blaðið - 01.07.2006, Síða 38
38 IFÓLK
FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 2006 blaðið
SNOBBAÐ FYR-
IR ERLENDUM
TUNGUM
íslendingum er annt um tungu-
málið sitt og reglulega kemur upp
umræða um stöðu tungunnar. Smá-
borgarinn lætur að sjálfsögðu ekki
sitt eftir liggja í þessum efnum frek-
ar en öðrum.
Smáborgaranum finnst merkilegt
hvað við íslendingar getum snobb-
að fyrir erlendum tungumálum og
um leið gert lítið úr okkar eigin tun-
gu. Gildir einu hvort við tölum döns-
ku á sunnudögum eða slettum ens-
ku í tíma og ótíma. Slettur eru ekki
aðeins lýti heldur í flestum tilfellum
alger óþarfi. Slík er auðlegð íslenskr-
ar tungu að manni verður nánast
aldrei orðfall og í þau fáu skipti sem
ekki er til íslenskt heiti yfir tiltekið
fyrirbæri er yfirleitt hægur leikur að
búa það til. Þeim sem efast er bent
á að kynna sér hina svo kölluðu há-
íslensku en áhugamenn um hana
vinna óeigingjarnt og vanþakklátt
starf við að útrýma öllum erlendum
áhrifum úríslensku máli.
Sletttil blæbrigða
Vissulega eru mörg orð í erlendum
málum sem eiga sér ekki fullkomn-
ar hliðstæður í íslensku svo sem id-
entity og vegan. Oft er heldur ekki
hlaupið að því að þýða orð sem til-
heyra afmörkuðu fræðasviði eða sér-
hæfðum orðaforða. Þá er svo sem
ekkert að því að sletta öðru hverju
til áhersluauka og blæbrigða.
íslendingar grípa hins vegar gjarn-
an til enskra orða og orðatiltækja
sem eiga sérfullkomnar hliðstæður
í íslensku. Af hverju stynja til dæmis
íslensk ungmenni „Oh my Gaaaad!"
nú til dags í stað þess að segja ein-
faldlega „Guð minn góðurl"?
Smáborgarinn sem er annálaður
málræktarmaður telur annars að ís-
lensku stafi meiri hætta af óbeinum
erlendum áhrifum en blessuðum
slettunum. Óbein áhrif svo sem ensk
setningaskipan eða hráar þýðingar
erlendra orðatiltækja leyna meira
á sér en sletturnar. Við ættum því
kannski að hafa meiri áhyggjur af
fólki sem segist vera að renna út á
tíma en því sem dánlódar og seivar
í gríð og erg.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Lúðvtk Bergvinsson, þingmaður.
Er Samfylkingin í frjálsu falli?
„Þegar botninum er náð liggur leiðin bara upp á við“.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist um 24% í nýrri könnun Fréttablaðsins, sem er 6% undir kjörfylgi í síðustu kosningum.
Það myndast oft skemmtileg stemmning meðal áhorfenda þegar stórlaxar eins og
Þjóðverjar og Argentínumenn heyja blóðugan bardaga á knattspyrnuvellinum. Þessir
herramenn fylgdust gaumgœfilega með leik þjóðanna á HM ígær á skemmtistaðnum
Pravda og mikil stemmning ríkti meðal fótboltaáhugamannanna. Þjóðverjar höfðu
betur í leiknum, en úrslit í honumfengust ekkifyrr en t vítaspyrnukeppni.
HEYRST HEFUR...
Eftirfarandi brandari geng-
ur að sögn á göngum Seðla-
bankans um þessar mundir
sem og víðar. Þar
gera menn grín
að því að eini Jón
Sigurðssoninn
semendistíSeðla-
bankanum sé sá
á fimmhundr-
uðkallinum. Jón Sigurðsson
jafnaðarmaður var nefnilega
seðlabankastjóri í tvö ár, 1993-
1994. Jón Sigurðsson framsókn-
armaður var seðlabankastjóri
í þrjú ár, 2003-2006. Jón Sig-
urðsson forseti er hinsvegar á
fimmhundruðkrónaseðlinum
og kemst því ekki neitt.
Eins og oft áður var margt
um manninn á Ölstofunni
síðastliðið fimmtudagskvöld.
Það vakti athygli að menning-
arvitarnir Jón Karl Helgason,
fráfarandi gtarfsmaður bókaút-
gáfunnar Bjarts,
og Snæbjörn
Arngrímsson
forleggjari sátu
að skrafi undir
einni af útsaum-
uðu myndunum sem prýða
veggi Ölstofunnar. Ekki sást tár
glitra á hvarmi
þeirra pilta en
viðstaddir veltu
því þó fyrir sér
hvort kapparnir
hefðu hist yfir
drykk til þess
að ræða framtið galdrapiltsins
Harry Potter en sú saga geng-
ur nú fjöllum hærra að Potter
sé feigur. Höfundur bókanna,
J.K. Rowling, hef-
ur látið að því
liggja síðustu
daga að mögu-
lega munigaldra-
strákurinn geð-
þekki láta lífið í
lok síðustu bókarinnar. Bjart-
ur á galdrastráknum margt að
þakka en forlagið hefur gefið
út allar bækurnar sex sem kom-
ið hafa út í íslenskri þýðingu.
Ekki þarf að fjölyrða um þær
miklu vinsældir sem Potter hef-
ur notið og sér ekki enn fyrir
endann á þeim. Ljóst er því að
Potter yrði forsprökkum Bjarts
mikill harmdauði.
adalbjorn@bladid.net
Fór úr fyrir dýrin
Strandvarðastjarnan og sílikonbom-
ban Pamela Anderson stóð nakin
í búðarglugga hönnuðarins Stellu
McCartney í London í vikunni. Blað-
ið greindi frá þessum fyrirætlunum
hennar fyrir skömmu og á miðviku-
daginn mætti skvísan í allri sinni
dýrð og klæddi sig úr fötunum fyrir
gesti og gangandi en það voru víst
óvenju margir sem lögðu leið sína
framhjá búðarglugganum þennan
daginn. í þetta skipti afklæddist
Pamela til þess að vekja athygli á
góðum málstað og var borði sem
huldi hluta líkama hennar festur
við gluggann en á honum stóð:
„We’d Rather Bare skin Than Wear
Skin“ sem útleggst á hinu ástkæra
ylhýra: „Við viljum heldur afklæð-
ast en klæðast feldi.“
Eftir að hafa staðið í búðarglugg-
anum í um 20 mínútur hélt Pamela
til veislu sem haldin var af PETA-
samtökunum en þar sást til hennar
að kyssa Steve Jones, myndarlegan
sjónvarpskynni sem hún hefur ver-
ið að hitta að undanförnu.
Viltu horfa á bíómynd, eða eigum við að
horfa á fréttirnar og hlæja dátt?