blaðið

Ulloq

blaðið - 29.09.2006, Qupperneq 17

blaðið - 29.09.2006, Qupperneq 17
blaðið FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 17 Ferðasamsteypa Heimsferða: Nýr flugfloti til landsins „Þetta er fyrsta vélin sem kemur til landsins og í vor fáum við fleiri vélar sem fljúga fyrir ferðaskrif- stofur okkar á Norðurlöndunum,” segir Andri Már Ingólfsson, for- stjóri Heimsferða. Fyrirtækið vígir í dag nýja og glæsilega flugvél af gerðinni Bo- eing 737-800. Þessi vél er sú fyrsta sem kemur til landsins en fyrir- tækið stefnir á kaup á fjórum til fimm vélum sem notaðar verða í leiguflugi. „Eitt af meginmarkmiðum fyr- irtækisins er að sinna sem best þörfum okkar viðskiptavina og er þetta stór liður í því. Með þessu höfum við færi á að bjóða upp á fleiri áfangastaði, betri flugtíma og enn hagstæðara verð,” segir Andri Már. „Þetta er því til að tryggja enn betri þjónustu og teljum við okkur vera fyllilega samkeppnishæf við það besta sem gerist í heiminum.” Nýja vélin á að sinna 80 prósentum af flugi Heimsferða. FERÐASAMSTEYPA HEIMSFERÐA: ■ Fjórða stærsta feröaþjónustufyrirtæki á Norðurlöndum ■ Veltir 35 milljörðum á ári „Kaup á sérstökum flugvélum fyrir Heimsferðir marka tímamót í sögu fyrirtækisins og við erum stolt af því að auka þjónustuna enn frekar,” segir Bjarni Hrafn Ingólfsson markaðsstjóri. I t. mfmPM • Nýja Heimsferðavélin Ferðasamsteypa Heimsferða kaupireigin flugvélar. Hér er verið að vinna í því að sérmerkja nýju véiina. Ölgerðin: Alcoa-merki í töppunum Nafn og vörumerki Alcoa blasir nú við fólki þegar það horfir í tappa Kristal Plús-flaskna frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Hörður Harðarson, markaðs- stjóri ölgerðarinnar, kannaðist ekki við að þetta hafi áður komið upp. „Alcoa framleiðir tappana sem ölgerðin notar, en Alcoa hefur hins vegar ekki keypt neina auglýsingu í tappann. Okkur hefur ekki verið bent á þetta áður, svo þetta hlýtur að vera tilfallandi,“ segir Hörður. Fötluð börn: Fundað fljótlega Fundir fulltrúa sveitarfélaga og félagsmálaráðuneytis vegna lengdrar viðveru fatlaðra barna eftir skólatíma hefjast fljótlega samkvæmt upplýsingum frá félagsmálaráðuneytinu. Föst dagsetning liggur þó ekki fyrir. Ekki hefur verið veitt þjón- usta fyrir öll fötluð börn á aldr- inum 10 til 16 ára eftir að skóla lýkur vegna ágreinings ríkis og sveitarfélaga. Stendur deilan meðal annars um það hver beri ábyrgð á málaflokknum og hversu mikið þjónustan kostar. Kjarnorkuáform írana: Ætla að ræða áfram saman Javier Solana, utanríkismála- stjóri Evrópusambandsins, sagði í gær að viðræður hans við Ali Larijani, aðalsamningamann írana í deilunni um kjarnorku- áætlun klerkastjórnarinnar, hefðu ekki leitt til samkomulags um lausn deilunnar en hins- vegar væru frekari viðræður í farvatninu. Fundahöldum verður haldið áfram en orð Solana eru ekki talin gefa ástæðu til bjartsýni. BRAGÐGÓÐ HOLLUSTA FYRIR ALLA Sigrún Þöll breytti mataræðinu og missti 46 kíló meö hjálp íslensku vigtarrágjafanna. Frystivara Morgunkorn og safar Sultur og súrsað Kraftar ofl. Sætabrauð Lærðu að borða hollan og góðan mat og léttast um leið með íslensku viktarráðgjöfunum. www.vlgtarradgjafamlr.ls Jm

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.