blaðið - 29.09.2006, Qupperneq 1
VIÐTAL
» síða 28
215. tölublaö 2. árgangur
föstudagur
29. september 2006
FRJÁLST, ÓHÁÐ &
■ VEIÐI
Gunnar Örlygsson segir
fluguna hafa bjargað veiði-
deginum í Laxá í Leirársveit
| SÍÐA34
■ LÍFIÐ
Marta Macuga segir MTV hafa
haldið innreið sína í pólskt
menningarlíf
| SÍÐA40
Andri Snær Magnason rithöfundur:
Heimurinn of svifaseinn
■ Var komið að Austfirðingum, segir Birkir Jón ■ Vatn tekið að renna í Hálslón
Eftir Atla ísleifsson atlii@bladid.net
Vatnið reis hratt við Kárahnjúkavirkjun þegar
lokað var fyrir afrennslisgöngin sem vatnið hefur
flætt um. Hálslón er því tekið að myndast en há-
marki nær það að óbreyttu næsta sumar.
„Þetta er afskaplega dapurleg ráðstöfun á landi,"
segir Andri Snær Magnason, sem skrifaði sölu-
hæstu bók ársins, Draumalandið, sem fjallar að
stórum hluta um framkvæmdirnar fyrir austan.
Andri Snær segir að skortur á ímyndunarafli
hafi lengi einkennt íslendinga. „Fólk getur ekki
ímyndað sér hlutina fyrr en það sér þá. Reynslan
sýnir okkur að heimurinn er oft seinn að taka við
sér. Hugmynd fólks um land breytist til dæmis
ekki á einni nóttu, heldur koma menn fimmtán
árum síðar og þakka okkur fyrir að hafa viður-
kennt sjálfstæði Litháens. Ég held að við eigum
eftir að fá þetta í hnakkann á komandi árum.“
Birkir Jón Jónsson, alþingismaður, segir gærdag-
inn merkan áfanga í atvinnusögu Austfirðinga.
„Eina stóriðjan sem hefur verið starfrækt í landinu
á síðustu árum hefur verið á höfuðborgarsvæðinu.
Nú er komið að því að Austfirðingar byggi upp sitt
atvinnulíf og þessi framkvæmd mun skila þjóðar-
búinu gríðarlegum tekjum á næstu árum og ára-
tugum sem við getum nýtt til þess að standa undir
öflugu mennta-, heilbrigðis- og velferðarkerfi.“
Sjá einnig síðu 16
Guðjón aftur á Skagann Guðjón Þórðarson skrifaði í gær undir þriggja ára samning við ÍA, tuttugu árum eftir að hann tók fyrst að sér þjálfun liðsins. Hann þjálfaði liðið síðast árið
1996 og er ekki í vafa um muninn á sér nú og þá. „Ef ég var góður þjálfari fyrir tíu árum er ég miklu mun betri núna,” segir þjálfarinn sem hefur þjálfað íslenska landsliðið og þrjú ensk lið
síðan hann þjálfaði Skagaliðið síðast. Sjá einníg síðu 36
Einars Ben
ðriksson sagnfræð-
ír fólk í sannleikann um
ernsku þjóðskáldsins
Einars Benediktssonar í
Elliöaárdalnum.
VEÐUR
Rigning
Súld eða rigning með
köflum, en þurrt að kalla á
Vesturlandi. Hiti 5 til 15 stig,
hlýjast suðvestanlands.
QRÐLAUS
Tímaritiö
Orðlaus fylgir
Blaöinu í dag
Stefnir á Asíu
með Magna
„Magni kemur með mér til Los Ange-
les þegar ég fer af landinu," segir
Dilana Robichaux í viðtali við Blaðið.
„Síðan förum við Magni til Ottowa í
Kanada að spila á tónleikum og á mið-
vikudaginn fékk ég tölvu-
Næstmesta mengunin
Mengun frá samgöngum er næstmest
í Reykjavík af sjö borgum á Norður-
löndum. Þar eru tilbúnar áætlanir um
hvernig bregðast skuli við stöðunni
en hér er álitamál hvort svo sé. Hjalti
J. Guðmundsson, framkvæmdastjóri
hjá umhverfissviði borgarinnar, segir
áætlunina ekki til og tíma til kominn að
búa hana til. Gísli Marteinn Baldursson,
formaður umhverfisráðs, segir áætlun-
ina hins vegar til staðar í stefnumótun
borgaryfirvalda um að fjölga farþegum
strætisvagna og hvetja fólk til að hjóla
meira.
FRETTIR » síða 6
Ók frá slasaðri konu
Kona slasaðist þegar bill sem hún
keyrði valt þar sem hún var á ferð á
Grafningsvegi. Hún hélt að hjálpin væri
að berast þegar maður stöðvaði bíl
sinn og gekk að henni til að svipast
um. Hann gekk hins vegar í burtu án
þess aö hjálpa henni og lét ekki vita
af slysinu. Konan hringdi í mann sinn
sem kom henni og ungu barni hennar
til hjálpar.
Pizza í
fullri stærð
16"Pizza með 2 áleggjum
og brauðstangir að auki
1.390
Ef þú sækir
Mjódd • Dalbraut 1 • Hjarðarhaga 45
5 68 68 68
Allir velkomnir!
OíTPi
DACÞÍt
í Vetrargarðinum í Smáralind
laugardaginn 30. september kl. 11-18, sunnudaginn 1. október kl. 13-18