blaðið - 29.09.2006, Side 33

blaðið - 29.09.2006, Side 33
FÖSTUDAGUR 29.. SEPTEMBER 2006 33 tómatsúpa Á haustdögum þegar margir þjást af hinni árlegu flensu er fátt betra en heit og Ijúf súpa í kroppinn. Helga Mogensen hjá Maður lifandi kann ýmislegt fyrir sér í matargerðarlistinni og þessi yndislega súpuuppskrift er ættuð úr hennar bókum. Þessi kókoslagaða tómatsúpa er frábær með nýbökuðu brauði og vel völdum osti. Njótið vel. 2 dl olía lífræn 1 laukur saxaður 2 gulrætur rifnar 3 hvítlauksrif söxuð ' 5 bollar grænmetissoð œ 2 dósir niðursoðnir tómatar lífrænir fra Bode 1/2 tsk timjan ■ 1/2 tsk malaður svartur pipar 1 lárviðarlauf 1 dós kókósmjólk salt eftir smekk. Steikið kryddið og grænmetið saman og leyfið að krauma þar til grænmetið er mjúkt. Hellið soðinu saman við. Sjóðið í 15 mínútur. Sett í matvinnsluvél og maukað, síðan aftur í pottinn og núna er komið að því að bæta við tómötunum og kókósmjólk ásamt því að smakka súpuna til og bæta við kryddum ef með þarf. Einfalt og gott Spagettí carbonara er einn af þessum einföldu, ítölsku réttum sem til eru í ótal útgáfum. Fátt er eins gott eftir langan vinnu- dag og vel heppnað carbonara með góðu brauði og glasi af þurru hvítvini. Hér á eftir fylgir uppskrift sem hver og einn getur svo lagað eftir sínu höfði. ■ 400 g spagettí ■ ólífuolía ■ 2 hvítlauksrif ■ nokkrar sneiðar beikon ■ 2egg b 2-3 msk rjómi B parmesanostur B salt og pipar Sjóðið spagettí samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum. Beikonið skorið í litla bita og steikt með hvítlauknum í olíunni. Þegar beikonið er orðið dökkt er hvítlaukurinn fjarlægður. Eggin eru hrærð með parmesan- osti og rjóma. Kryddið hræruna með salti og pipar. Þegar spa- gettíið er soðið er eggjahrær- unni hellt yfir og einnig beikon- bitunum sem haldið hefur verið heitum í olíunni. Borið fram með parmesanosti, góðu brauði og hvítvíni. _ Pólskur markaður Á laugardaginn klukkan 12 til 17 gefst gestum kostur á að heimsækja pólskan markað i Ráðhúsi Reykjavikur þar sem i boði verður hefðbundinn pólskur matur. Áhugamenn um matarmenningu ættu ekki að láta hann fram hjá sér fara. KÍVÍ Til að auðvelda sér að borða hinn ijúffenga ávöxt kivi er tilvalið að nota eggjaskera til þess að sneiða hann niður. Basilika á hvers manns disk Basilika er frábær kryddjurt sem nýtist í allt mögulegt. Til dæmis er upplagt að laga sitt eigið pestó, klippa ilmandi blöðin út í Ijúffenga lasagnasósu eða nota í hverskyns dressingar. Nú er orðið nokkuð áliðið en þó er enn hægt að kaupa nokkuð sprækar basilikuplöntur í búðum borgarinnar. Það er tilvalið að fjárfesta í ódýrum leirpottum og mold og umpotta plöntunum. Svo er þeim komið fyrir (eldhúsglugg- anum og ef plönturnar fá nægt vatn og sæmilega birtu ættu þær að geta lifað í nokkrar vikur og gefið af sér glansandi fín blöð til hverskyns matargerðar. Hér er uppskrift að prýði- legri pítusósu sem öfugt við flestar slíkar er ákaflega holl. Verslun okkar Antikbúðina við Hlemm á Laugavegi 118, neðri hæð KAUPUM OG SELJUM afsláttur a-f öllu vegna stækkunnar Antikbúðin Hlemm Sími: 552 8222

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.