blaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 22

blaðið - 20.12.2006, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 blaAiA Umrœðan Ragnar Óskarsson Látum Jólin, hátíð ljóss og friðar, eru að ganga í garð. Með ýmsum hætti undirbúum við hina miklu hátíð þar sem boðskapur friðarins er svo fyrirferðarmikill og áberandi. Engum ætti að blandast hugur um að friðarboðskapurinn er sá boð- skapur sem einmitt á mest erindi við mannkynið um þessar mundir. Þegar milljónir þjást vegna styrjald- arátaka og ofsókna víðs vegar um heim er nauðsynlegra en nokkru sinni fyrr að friðarsinnar láti til sín heyra og það með öflugum hætti. friðarboðskapinn rætast Jólin eiga að vera fólki áminning um að gerast frið- flytjendur um allan heim. ungum. Það er alkunna að stjórn- endur þeirra ríkja sem gjarna og jafnvel oftast taka sér orðin „man- réttindi og lýðræði" í munn eru í raun verstu óvinir mannréttinda og lýðræðis þegar öllu er á botn- inn hvolft. Og þessir stjórnendur eiga sér því miður hauka í horni á ólíklegustu stöðum vítt um heim. Allt friðelskandi fólk þarf að mót- mæla þeim hörmungum sem konur víða um heim búa við. Víða, sérstaklega á átakasvæðum, búa þær við stöðugan ótta um kerf- isbundnar nauðganir sem eru í raun ein ömurlegasta mynd af því ofbeldi sem beinist gegn konum. Allt friðelskandi fólk þarf að mót- mæla því hvernig gengið er á rétt náttúrunnar sjálfrar í miskunnar- lausri mynd. Virðingarleysið fyrir náttúrunni er víða svo mikið að furðu sætir. Mengun eykst sífellt og æ fleiri svæði í heiminum verða græðginni að bráð. Hér á landi hafa úndanfarið verið unnin stórfelld spjöll á náttúrunni, spjöll sem ekki verða aftur tekin og sem komandi kynslóðir munu sitja uppi með. Þegar við veltum ofangreindum umtalsefnum fyrir okkur kann svo að virðast við fyrstu sýn sem framtíðin sé ekki ýkja björt. Því þarf þó ekki að vera þannig farið. Svo framarlega sem friðarboðskap- urinn nær í raun eyrum manna, er von. Við skulum því öll breiða út þann friðarboðskap, láta hann hljóma sem víðast og freista þess að það beri árangur, að hann berist til og hafi áhrif á þá sem geta sann- arlega haft áhrif. Með því höldum við í vonina, vonina um betri heim. Látum friðarboðskapinn rætast. Höfundur er fyrrverandi bæjarfulltrúi ÍVestmannaeyjum. Allt friðelskandi fólk þarf að mót- mæla því að þjóðir, þjóðarbrot og minnihlutahópar víðs vegar um heim séu ofsótt og að framin séu á þeim skelfileg mannréttindabrot á hverjum degi. Víða um heim lítur hið svokallaða alþjóðasamfélag fram hjá þjóðarmorðum án þess að hreyfa legg né lið. Þannig fá kúgar- arnir greinileg skilaboð um að allt sé í raun í lagi og að þeir geti hagað sér að vild og fótumtroðið öll mannréttindi. Mannréttindahópar mega sín lítils við þær aðstæður. Allt friðelskandi fólk þarf að mót- og tæknilegum yfirburðum kúga mæla því að öflugustu iðnríki heilar þjóðir og valda íbúum fjöl- heimsins skuli með hervaldi sínu margra landa ómældum hörm- SMÁAUGLÝ 5INGAR blaðið-i SMAAUQLYSINGAR@BLADID.NET

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.