
Vefsíða þessi er skemmtileg og
oft á tíðum fyndin, enda fær hún
fleiri þúsund heimsóknir dag
hvern.
margret@bladid.net