blaðið - 29.09.2006, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006
blaöiö
SÁDÍ-ARABÍA
Reisa landamæragirðingu
UTAN ÚR HEIMI
Sádiarabísk stjórnvöld ætla aö reisa þúsund
kílómetra girðingu til að loka landamærunum
að (rak. Hefta á för hryðjuverkamanna en
margir óttast að ógnaröldin sem ríkir í írak
kunni að breiðast út til nágrannaríkja.
JAPAN
Abe nýtur hylli
Samkvæmt nýjum skoðanakönnum styðja
tveir af hverjum þremur Jaþönum Shinzo
Abe sem tók við embætti forsætisráðherra á
dögunum. Hann er þar með orðinn einn vin-
sælasti forsætisráðherra í sögu landsins.
Meirihluti styður árásir
Um sextíu prósent íraka telja réttlætanlegt að gera árásir á bandaríska hermenn
í landinu. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Háskólinn í Maryland gerði.
Rúmlega sextíu prósent telja að ríkisstjórn landsins eigi að krefjast þess að
bandarískir hermenn hverfi frá landinu á næstu tólf mánuðum. Meirihluti Iraka
hefur neikvætt álit á Osama bin Laden, leiðtoga AI-Kaeda-hryðjuverkanetsins.
Netfyrirtæki:
Berjast um lén
Áfrýjunarnefnd neytendamála
hefur vísað frá kæru fyrirtæk-
isins Timeout.is sf. á hendur
Netvís vegna notkunar þess síð-
astnefnda á léninu timeout.is.
Timeout.is sf. kærði Netvís til
samkeppnisráðs í janúar á síð-
asta ári og óskaði þess að Netvís
léti af notkun lénsins á grund-
velli einkaréttar. Samkeppnisráð
vísaði málinu til Neytendastofu
sem ekki þótti ástæða til að að-
hafast meira.
I dómi áfrýjunarnefndar
kemur fram að ákæra Timeout.
is sf. hafi komið of seint fram og
þvi sé málinu vísað frá.
Eimskip:
Kaupir finnskt
skipafélag
Eimskip hefur keypt 65 pró-
senta hlut í finnska skipafélaginu
Containerships. Fyrirtækin munu
ásamt Kursiu Linija, sem Eim-
skip keypti fyrr á árinu, mynda
eitt stærsta flutningabandalag
Evrópu í styttri siglingum undir
nafninu Containerships Group.
Kaupverðið er trúnaðarmál,
en kaupin eru fjármögnuð með
eigin fé og lánsfé. Containerships
Group mun reka 41 skip og hafa
yfir að ráða um þrjátíu þúsund
gámaeiningum.
Hreinsar út aukaefni
og þungamálma
Fæot f heilsubúðum og Lyfjaval
Vatnssöfnun vegna Kárahnjúkavirkjunar hafin
safnast
rð steig hratt Dapurlegasti dagur Omars
Hálslón hóf að myndast í
gær klukkan hálftíu Lokurhjá-
rennslisganganna sigu niður og
siðan var steypt i tokuraufarnar
Vatnsborðið hækkaði fljótt til að
byrja með Yfirborð vatnsins hækkar
og á endanum fer svæðið undir vatn.
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
Hjáveitugöngum Kárahnjúkastíflu
var lokað í gærmorgun og hófst því
vatnssöfnunin í Hálslón. Tveimur
stálhlerum var rennt fyrir opið og
steig vatnsborð lónsins hratt til að
byrja með á meðan Jökla tók að
hverfa neðan stíflunnar. Eftir að lok-
unum hafði verið lokað var steypu
dælt til að þétta þær enn frekar og
koma í veg fyrir leka. Lónið mun
síðan teygja sig inn dalinn og verður
fyllt til hálfs í haust og í vetur. Ráð-
gert er að lónið fyllist næsta sumar
eða haust, að því gefnu að rennsli
verði eðlilegt í ánni.
Ánægð að áætlanir standast
„Það var alltaf vitað að það kæmi
að þessum degi og tappinn yrði
settur í. Ég er mjög ánægð með að
þetta virðist allt ætla að standast
áætlanir, bæði virkjunin og upp-
bygging álversins á Reyðarfirði,“
segir Valgerður Sverrisdóttir, núver-
andi utanríkisráðherra og iðnaðar-
ráðherra þegar ákvörðun var tekin
um virkjunina.
Valgerður segir að auðvitað sjái
hún eftir því landi sem fer undir
Hálslón. „I þessu tilfelli sem öðrum
í stjórnmálum þurfti að vega og
meta hagsmuni. Fyrir talsvert
mörgum árum var niðurstaða mín
sú að það væri verjandi að fara út
í þessar framkvæmdir vegna þess
hvað þær eru mikilvægar, bæði
fyrir þjóðarbúskapinn í heild og
sérstaklega fyrir Austurland. Þegar
hefur sýnt sig að þar er mannlífið
gjörbreytt og fólkið eygir nýja og
betri tíð.“
Gengið freklega Tíminnmun
áhlutmillj- r: sanna mikilvægi
óna ófæddra islendinga framkvæmdanna
Ómar Ragnarsson, K, Éá1 Valgerður Sverrisdóttir,
sjónvarpsmaður 1 ^-^riSe utanríkisráðherra
Þarflaus náttúruspjöll
Vatnsborð lónsins náði örkinni
hans Ómars í gærkvöldi, en á henni
ætlar hann að fara um svæðið og
mynda deyjandi Hfríki. „Þetta
verður mjög spennandi. Ég verð
hér í allmarga daga, því það er svo
margt sem sekkur fyrstu dagana.
Við erum að sjá til þess að til verði
heimild um það hvernig þessi dalur
sökk og á táknrænan hátt. Ljósið
í myrkrinu er fólksstraumurinn
sem flæddi í gegnum Reykjavík á
þriðjudaginn,“ segir Ómar og bætir
við að sá hópur eflist einungis við
mótlætið.
Ómar segist sjálfur ekki hafa
fylgst með því þegar hjáveitugöng-
unum var lokað. „Þetta er einhver
dapurlegasti dagur sem ég hef lifað
á langri starfsævi. Hér er það verk
hafið að fremja mestu náttúruspjöll
sem hægt er að fremja á þessu landi.
Það er gert að þarflausu, vegna þess
að hægt var að fá orku með skap-
legri hætti annars staðar frá. Með
þessum gjörningi er gengið freklega
á hlut milljóna ófæddra Islendinga."
Ríkisstyrktar flugleiðir:
Nauðsynlegt til að viðhalda búsetu
Ríkisstyrktar flugleiðir eru mik-
ilvægar til að tryggja auðlindanýt-
ingu og búsetu að mati Sturlu Böðv-
arssonar samgönguráðherra. Hann
segir það þekkt víða í Evrópu að sam-
göngur til jaðarbyggða séu styrktar
með þessum hætti. „Þetta er ekki sér-
íslenskt fyrirbæri og í raun nauðsyn-
legt til að halda uppi samgöngum og
í sumum tilfellum neyðarþjónustu
fyrir afskekkt sveitarfélög.“
Fram hefur komið að af tólf reglu-
legum flugleiðum innanlands eru
níu niðurgreiddar af ríkinu. Aðeins
flugleiðirnar til Akureyrar, Isafjarðar
og Egilsstaða geta borið sig á mark-
aðslegum forsendum samkvæmt
framkvæmdastjórum tveggja flugfé-
laga. Þá er óljóst hvort ísafjörður geti
þolað samkeppni tveggja eða fleiri
flugfélaga.
Sturla segir ríkisstyrki vera í
Rikisstyrktar
flugleíðir ekki
séríslenskt
fyrírbæri
Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra
sumum tilfellum bráðabirgðalausnir
og ekki ætlast til þess að þeir vari til
frambúðar. „Við vorum viðbúnir því
að það þyrfti mögulega að styrkja
flugsamgöngur milli Vestmanna-
eyja og Reykjavíkur. Engu að síður
vona ég að sá styrkur verði ekki til
frambúðar og grundvöllur skapist
seinna fyrir áætlunarflug á mark-
aðslegum forsendum. Þá er ljóst að
ríkisstyrkur vegna flugleiðarinnar
til Sauðárkróks fellur niður þegar
Héðinsfjarðargöngin verða tekin í
notkun.“