blaðið - 29.12.2006, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006
blaðið
INNLENT
LOGREGLAN
Fjórir handteknir
Fjórir hafa verið handteknir í
tengslum við rannsókn á vopnuðu
ráni í verslun 11-11 í Gilsbúð í
Garðabæ réttfyrir miðnætti í gær-
kvöldi. Mennirnir eru á tvítugsaldri.
FRAMTIÐARLANDIÐ
Engar fréttir af framboði
„Það er ekkert að frétta. Ég ímynda mér að yfir hátíðirnar hafi lítið
verið að gerast og fólk hafi verið að sinna öðrum málum,“ segir
Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður. Hann er einn þeirra sem
orðaðir hafa verið við hugsanlegt framboð af hálfu Framtíðarlands-
ins. Endanleg ákvörðun um framboðið liggur þó ekki fyrir.
ÁRAMÓT í REYKJAVÍK
3300 erlendir ferðamenn
Nú um áramótin verða alls um 3.300 erlendir ferðamenn á
hótelum og gistiheimilum í Reykjavík eða 10 prósentum fleiri en
á sama tíma í fyrra. Um jólin voru um 1.200 erlendir ferðamenn á
hótelum í Reykjavík og hafði þeim fjölgað um nær 50 prósent frá
því á jólunum í fyrra, segja Samtök ferðaþjónustunnar.
WM
Tékkland:
Nauðlent
vegna átaka
Rússneskri farþegaflugvél á
leið frá Moskvu til Genfar var
nauðlent í Tékklandi í gær eftir
að drukkinn farþegi efndi til
slagsmála um borð í vélinni og
krafðist þess að vélinni yrði
flogið annað.
Flugstjórinn tók þá ákvörðun
að lenda í Prag eftir að mað-
urinn hafði reynt að ráðast
á áhafnarmeðlim. Áhöfn og
farþegar vélarinnar náðu að yfir-
buga hann um borð og var hann
handtekinn við lendingu. Vélin
hélt að skoðun lögreglu lokinni
för sinni áfram til Genfar.
Suður-Kórea:
Fá peninga
í stað vændis
Stjórnvöld í Suður-Kóreu hafa
blásið til mikillar herferðar
gegn vændi í landinu. I því
skyni hafa þau lofað 400 þúsund
króna greiðslum úr ríkissjóði til
þeirra fyrirtækja þar sem flestir
karlkyns starfsmenn heita því
skriflega að kaupa ekki þjón-
ustu vændiskvenna að loknum
áramótaveislum fyrirtækjanna.
Á annað þúsund fyrirtækja hafa
tekið þátt í herferðinni.
Eftirliti með aldurstakmörkum á tveimur flugeldasölum ábótavant:
Unglingi voru seldar
hættulegar skotkökur
I Keypti stóran flugeld ■ Flugeldasalar lofa bót og betrun ■ Yfirlögregluþjónn telur málið alvarlegt
Eftir Val Grettisson
valur@þladid.net
Fjórtán ára stúlku voru seldar skot-
kökur hjá Flugbjörgunarsveit Reykja-
víkur og flugeldasölu Gullborgar sem
er í einkaeigu. Blaðið gerði úttekt
og fór blaðamaður með stúlkunni
í þrjár flugeldaverslanir. Þær voru
eins og fyrr segir Flugbjörgunarsveit
Reykajvíkur á Grjóthálsi, Gullborg á
Bíldshöfða og svo Björgunarsveitin
Ársæll í Skeif-
unni. Ein-
ungis Björg-
unarsveitin
Á r s æ 1 1
stöðvaði
stúlkuna
við kaupin.
L'm
/ JLv''
Keypti næststærsta flugeld-
inn Hrafntinna, fjórtán ára nemi,
fór í flugeldasölur og reyndi að
kaupa flugelda sem ekki má
selja unglingum.
Stór pizza
með 2 áleggjum
Kr. 1.199
Fyrst var farið til Flugbjörgunar-
sveitarinnar. Þar bað stúlkan um
skotköku og fékk svokallaða Auði
djúpúðgu. Kakan er kyrfilega merkt
með 16 ára aldurstakmarki. Kakan
er tuttugu og fimm skota og er því
flokkuð sem þriðja öflugasta gerð
flugelda. Samkvæmt skilgreiningu
laganna er hún þá næsthættulegasti
flugeldurinn. Fjórði flokkur er ólög-
legur og ekki seldur í búðum.
Við kaupin var stúlkan hvorki
spurð um aldur né skilríki.
Næst var haldið í Gullborg sem er í
einkaeigu. Stúlkan lék sama leikinn.
Fór inn og keypti skotköku. Þar fékk
hún svokallaða Akrafjalls-skotköku.
Hún er talsvert stærri en Auður
djúpúðga eða 49 skota kaka. Hún er
í sama flokki og sú fyrri. Kakan var
ekki merkt aldurstakmörkum þrátt
fyrir að það sé skylda samkvæmt við-
auka reglugerðar um flugelda.
Líkt og hjá Flug-
björgunarsveitinni
var hvorki spurt um
aldur né skilríki.
Að lokum var farið
í Skeifuna en þar er
Björgunarsveitin Ár-
sæll til húsa. Tekin var
sú ákvörðun að kaupa
svokallað Víti. Ástæðan er sú
að Víti hefur notið mikilla vin-
sælda hjá unglingum en ólöglegt
er að selja þeim það.
Þegar stúlkan ætlaði að kaupa
Vítið spurði afgreiðslumaður hana
um aldur. Hún svaraði þvi satt og
fékk ekki afgreiðslu.
„Það er bagalegt að heyra þetta,“
segir Jón Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Landsbjargar. Hann segir það
flugeld/
C"
'í-zz
PS
Björgunarsveitin Arsæll Spurði stúlkuna
um aldur og vildi ekki selja henni svokallað
Viti sem er afar vinsælt hjá unglingum.
miður að ekki hafi verið farið betur
eftir reglunum. Landsbjörg hefur
sett öryggið á oddinn en þeir hafa
dreift frium hlífðargleraugum og
gert myndband þar sem hættan
við misnotkun flugelda er ítrekuð.
Einnig á að vera sérstakur öryggis-
fulltrúi á hverjum stað sem á að fyrir-
byggja svona mistök. Jón segir Lands-
björg fara yfir málið og brýna fyrir
sínu fólki að gera betur.
„Við getum ekki spurt hvern og
einasta um skilríki,“ segir Guðný
Guðmundsdóttir, einn af eigendum
Gullborgar, um ástæður þess að
stúlkunni var seld skotkaka. Hún
segir að þetta hafi gefið tilefni til
þess að ítreka fyrir starfsfólki nauð-
syn þess að vera vel vakandi fyrir
ungum krökkum sem vilja flugelda.
Gullborg hefur lengi selt flugelda
eða frá 1983 að sögn Guðnýjar og
því mikilvægt fyrir hana að farið
sé eftir settum reglum. Aðspurð
hvers vegna flugeldarnir séu ekki
merktir með aldurstakmörkum
segist Guðný telja að ekki sé nauð-
synlegt að hafa slíkar merkingar á
þessum skotkökum.
„Þetta er grafalvarlegt mál og það
Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur
Seldi stúlkunni skotkökuna Auði
djúpúðgu sem er flokkuð sem næst-
hættulegasti flugeldurinn.
Flugeldasala Gullborgar Seldi
stúlkunni skotkökuna Akrafjall sem
er öflugri en sú sem hún fékk hjá
Flugbjörgunarsveitinni.
verður skoðað,“ segir Geir Jón Þóris-
son, yfirlögregluþjónn í Reykjavík.
Hann segir að það sé góð og ærin
ástæða fyrir því að reglurnar voru
settar í upphafi. Hann segir að al-
varleg slys hafi komið upp og vill
ekki að það endurtaki sig.
Guðmundur í Byrginu kærður:
Opnunartími:
Virka daga 16-22
Um heigar 12 - 22
TVÆR Á
2.000
Yfirvöld funda um "
PflPINOS
P I Z Z fl
Núpalind 1
Kópavogi
Hverafold 1-5
Grafarvogi
Hækkaðu þig
upp um einn
9
5? 12345
Reykjavikurvegi 62
Hafnarfirði
Fulltrúar félagsmálaráðuneyti-
sins funduðu síðdegis í gær um mále-
fni meðferðarheimilsinsins Byrgi-
sins með fulltrúum Velferðarsviðs
Reykjavíkurborgar.lögreglustjórans
í Reykjavík, landlæknisembæt-
tisins og Fasteigna ríkissjóðs.
Fundurinn var liður í upplýs-
ingaöflun félagsmálaráðuney-
tisins um starfsemi Byrgisins
að Efri-Brú í Grímsnesi og
um aðstæður skjólstæðinga
sjálfseignarstofnunarinnar.
Ung kona hefur kært Guðmund
Jónsson forstöðumanns Byrgisins
vegna kynferðisafbrots og fjársvika.
„Málið er nú til skoðunar og verið
að fara yfir þau gögn sem lögð voru
fram,“ segir Sigurbjörn Víðir Egg-
ertsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn
lögreglunnar í Reykjavík.
Ólöf Ósk Erlendsdóttir, fyrrum
vistmaður í Byrginu, hefur lagt
fram tvíþætta kæru gegn Guð-
mundi Jónssyni, framkvæmda-
stjóra Byrgisins, og lagði fram ýmis
gögn um samband sitt við hann.
Lögreglan er nú að fara yfir gögnin
og getur ekki staðfest enn hvort
þau sanna kynferðissamband þe-
irra tveggja.
Sigurbjörn Víðir á von á niður-
stöðu fljótlega eftir áramót. „í
kjölfarið verður skoðað hvaða lög-
Veríð að fara yflr
þau gögn sent
lögð voru fram.
Sigurbjörn Víöir Egg-
ertsson, aöstoöaryfir-
lögregluþjónn
regluembætti rannsakar málið
og hvar hugsanleg ákæra verður
lögð fram,“ segir Sigurbjörn. „Að
svo stöddu hefur ekki verið rætt
við Guðmund um þessi gögn. Það
hefur enginn annar haft samband
við okkur vegna svipaðra saka og
engin önnur kæra borist.“
Óskum CancCsmönnum öCCum gCeðíCegs drs ogfríðar d nýju drí.
yeCkomín d J-CereforcCsteíkfiús dríð 2007
511 3350
Lnugavegur 53b • 101 ReyLjrtvík
5 11 3350 • www.herefortl.is
Tígendur og starfsfóCk 3fereforcCsteíCClússpakkcir
víðskíj)tavínnm scnnskiptín cí drínu sem er cið Cíða.
Borðapantanir
MereforcCnautasteikurncir eru rómaðar, fú veCur stœrð, steíkingu og meðCætí. Magnað!