blaðið - 26.07.2006, Qupperneq 8

blaðið - 26.07.2006, Qupperneq 8
8IFRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 2006 Maöiö Mikiðúrval afflísum É ®Veggflísar ÉllEB • Gólfflísar SELDIR LÍTRAR ÁFENGIS Áfengissala eykst: Vinsældir hvítvíns aukast Vínbúðir seldu rúmlega 8,5 millj- ónir lítra af áfengi frá janúar til júní- loka samkvæmt tölum frá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Þetta er rúmlega níu prósent meiri sala en á sama tíma árið 2005. Sala á rauðvíni eykst um tvö og hálft prósent á milli ára, en sala á hvítvíni eykst hins vegar um rúm funmtán prósent. Sala á lag- erbjór eykst um rúm tíu prósent milli ára og er nú rúmlega 78 prósent af allri sölu Vínbúðanna í lítrum talið. TILBOÐ! 2006 2005 Breyting Rauðvín 796.174 776.806 2,5% Hvítvín 364.562 316.588 15,2% Freyðivín 45.435 42.140 7,8% Rósavfn 45.678 51.347 -11,0% Viskí 42.211 39.169 7,8% Tequila 617 1.013 -39,1% Ókryddað brennivín og vodka 140.538 131.357 7,0% Lagerbjór 6.684.858 6.069.687 10,1% KR DJMAN Sumarsteikin fullknmniiÓI lUlmUJIUIUU* Oríental BBQ-marinerin? mehtara fir?entínu komin í venlanir Oriental BBQ-marinering meistara Argentínu steikhúss hefur notið gríðarlegrar hylli gesta staðarins í 16 ár. Nú er þessi óviðjafnanlegi kryddlögur fáanlegur í verslunum svo að eldklárir grillmeistarar heimilanna geta nýtt sér hann til aukinna vinsælda í sumar. Fullkomnaðu grillsteikim að hœtti Argentínu steikhúss! (25-70°/o afsláttur HARÐVIÐARVAL -þeyar þú kaupir gáHefni Krókhálsi 4 110 Reykjavík Sími 567 1010 www.parket.is Veitingahúsaaeigendur æfir yfir gagnrýni Veitingahúsarýnir skelfir veitingamenn Veitingastjórinn á veitinga- staðnum Salti og yfirkokkur á Hereford segja gagnrýni sem í tíma- ritinu Mannlífi, í þessum mánuði og þeim síðasta, vera hengingu án dóms og laga. Veitingahúsarýnirinn Hjörtur Howser segir sök bíta sekan og stendur við hvern staf sem hann hefur skrifað. Árás á veitingastaðinn Hjörtur var ekki ánægður með veitingastaðinn Hereford. Ekki einungis gaf hann staðnum hauskúpu í einkunn, heldur mæltist hann til að staðnum yðri lokað hið snarasta. „Þetta er ekkert nema árás á staðinn," segir Guðni Árnason, yf- irmatreiðslumaður á Hereford, og gagnrýnir gagnrýni Hjörts harðlega. Hann segir það einnig rangt að veit- ingahúsið sé rándýrt líkt og Hjörtur fullyrðir og bendir á að önnur steik- hús séu dýrari. „Það er ekkert að málefnalegri út- tekt á staðnum en þessi gagnrýni var það svo sannarlega ekki,“ segir Guðni og bætir við að hann sakni al- mennilegrar rýni og telur Hjört ekki í hópi þeirra sem hæfir eru til þess að gagnrýna veitingastaði. Mannorðsmorð Hereford er ekki eini staðurinn sem hefur fengið harða gagnrýni hjá Hirti. Veitingahúsið Salt fékk sinn skammt. „Þetta hefur haft leiðinleg áhrif á Stendur við hvern staf Hjörtur Howser tónlistamaöur og veitinga- húsrýnir segir sök bíta sekan okkur," segir Tryggvi Jósteinsson veitingastjóri á Salti. Hann segir fólk hafa afpantað borð vegna gagnrýni Hjartar og aðrir hafi hringt fullir af áhyggjum. „Við vorum bara hengdir án dóms og laga,“ segir Tryggvi og er aldeilis ósáttur með það sem Hjörtur Howser lét frá sér fara. „Það er ekki hægt að sitja undir svona árásum," segir Tryggvi og ítrekar vanda verði alla gagnrýni. Hann segir Hjört bæði hafa sýnt ósanngirni og verið ónákvæmann. Tryggvi segir þetta ekki bara eiga við sinn veitingastað, flestir veitingastaðir fái slæma útreið hjá Hirti. „Þetta er mannorðsmorð,“ segir Tryggvi að lokum Sök bítur sekan Tónlistamaðurinn og veitinga- húsarýnirinn Hjörtur Howser blæs á kvartanir veitingahúsanna og segir sök bíta sekan. Hann tekur fram að hann sé ekki að reyna að níða skóinn af veitingahúsaeigendum og skilur að samkeppni veitingahúsa sé hörð. „En þegar maður kemur á veitinga- stað og fær enga þjónustu en borgar morðfjár fyrir, þá er enginn munur á því og sölusvikum," segir Hjörtur sem lætur gagnrýni á gagnrýni sína ekki á sig fá. Hjörtur segist vera hinn venjulegi maður og þannig gagnrýni hann veitingahúsin. Hann lítur á heildar- upplifunina en ekki sérstaklega á matinn eða vínið sem slíkt. Þannig byggir hann upp sína gagnrýni, líkt og venjulegur maður gerir eftir veitingahúsaferð. Hann segist gefa þeim sem eiga það skilið góða dóma en viðurkennir að hann hafi lent í neikvæðum reynslum undanfarið í heimsóknum sínum. „Ég bið bara um það sem ég borga fyrir og að staðir komi fram við mig eins og venjulegan kúnna,“ segir Hjörtur og bætir við að hann vilji ekki gefa stöðum slæma dóma en þjónustuna þurfi oftar en ekki að bæta. Hjörtur segir að lokum að góðrar gagnrýni sé að vænta í ágúst og vonar að fólk kunni að meta heim- sóknir hans í framtíðinni. valur@bladid.net Grimm Bresk kona vann skaðabótamál gegn fyrrum tengdamóður sinni á dögunum. Konan kærði tengdamóð- urina fyrir að hafa lagt sig í einelti og sótti málið á grundvelli laga sem eru yfirleitt notuð til að koma böndum á fólk sem er haldið þráhyggju og ofsækir aðra einstaklinga. Er þetta í fyrsta sinn á Bretlandi sem fjöl- skyldumeðlimur er sóttur á grund- velli slíkra laga. Konan og þáverandi eiginmaður hennar fluttu inn til foreldra hans stuttueftiraðþaupússuðusigsaman. Tengdamóðirin reyndist harður hús- bóndi og neyddi konuna til þess að sinna húsverkum í margar klukku- stundir á dag. Auk þess sætti hún harðræði og einelti sem fólst í því að Dómsmál: vist hjá tengdó hún mátti aðeins nota símann einu sinni í viku og fékk ekki að yfirgefa húsið án fylgdar annarra fjölskyldu- meðlima. Tendamóðirin, sem er af indversku bergi brotin, er sikhi og neyddi konuna til þess að fylgja ströngum siðum trúarbragðanna Tengdamóðirin alrlæmda var dæmd til þess að greiða konunni um fimm milljónir í miskabætur.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.