blaðið - 29.09.2006, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006
GENGIGJALDMIÐLA
blaöiö
1. Hver ræður ríkjum í Pjongjang?
2. Hvaða þingmaður hefur lengst setið á Alþingi?
3.1 hvaða tímariti birtist ritgerð dr. Þórs Whiteheads um íslensku leyniþjónustuna?
4. Hvenær sökk Titanic?
5. Hvað þýðir heitið Gestapo?
Svör:
O)
. c\J ro cn
E oi co = „
T“ Qi
O O '
~i = ■! E ~
'"o3 '2, c\i Qi "o ;
^ Q_ rL T- CD
■ Bandarikjadalur
Sterlingspund
£5 Dönskkróna
93 Norsk króna
53 Sænskkróna
BW Evra
KAUP
69,81
131,22
11,90
10,79
9,58
88.75
SALA
70,15
131,86
11,97
10,85
9,63
89,25
Útlendingar borga meira
Einstaklingar sem skráðir eru
með lögheimili utan Islands þurfa
samkvæmt verðskrá Heilsugæslu-
stöðvar höfuðborgarsvæðisins
að greiða mun hærra gjalda en
aðrir. Starfsmenn heilsugæslunn-
ar túlka reglugerðina vítt svo að
hægt sé að veita útlendingum
sömu þjónustu.
. : uHWS
T—1
Átta vikur eftir kennitölu
Átta vikur eftir dvalarleyfi eftir að
kennitala fæst
Sex mánaða bið hjá Tryggingastofnun
eftir aö dvalarleyfi fæst
Vltjun i heimahús
1.850
6.200
335%
Timi I dagvinnu
700
3.700
529%
Utan dagvinnu
1.750
4.600
263%
Með logheimili
Án lögheimilis
Mismunur
ALLA8 UPPHÆ0IR ERUIISLENSKUM KRÓNUM.
Eiturefnaóhapp:
Tonn af eitri
lak úr leiðslu
Eitt tonn af saltpéturssýru lak
úr leiðslu í Hellisheiðarvirkjun í
gærnótt. Tveimur vaktmönnum
frá Securitas tókst að forða sér
út þegar eiturefnamælir fór að
ýlfra og gerðu þeir slökkviliði
viðvart.
Slökkviliðið sendi menn á
staðinn og fóru eiturefnakaf-
arar inn í húsið og dældu kalki
á saltpéturssýruna sem gerir
hana óvirka.
Lögregla:
Með öxi
í bílunum
Lögreglan hafði afskipti af 17
ára pilti í einu úthverfa borgar-
innar í fyrrinótt og fann þá í bíl
hans bæði öxi og hníf.
Pilturinn gat litlar skýringar
gefið á því til hvers hann ætlaði
að nota þessa hluti. Við frekari
athugun kom í ljós að skammt
frá var búið að vinna skemmdir
á grindverki. Ljóst þykir að pilt-
urinn hafi verið þar að verki.
Dýrt að vera veikur útlendingur:
■ Geta ekki pantað tíma ■ Reglugerðir brotnar í þágu veikra
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
Þjónusta fyrir útlendinga án lög-
heimilis hér á landi er margfalt dýr-
ari en fyrir þá sem hafa hér skráð
lögheimili samkvæmt verðskrá
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Til að skrá lögheimili hér á landi
þarf einstaklingur að hafa íslenska
kennitölu en slíkt getur tekið allt
að fjóra mánuði. Til viðbótar getur
viðkomandi þurft að bíða í aðra
sex mánuði eftir því að komast í
íslenska sjúkratryggingakerfið. Á
meðan þarf viðkomandi að greiða
fullt verð fyrir læknisþjónustu. Út-
lendingur sem flytur hingað getur
því þurft að bíða allt að tíu mánuði
áður en hann kemst inn í kerfið.
Guðmundur Einarsson, forstjóri
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins,
segir verðið sem útlendingar borga
fyrir þjónustuna vera raunvirði
hennar. „Gjaldið fyrir heilsugæslu-
þjónustu er nánast málamyndagjald
og ekki fjarri lagi að segja að gjaldið
fyrir útlendinga sé raunverulegi
kostnaðurinn við þjónustuna.”
Geta ekki pantað tíma
Hermína Hermannsdóttir, mót-
tökuritari Heilsugæslustöðvar Graf-
arvogs, staðfestir að útlendingar án
lögheimilis geta ekki pantað tíma
hjá heilsugæslulækni. Þeir þurfa
að sækja opna tíma seinnipart dags,
bíða oft á tíðum lengi eftir þjónustu
og greiða mun hærra verð. Guð-
mundur viðurkennir að samræma
mætti betur skráningarkerfið milli
heilsugæslustöðvanna.
„Án lögheimilis er ekki hægt að
panta tíma nema í skyndiþjónustu.
Þetta er misjafnt eftir stöðvum
og því miður hefur ekki náðst að
samræma kerfið þar á milli,” segir
Guðmundur.
Reglugerð brotin
í reglugerð frá heilbrigðisráðu-
neytinu um þátttöku sjúklinga í
kostnaði kemur fram að allir einstak-
lingar sem eru með lögheimili utan
íslands skuli greiða fullt gjald fyrir
alla þjónustu. Eina undantekningin
er sú ef einstaklingur þarf á skyndi-
legri og nauðsynlegri læknishjálp
að halda. 1 samtölum við nokkra
móttökuritara í heilsugæslum kom
í ljós að víða er reglugerðin brotin.
„Við tökum fólk inn framhjá skil-
málum í verðskránni og hleypum
því í gegn þó það hafi ekki þurft á
skyndilegri eða nauðsynlegri lækn-
ishjálp að halda. Engum er vísað
frá okkur og hér fá allir þjónustu,”
segir einn af móttökuriturunum
sem rætt var við.
Þurfa að greiða fimmfalt
meira en heimamenn
nfíiiiílili ■ ■ ■ B
Gúmmívinnustofan
SP dekk
Öryggi bílsins byggist á góðum hjóibörðum
HEILSÁRSDEKK
VETRARDEKK
JEPPLINGADEKK
RAFGEYMAR
GUMM
Skipholti 35 105 RVK
Sími: 553 1055
www.guiwnivinKUstofan.is
Keisaraynja jörðuð á ný
Dimplómat datt
ofan í gröf
mbl.is Jarðneskar leifar Mariu Feo-
dorovnu, sem áður hét Dagmar
Danaprinsessa, voru jarðsettar
við hátíðlega athöfn við hlið eig-
inmanns hennar, Alexanders III
Rússlandskeisara, í Pétursborg í
gær. Svo óheppilega vildi til við
athöfnina að danskur sendiráðs-
starfsmaður, sem viðstaddur var
athöfnina, datt ofan í gröfina, þar
sem hann hafnaði ofan á kistunni.
Hann slapp ómeiddur úr óhappinu
en er að sögn danska sendiherrans
miður sín yfir því.
Jarðneskar leifar keisaraynj-
unnar höfðu hvílt í dómkirkjunni
í Hróarskeldu frá því hún lést árið
1928 þar til þær voru fluttar til
Rússlands um síðustu helgi en hún
hafði óskað þess fyrir dauða sinn
að hvíla við hlið eiginmanns síns.
Þetta kemur fram á fréttavef Ber-
lingske Tidende.
„Þetta hefði getað komið fyrir
okkur alla. Við stóðum þétt saman
og okkur var ýtt fram. Það horfir
enginn niður fyrir sig þegar honum
er þrýst fram í stórri, þéttskipaðri
kirkju. Það var ekkert handrið og
hann datt því miður ofan í gröfina.
Hann meiddist ekki en honum er
að sjálfsögðu brugðið,” segir Per
Stig Moller, utanríkisráðherra Dan-
merkur, sem staddur er í Rússlandi,
um atvikið.
Grilluð kjúklingabringa rneð heítrí sósu, hrísgrjóntjm, rriaís, fersku salati og Topp 1.150
Tvær grillaðar kjúkl ingabringur með heitrl sósu, hrísgrjónLjm, rnaís, fersku salati og Topp 1.590
1/2 grillaður kjúklingur rneð heitrí sósu, hrísgrjóntjm, rnaís, fersku salati og Sódavatn 1.150
1/1 grillaður kjúklingur rneð heitri sósu, hrfsgrjónum, rnaís, fersku salati og Topp 2.150
Kjúklingasalat rneð grilluðum kjúkling, lceberg, tómötum, agúrkum, papriku, pasta, rauðlauk og Sódavatn 850
Kjúkiingasalat - BK special með grilluÖLjm kjúkling, lceberg, 980
sólþurkuöum tómötum, svörtum
fetaost, Nachos og Sódavatn
Ratsjarstofnun:
Um tíu sagt upp
Um tíu starfsmönnum Rat-
sjárstofnunar verður sagt upp
störfum vegna tæknibrey tinga hjá
stofnuninni. Upphaflega átti að
fara í þessar aðgerðir á næsta ári
en farið var fyrr af stað að beiðni
Bandaríkjamanna.
Ólafur Örn Haraldsson aðstoð-
arforstjóri segir að nú sé verið að
kynna breytingarnar fyrir starfs-
fólki. „Það eru uppsagnir fram-
undan og við erum að segja fólki
frá því. Þetta er vegna tæknibreyt-
inga sem eru fyrr á ferðinni en við
hefðum viljað. Bandaríkjamenn
báðu hins vegar um að þessu yrði
flýtt enda borga þeir reksturinn
næstu tólf mánuði.“