blaðið - 29.09.2006, Side 23
blaöiö
FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2006 23
Andríkir umhverfissinnar
Þau eru sannarlega eftirtektarverð
skrif Sigríðar Andersen prófkjörs-
frambjóðanda í Blaðinu síðastliðinn
miðvikudag. Strax í fyrstu línum
sínum tekst henni á snilldarlegan
hátt að afgreiða alla aðra en hægri-
menn sem óþekk börn sem hafi
hrifsað til sín og eignað sér grænu
málin, sem væntanlega voru þá eign
Sjálfstæðisflokksins. Taka þurfi á
þeim af festu svo þeir gangi ekki á
lagið. í næstu setningu kemur ein-
staklega glöggskyggn söguskýring
hennar á því útsmogna áróðurs-
Holur hljómur
í umhverfis-
umræðu
hægri manna
Dofri Hormannsson
bragði vinstriflokkanna að reyna að
troða forskeytunum alþýðu- og sam-
inn í nöfn sín til að höfða til almenn-
ings. I þriðju setningu bendir hinn
skarpi þjóðfélagsrýnir á ákveðið
hegðunarmynstur, sama fólk hafi
einnig hrifsað til sín jafnréttismálin
og meira að segja gengið svo langt
að stofna sérstakt kvennaframboð í
þessu skyni.
Sigríður hefur um nokkurt
skeið verið einn af ritstjórum á
Vef-Þjóðviljanum (www.andriki.
is), vefsíðu nýfrjálshyggjumanna,
og það er sérstakur fengur í því
fyrir illa upplýst fólk að fá nú loks
að njóta skrifa hennar á síðum
dagblaðanna.
Sérstaklega er áhugavert að
fylgjast með því hvað hugmynda-
heimur hinnar ungu sjálfstæðis-
konu er algerlega ómengaður af
allri umræðu síðustu ára þegar
kemur að umhverfismálum. Hin
hreina trú hennar á að nýfrjáls-
hyggjan og eignarréttur einka-
aðila eigi „sjálfsprottnar lausnir“
þegar kemur að verndun náttúru-
gersema þjóðarinnar gegn óaftur-
kræfum framkvæmdum einkaað-
ila er aðdáunarverð.
Það er gott að vefrit ungra bar-
áttumanna fyrir nýfrjálshyggju
innan Sjálfstæðisflokksins, sem
til skamms tíma var eini fjöl -
miðill landsins sem dró í efa nið-
urstöður vísindasamfélagsins
um hlýnun loftslags af manna
völdum, skuli eiga skjól í þvílíkum
ritstjóra sem Sigríði. Þetta segi ég
því, þrátt fyrir að á www.andriki.
is megi finna á annan tug greina,
sem vefengja áhrif mannsins á
hlýnun andrúmslofts, var um dag-
inn sem trúin hefði svikið einn
ritstjóranna, Glúm Jón Björnsson.
1 Kastljósviðtali þar sem hann
mætti Árna Finnssyni, formanni
Náttúruverndarsamtaka íslands,
til að ræða mynd Al Gore, An In-
convenient Truth, reyndist hann
ekki lengur hafa neina slíka skoðun
og taldi líkt og formaðurinn afar
brýnt að bregðast við hættunni sem
af gróðurhúsaáhrifunum stafaði.
Ekki minnist ég þess að hann talaði
neitt um „sjálfsprottnar lausnir“ í
þeim efnum. Fleiri hættumerki eru
á himni ungra nýfrjálsra sjálfstæð-
ismanna því nú sér einnig undir
iljar Illuga Gunnarssonar á harða-
hlaupum frá hálfs árs gömlum efa-
semdum sínum í þessu sama efni.
Það er því mikil þörf í Sjálfstæðis-
flokknum fyrir unga konu eins og
Sigríði Andersen, konu sem stendur
föstum fótum í hugmyndafræði ný-
frjálshyggjunnar þegar samherjar
hennar láta glepjast af villukenn-
ingum í umhverfismálum. Sjálfstæð-
iskonu sem ekki þarf stuðning jafn-
réttissjónarmiða eins og kynsystur
hennar í vinstri flokkunum, konu
sem metin er af verðleikum sínum
sem meðal annars felast í einstaklega
skarpri sýn á samfélag sitt og næmu
auga fyrir „sjálfsprottnum lausnum".
Sjálfstæðisflokkurinn er fullsæmdur
af slíkum frambjóðanda og ég óska
henni góðs gengis prófkjörinu.
Höfundur er varaborgarfulltrúi
Samfylkingarinnar.
Firði Hafnarfirði | Sími 565 0073
Jakkaföt, frakkar,
leðurjakkar,
stakir jaklar,
gallabmáir.
Ii íflFl irTTKií TTrul
|