blaðið

Ulloq

blaðið - 29.09.2006, Qupperneq 20

blaðið - 29.09.2006, Qupperneq 20
blaóió Útgáfufélag: Stjórnarformaður: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfuiltrúi: Ár og dagur ehf. SigurðurG.Guðjónsson Sigurjón M. Egilsson Brynjólfur Þór Guðmundsson og Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Janus Sigurjónsson Búið í bili Virkjunarsinnar hafa náð sínu fram. Hálslón er að verða til og í það rennur eyðilegging á hverri sekúndu. Við erum mörg sem vöknuðum of seint, gerðum okkur ekki grein fyrir hversu tröllslegar framkvæmdirnar voru fyrr en um seinan. f upphafi voru fáir mótmælendur sem stóðu með spjöld en sögðu fátt. Leikurinn hefur æst, fleiri hafa bæst við og þunginn er mikill. En sennilegast er allt um seinan. Hálslón fyllist, landið breytir um svip og rafmagn mun flæða í fabrikkuna á Reyðarfirði. Einhverjir verða ríkir, en það verður ekki allt. Áhrifin verða mikil. Þessi mesta framkvæmd íslandssögunnar mun halda uppi minningu þeirra sem mest börðust til að allt þetta yrði að veruleika og líka þeirra sem mest hafa lagst gegn framkvæmdunum. Trúlega munu komandi kyn- slóðir minnast andstæðinga virkjunarinnar af meiri lotningu en þeirra sem vildu virkja. Það segir talsvert um þjóð að hún skuli ekki eiga annars úrkosti til að verða ríkari, en að leggja jafn mikið undir og raun er á. Ekki er laust við að efast verði um framsýni þeirra stjórnmálamanna sem mest áhrif höfðu á að virkjunin og álverið verða að veruleika. Aðrir atvinnuvegir hafa liðið fyrir skekkjuna sem varð í efnahag þjóðar- innar, ekkert hefur gengið eftir af þeim vætningum sem voru um atvinnu fyrir Islendinga við gerð virkjunarinnar og álversins. Og Hagstofan segir Islendingum fækka á Austurlandi. Vissulega mun þjóðin fá tekjur af álver- inu í langan tíma, en það eitt getur ekki lengur réttlætt allt sem gert hefur verið. Þau rök dugðu áður fyrr, rétt einsog áður viðgekkst að mengun væri urðuð í jörðu og altalað var að lengi tæki sjórinn við og í hann var settur allur fjandinn. Nú eru aðrar kröfur og þær munu meðal annars verða til þess að aldrei aftur verður leitað lausna til að bæta fjárhag þjóðarinnar eða einstakra byggða með öðru eins og gert var á Kárahnjúkum. Með afli þeirra sem hafa frá upphafi mótmælt virkjuninni og því afli sem því fólki héfur bæst á leiðinni hefur orðið til stífla, stífla sem stjórn- málamenn framtíðarinnar komast ekki yfir. Aldrei aftur skal verða gripið til eins róttækra aðgerða til reddingar, ekki til að bæta þjóðarhag, ekki til að bæta hag einstakra sveitarfélaga og ekki til að auka fylgi stjórnmála- flokka, jafnvel þó ömurlega standi á hjá þeim. Það sem lærist af því sem gert hefur verið verður vonandi að hér eftir verði farið hægar, gert minna og litið meir til framtíðar. Fari svo að and- mælin nú komi í veg fyrir fleiri svo stórtækar aðgerðir má segja að stríðið vinnist en orrustan hafi tapast. Fórnarkostnaður verður mikill en hugsan- lega verður ávinningur fyrir aðrar perlur í náttúru fslands einnig mikill. Þeir sem njóta munu mest í efnalegu tilliti af tröllslegum framkvæmdum á Austurlandi geta ekki látið einsog tugþúsundir Islendinga hafi ekkert um málið að segja, að þeim komi þetta ekkert við. Sigurjón M. Egilsson Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins 20 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 blaóió Höfundarréttur í pólitík Stjórnmálabaráttan tekur stundum á sig skrýtnar myndir. Að undanförnu höfum við séð tvö áhugaverð dæmi um það, sem bæði tengjast Samfylkingunni, þótt vissulega komi fleiri við sögu. I báðum tilvikum snýst deilan ekki um stefnumálin eða tillögurnar sem slíkar, heldur fremur um höf- undarrétt að hugmyndunum. Einkaleyfi á umhverfisstefnu Fyrra málið tengdist umhverfis- málum. Eftir að þingflokkur Sam- fylkingarinnar kynnti umhverfis- stefnu sína á dögunum brugðust Vinstri grænir ókvæða við og töldu að þarna væri beinlínis um að ræða tilraun til að hnupla helsta baráttumáli sínu. Samfylkingin væri ótrúverðug í ljósi fyrri verka á þingi og í sveitarstjórnum og flokkurinn væri aðeins að reyna að gera út á tískustrauma í sam- félaginu í aðdraganda kosninga. Samfylkingarmenn hafa á móti bent á að Rannveig, Þórunn og Mörður hafi talsvert haft sig frami í þessum málum, en eiga samt sem áður í erfiðleikum með að útskýra stefnubreytingu annarra kjörinna fulltrúa sinna. Vafalaust hafa báðir nokkuð til síns máls. Samfylkingin á við trúverðugleikavanda að stríða í þessum málaflokki eins og svo mörgum öðrum og ýmislegt bendir til að stefna flokksins hafi í ýmsum efnum mótast af sömu sjón- armiðum og fram koma af hálfu Vinstri grænna. Vinstri grænir eru líka helst til frekir þegar þeir halda fram einkarétti sínum til að fjalla um umhverfismál. Því hafa áhugamenn um málaflokkinn úr öllum stjórnmálaflokkum fengið að kynnast. Birgir Ármannsson Skattalækkun á matvæli En flokkurinn sem hafnar eignar- rétti Vinstri grænna á hugmyndum á sviði umhverfismála hefur síð- ustu daga staðið í mikilli baráttu til að verja meintan höfundarrétt sinn á tillögum um lækkun matar- skatts. Gagnrýni þeirra hefur ann- ars vegar beinst að ríkisstjórninni, sem eins og kunnugt er vinnur nú að útfærslu hugmynda um skattalagabreytingar til að lækka matarverð, og hins vegar að okkur, nokkrum þingmönnum Sjálfstæð- isflokksins, sem höfum fjallað um þetta mál í fjölmiðlum. Má helst skilja málflutning Samfylkingar- manna svo, að við höfum engan rétt til að láta í ljós sjónarmið um þetta efni, þar sem Samfylkingin hafi fundið upp málið. Nú er það skoðun mín að ekki skipti öllu máli hvaðan gott kemur. Hins vegar er nauðsynlegt af þessu tilefni að rifja upp að lækkun mat- arskatts úr 14% í 7% var stefnumál Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu kosningar. Kosningastefna Sam- fylkingarinnar var kynnt snemma í apríl og var þar vissulega að finna tillögur um sambærilega lækkun. Fyrir þann tíma lá ekki fyrir skýr stefna af hálfu flokksins í þeim efnum frekar en öðrum skatta- málum. Skattamál höfðu raunar verið mjög til umræðu á þessum tíma en frambjóðendur Samfylk- ingarinnar höfðu verið afar utan- veltu í þeim. Eftir kosningar var um það samið milli ríkisstjórnarflokk- anna að taka virðisaukaskattinn til endurskoðunar á kjörtímabil- inu með það að markmiði að bæta hag almennings. Sú vinna stendur yfir og hefur komið fram að niður- stöðu er að vænta fljótlega, en því er auðvitað ekki að leyna að ég og fleiri hefðum kosið að niðurstaða fengist fyrr. En því má heldur ekki gleyma að allt þetta kjörtíma- bil hafa ríkisstjórnarflokkarnir unnið að skattalækkunum - skref fyrir skref - öllum almenningi til hagsbóta. Frá upphafi lá fyrir að þær breytingar kæmust á dagskrá undir lok tímabilsins. En það er auðvitað niðurstaðan sem skiptir máli fyrir almenning í landinu. Þegar hún liggur fyrir sjá allir að höfundarréttardeilan er hártogun ein.. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Klippt & skorið S Aheyrendur kvöldfrétta Ríkisútvarpsins fengu í fyrrakvöld að heyra álit „eins forsvarsmanna" Þjóðarhreyfingarinnar á lyktum varnarmálaviðræðna Bandaríkjanna og íslands. Eða eigum við kannski bara að segja að þeir hafi heyrt í öðrum félaga hennar, Hans Kristjáni Árnasyni? Hreyfingin boðar svo til „þjóðhátíðarinnar Vopnin kvödd" í NASA klukkan 14.00 á sunnudag, en aðalræðumaður þar verður bróðir hins félaga Þjóðarhreyfingar- innar, Jón Baldvin Hannibalsson. Islenskum fánasölum til óblandinnar ánægju skorar hreyfingin á þjóð sína að flagga þegar landið er orðið herlaust, en kjörorðið er: „Skjótum upp fána og skundum áNASA!" að leiðir hins vegar hugann að því að hljóðara hefur verið um forystu annarrar fjöldahreyfingar, RJF-hóþsins (Réttlæti —Jafnræði — Frelsi), sem frelsaði Bóbó Fischer hér um árið. Mætti þó ætla að hún gæti fundið Ésér næg baráttumál. Sem dæmi mætti nefna íslenska hestinnMax,sem RJFgæti beitt sér fyrir að leysa úr vændisánauð á jósku heið- unum. Enn fremur kæmi til greina að krefjast þess að dönsk stjórnvöld leystu tafarlaust úr haldi hina íslensku hrafna sem haldið er föngnum í dýragarðinum í Kaup- mannahöfn. I framhaldi af því væri svo rétt að minnast íslensku handarbeinanna sem eru til sýnis í Mannfræðisafninu við Trocadéro í París. Höndina heim! Iðnnjósnir fyrrverandi starfsmanna ís- lenskrar erfðagreiningar hafa vakið mikla athygli, enda er ákæran líkust reyfara yfirlestrar og Ijóst að læknirinn Hákon Há- konarson hefur leikið mjög tveimur skjöldum. En það er skrýtið að lesa það haft eftir Særúnu Maríu Gunnarsdóttur, lögfræðingi Persónuverndar, í Fréttablaðinu að innanhús- rannsókn Erfðagreiningar kunni að varða við lög. Á vef Persónuverndar eru nefnilega starfs- reglur stofnunarinnar sjálfrar um meðferð tölvupósts og af þeim verður ekki annað sáð en að hún praktíseri það, sem lögfræðingurinn telur vafa undirorpið hjá Erfðagreiningu! andres.magnusson@bladid.net

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.