blaðið - 29.09.2006, Side 14

blaðið - 29.09.2006, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 blaftið TÖL BRAUTARHOLT110-14 | S: 588 1000 | WWW.TASK.IS Opið: 10-18 virka daga 12-10 laugardaga Vikutilbod Task! UTAN ÚR HEIMI AFGANISTAN NATO tekur við friðargæslu Ákveðið hefur verið að Atlantshafsbandalagið (NATO) taki við allri friðargæslu í Afganistan eins fljótt og auðið er. Hermenn bandalagsins eru að störfum víðsvegar um landið fyrir utan austurhlutann. Búist er við að NATO muni taka við friðargæsl- unni í þeim hluta landsins í næsta mánuði. Umdeild skýrsla Leyniþjónusturáðs Bandaríkjanna: írak þungamiðja í hryðjuverkastríði ■ Innrásin vatn á myllu öfgahyggju ■ Stöðugleiki yrði áfall fyrir íslamista Eftir Úrn Arnarson orn@bladid.net Umræðan um hið svokallaða „hnatt- ræna stríð gegn hryðjuverkum” er í brennidepli stjórnmálaumræðunnar í Bandaríkjunum um þessar mundir. Gengið verður til þingkosninga í í nóvember og hafa þjóðaröryggis- og utanríksimál verið fyrirferðarmikil. Á dögunum var innihaldi nýlegrar skýrslu Leyniþjónusturáðs Banda- ríkjanna (NIC) lekið í fjölmiðla og kom meðal annars fram að skýrslu- höfundar telja að innrásin í Irak hafi aukið á hryðjuverkaógnina í heim- inum og eru þar með ósammála mati George Bush forseta um að heimur- inn sé öruggari vegna innrásarinnar. Stjórnvöld brugðust við lekanum með þvi að birta valda kafla úr skýrsl- unni. Efnið sem var birt rökstyður meðal annars þá skoðun að Irak sé mikilvægasti vigvöllurinn í hryðju- verkastríðinu og að brotthvarf banda- ríska hersins þaðan myndi styrkja stöðu íslamista gríðarlega. Skýrsla NIC inniheldur mat sex- tánleyniþjónustustofnanaBandaríkj- anna á stöðunni í hryðjuverkastríð- inu. Meðal þess sem kemur fram í skýrslunni er að ástandið í írak hafi magnað upp hættu á hryðjuverkum í heiminum. Skýrsluhöfundar telja að afskipti Bandaríkjamanna af hinum íslamska heimi hafi skapað djúpstætt hatur á Bandaríkjunum meðal múslíma og að hatrið hafi reynst frjór jarðvegur íslamskrar öfgahyggju. En þrátt fyrir þetta mat mæla skýrsluhöfundur ekki með því að Bandaríkjamenn fari með herlið sitt frá landinu. I skýrslunni er tekið undir með þeim sem hafa bent á að það skipti sköpum fyrir framgang hryðjuverkastríðsins að íslamistar í írak verði upprættir og að það yrði reiðarslag fyrir hugsjónir þeirra ef tekst að skapa stöðugleika í landinu og endurreisa fullveldi þess. Skýrsluhöfundar telja að slíkt myndi draga úr hugsjónaeldi íslamskra hryðjuverkamanna. Stjórnmálamenn og blaðamenn hafa fjallað mest um þá ályktun skýrsluhöfunda að innrásin í Irak hafi aukið hryðjuverkahættuna í heiminum. Demókratar krefjast þess að öll skýrslan verði gerð opinber svo að bandarískir kjósendur geti vegið og metið hvort utanríkisstefna stjórnvalda eftir hryðjuverkaárás- inar n. september hafi raunverulega skilað árangri. Háttsettir þingmenn Demókrataflokksins hafa einnig ýjað að því að stjórnvöld sitji á ann- arri svartri skýrslu um ástandið í írak en að hún verði ekki birt fyrr en eftir kosningarnar. Gagnsókn Ge- orge Bush hefur falist í því að benda á að hryðjuverkamenn muni alltaf finna leiðir til þess að réttlæta voða- verk: vera bandarísks herliðs í Irak breyti engu þar um. Þingmenn repú- blikana taka í sama streng og segja að verði lýðræði tryggt í írak muni það á endanum minnka líkurnar á hryðju- verkaárásum á bandarískri grund. Þrátt fyrir að umræðan um skýrsl- una hafi að mestu snúist um tengsl innrásarinnar í írak við uppgang íslamskrar öfgahyggju í heiminum er sá uppgangur ekki eingöngu rakinn til hernaðaraðgerða Banda- ríkjamanna. Skýrsluhöfundar telja spillingu, óréttlæti og skort á lýðræði, félagslegum og efnahagslegum um- bótum í ríkjum hins íslamska heims vera vatn á myllu íslamista. Þrátt fyrir að skýrsluhöfundar telji að lýð- ræðisvæðing hins íslamska heims kunni að auka áhrif íslamista í fyrstu færa þeir rök fyrir að slíkt þjóðskipu- lag myndi á endanum grafa undan stöðu þeirra og minnka stuðning al- mennings við hugsjónir þeirra. Vöruskipti við útlönd: Aframhaldandi halli Vöruskiptajöfnuður við útlönd var rúmum þrjátíu milljörðum lak- ari fyrstu átta mánuði ársins en hann var á sama tíma í fyrra. Samkvæmt tölum frá Hagstofu Is- lands voru fluttar út vörur á fyrstu átta mánuðum ársins fyrir rúma 150 milljarða en innflutningur nam rúmum 245 milljörðum. Vöruskipta- hallinn í ár var því óhagstæður um tæpa 95 milljarða. Sjávarafurðir ingur alls útflutnings og jókst verð- mæti þeirra um tæp tvö prósent frá sama tíma árið áður. Mesta verð- mætisaukningin varð á útfluttum iðnaðarvörum, aukning um tæp tutt- ugu prósent, sem skýrist einkum af hækkandi álverði. Annríki við vöruflutninga Islend- ingar eyddu nlutíu milljöröum meira í vörur frá útlöndum en þeir fengu

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.