blaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 20

blaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 20
blaðiö Útgáfufélag: Árogdagurehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Fréttastjórar: Brynjólfur Þór Guðmundsson og Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Ritstjórnarfulltrúi: Elín Albertsdóttir Týndi kærleikurinn Höfum við týnt náungakærleikanum? Er desember að snúast upp í stress, pirring og skapvonsku? Höfum við gleymt af hverju jólin eru haldin hátíðleg? Þegar stórt er spurt verður stundum fátt um svör. Fréttir í þessum mánuði hafa ítrekað fjallað um skapofsa fólks og geðillsku. Stutt er síðan fréttir bárust af viðskotaillum bílstjórum sem ré^ust að lögreglu með fúkyrðum þar sem banaslys hafði orðið á Vesturlandsvegi og stöðva þurfti alla umferð. Um helgina var sagt frá flugdólgi sem skilinn var eftir í Kanada vegna óláta í flugvél sem var á leið til Islands frá Kúbu. í fyrradag sagði Umferðarstofa frétt af manni sem reyndi að troðast í bílastæði fyrir fatlaða, þar sem bíll var fyrir. „Við þessar tilraunir fór viðkomandi utan í bílinn og skemmdi hann töluvert. Það sem má telja einstakt í máli þessu er að sá sem olli tjón- inu lét sig hverfa af vettvangi en skildi eftir miða á bílnum, sem hann hafði skemmt, og á miðanum voru skilaboð um það að sá fatlaði ætti að skammast sín fyrir að leggja svona stórt stæði undir bifreið sína. Það skal tekið fram að bílastæði fyrir fatlaða eru stærri en gengur og gerist því gert er ráð fyrir aðgengi hjólastóla í kringum bílinn. Aðeins er gert ráð fyrir einni bifreið í hvert merkt stæði.“ Svo segir í frétt Um- ferðarstofu og beðið er um vitni að atburði þessum. Venjulegt fólk sem alið er upp við kurteisi og almenna mannasiði verður auðvitað kjaft- stopp við slíkar fréttir. Þetta gerist nokkrum dögum fyrir jól. Fréttir af auknu ofbeldi í miðbæ Reykjavíkur eru orðnar daglegt brauð og lögreglumenn telja starf sitt hættulegra en nokkurn tíma áður. Hnefar eru á lofti og orðbragðið subbulegt svo jafnvel lögreglumönnum, sem eru flestu vanir, bregður í brún. Rætt er um að börn séu agalausari og erfiðari í skólum en áður hefur þekkst og vitað er um dæmi þess að verslunarfólk þurfi að fara á sérstök sálfræðinámskeið til að læra að umgangast erfiða viðskiptavini. Það er virkileg ástæða til þess að hafa áhyggjur af þessari þróun og spyrja hverju sé um að kenna. Af hverju hagar fólk sér með þessum hætti? Það eru ekki svo ýkja mörg ár síðan við gátum státað af því að vera friðelskandi þjóð þar sem glæpir voru sjaldséðir. Hamingjusamasta þjóð í heimi ræður allt í einu ekki við skap sitt og lætur það bitna á síösuðu fólki og fötluðu. Hugarfar íslendinga hefur versnað eftir því sem þeir verða ríkari og betur menntaðir. Á árum áður þóttu það vera afbragðsstarfsmenn sem unnu árum saman hjá sama fyrirtækinu en nú er því fólki sparkað fyrir ódýrara vinnuafl. Allt snýst orðið um pen- inga, verðbréf og ríkidæmi. Óskandi væri að týndi kærleikurinn yrði dregin fram um jólin þótt ekki væri nema til að gefa sálinni frið á þess- ari miklu hátíð. Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn &auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Heimilisryksugur Aflmiklar og hljóðlátar Frábærhönnun VC 5200 / VC5300 ■'Afl: 1800/2000 w ■ Hepa 12 sía ■ Sérlega nett ■ Hæðarstilling á röri ■ 3.3 Itr poki HEPA 12 Sia hreinsar 99,5% óhreininda VC 6100/VC 6200 A 2204 / A 2604 ■ Sýgur blautt og þurrt ■ Einnig fyrir útblástu ■ 18 / 25 Itr tankur Snúra dregst inn Snúningshríngur á legu snýst 360° 4 lítra flíspoki ■ Afl: 1800/2000 w ■ HEPA 12 sía ■ Hæðarstilling á röri ■ Aukahlutir SKEIFAN 3E-F ■ SÍMI 581-2333 • FAX 568-0215 • WWW.RAFVER.IS 2 0 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 blaöið MEr SgAT f-A-P AœR °G SGeí Hp RTkiR^FGWiA/ SLiu^ oKukk" Lesblinda Þegar ég lít yfir árið og fer yfir helstu pólitísku verkefnin sem ég kom að leita málefni lesblindra barna í grunnskólunum strax á hugann. Slíkt mál rak á fjörur mínar og menntamálanefndar fyrr í haust og var mjög lærdómsríkt að fara í gegnum það. Enda lýsti það á margan hátt bæði skólanum og samfélaginu. Málið var þannig vaxið að drengur einn átti að þreyta sam- ræmt próf í íslensku í 7. bekk. I ljós kom að ekki var gert ráð fyrir að les- blindir nemendur fengju stuðning í 2. hluta prófsins sem mælir lesskiln- ing. Stuðning í því formi að textinn er lesinn fyrir barnið og lesskiln- ingur síðan mældur út frá því. Enda barnið lesblint. Niðurlæging námsáranna Samkvæmt svörum frá Námsmats- stofnun átti ekki að veita neinn stuðning við lesblinda nemendur í þessum hluta prófsins. Til hvers að mæla lesskilning hjá lesblindu barni þegar það blasir við að það gerir ekki annað en að niðurlægja barnið og valda því sársauka og vanlíðan? Ut úr því kemur ekkert annað. Það er búið að greina lesblinduna. Hvað ætluðu menntamálayfirvöld að gera við upplýsingar um getu les- blinds barns á samræmdu prófi? Veit það ekki en málið var tekið fyrir í menntamálanefnd og lesblind börn fengu í framhaldi af því þá aðstoð sem þau þurfa á prófinu. Þetta er fráleitt nógu gott enda var það lengi vel svo að lesblindum og talnablindum börnum var lítil sem engin athygli veitt í skólakerfinu. Þekkingin var ekki til staðar á blind- unni og þetta útbreidda vandamál var illa greint og því lítið sinnt. og leikurinn að læra Fjöldi fólks fékk því litla sem enga menntun út af því að það var ekki greint lesblint og því ekki veitt sú aðstoð sem það þurfti að fá. Enginn vafi er á því að lesblinda er valdur að ógöngum margra og því að leikurinn að læra varð að mar- tröð sem fjöldi barna upplifði sem linnulausa niðurlægingu af hálfu skólasamfélagsins. Leikur lærdómsáranna varð að martraðarkenndri niðurlægingu dag eftir dag. Vitaskuld hefur þetta batnað verulega en án efa þarf að rannsaka Viðhorf Björgvin G. Sigurðsson og kanna orsakir, afleiðingar og við- brögð við þeirri fötlun sem blinda þessi óneitanlega er. Halda vel utan um það hvernig skólinn bregst við og meðhöndlar þetta afdrifaríka vanda- mál margra barna. Það sem gerir mál þetta svona lifandi i minningunni eru m.a. þau miklu viðbrögð sem ég fékk. Meiri en við nokkru sambærilegu máli frá bláókunnugu fólki utan úr bæ. Frá foreldrum, kennurum og fólki sem hafði hrakist út úr skólakerfinu fyrr á ævinni út af lesblindu. Aldrei fengið greiningu eða þá hjálp sem við átti. Var sjálfsagt álitið tregt eða lítið upp á bókina. Nú eru nýir tímar og við eigum að taka þetta mál sem önnur mikilvæg málefni skólasamfélagsins traustum tökum. Ekki síður en aðbúnað þeirra afburðanemenda sem greiðast geta farið í gegnum skólann. Hættum með samræmd lokapróf Allt dregur þetta mál athyglina að innviðum skólakerfisins. Úreltu fyrir- komulagi samræmdra lokaprófa og allt of miklum áherslum á bóklegt nám á kostnað íþrótta, verknáms og listnáms. í haust lögðum við nokkrir þingmenn í Samfylkingunni fram frumvarp til laga um að leggja af samræmd lokapróf í grunnskólum. Því var vel tekið í skólakerfinu og við- brögð almennt góð. Samræmd lokapróf eru að mínu mati of mikil miðstýring í skólastarfi. Þangað færist meginþungi kennsl- unnar og starfið snýst i of miklum mæli um samræmdu greinarnar. Aðrar greinar sitja eftir og þar með margir nemendur. Prófin skapa að auki álag sem mörg ungmenni ráða illa við eða ekki. Þau flokka og raða nemendum með afar óheppilegum afleiðingum og búa til tapara í grunnskólanum. í rauninni er einn helsti tilgangur samræmdu prófanna að vera eins konar inntökupróf í framhaldsskól- ana. Sem slík eru þau óheppileg tæki og til eru betri og sanngjarnari leiðir til að velja nemendur í þá skóla. Með þessu frumvarpi leggur Sam- fylkingin til að aðrar leiðir verði farnar til kanna stöðu og getu nem- enda á lokaári grunnskóla í stað sam- ræmdra lokaprófa en sú breyting er eitt af grundvallaratriðum framsæk- innar skólastefnu. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Klippt & skorið Ossuri Skarphéðinssyni leiðlst ekki að skýra pólitíkina og var fljótur að leggja mat á uppröðun framsóknar- manna á lista í Reykjavíkurkjördæmunum (Guðjón Ólafur Jóns- son annar á eftir Jóni Sigurðssyni norðan- megin og Sæunn Stef- ánsdóttir er á eftir Jónínu Bjartmarzsunnan- megin). „Þetta er skrítin og fullkomlega órökrétt niðurstaða. Eðlilegast hefði verið að konan Sæunn fylgdi karlinum Jóni í fyrsta sæti í Norðurkjördæminu, og karl- inn Guðjón Ólafur kæmi á eftir konunni Jóninu í Suðurkjördæminu. Það hefði verið í anda jafnréttisins sem prédikað er (orði innan Fram- sóknar- en greinilega hafnað íborði." Þetta telur Ossur útsmoginn leik. Flétta Guðjóns, sem hann náði fram með tilstyrk strákabandalagsins í flokkseigendafélaginu, tryggir honum hins vegar að öllum líkindum öruggt þingsæti. Jón Sigurðsson hefur nefni- lega lýst sjálfum sér sem biðleik. Sýnt er að flokk- urinn geldur afhroð undir hans forystu, og engum blöðum að fletta að Jón verður búinn að segja af sér og kominn út af þingi í síðasta lagi um miðbik kjörtímabilsins." Þannig segir Össur að Guðjón Ölafur fái öruggt þingsæti en Sæunn, sem Össur lýsir sem langefnilegasta þingmanni Framsóknar, súpi hregg varaþing- mennskunnar því ekki hætti Jónína í pólitík. Ossur hlakkar yfir þessu og virðist ekki í vafa um hvernig á að túlka þetta. „Þetta speglar í hnotskurn sjálfsköpuð örlög Framsóknar. Bestu og efni- legustu þingmönnum hennar er ýtt út á klak- ann - og á meðan dregst flokkurinn upp og bætist á válista tegunda í útrým- ingarhættu." Svo líður og bíður og væntanlega kemur í Ijós á næsta kjör- tímabili hvort spádómur k Össurar rætist. Óhætt er þó að ætla að eitt- hvað sjái framsóknarmenn þetta með öðrum augum enda listar þeirra samþykktir á fundi þeirra i gær. brynjolfur@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.