blaðið - 29.12.2006, Page 16
16
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006
bla6iö
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Rjúkandi sala yfir
hátíðarnar?
„Við erum mjög ánægð með móttökurnar á tónleikunum
og diskunum sem voru gefnir út."
Björgv in Hn lldórsson
tónlistnrmaður
Alcan í Straumsvík tók sig til og gaf mynddisk af tónleikum Björgvins Hall-
dórssonar í Háskólabíói síðastliðið sumar inn á hvert heimili í Hafnarfirði.
Alls átta þúsund diskum var dreift en til þess að ná gullsölu þarf að selja
fimm þúsund eintök.
HEYRST HEFUR...
K B BANKI
Ymsar vangaveltur áttu sér
stað í sambandi við auglýs-
ingar sem birtust í blöðunum í
gær frá KB banka, sérstaklega
sköpuðust vangavelturnar í
höfðum þeirra sem eru með
bankaviðskipti sín þar. Auglýs-
ingarnar sýna grátandi andlit
starfsmanna bankans sem eru
að láta af störfum hjá KB banka
og síðan er búið að krota yfir
gamla nafnið. Nú bíða margir
spenntir eftir að hulunni verði
svipt af nýja nafninu og munu
þá væntanlega birtast auglýs-
ingar með glöðum og hlæjandi
nýjum starfsmönnum. Hvort
þessari nafnbreytingu í Kaup-
þing fylgir endurráðning gam-
alla starfsmanna eða eingöngu
nýir starfsmenn á eftir að koma
i ljós.
\T okkrar umræður sköpuðust
1 > á bloggsíðum vegna gjafar
Alcan til Hafnfirðinga en eins
og greint var frá í Blaðinu í gær
var gjöfin
diskurinn
hans Bó vaf-
inn í álpappír.
Þessi síðbúna
jólagjöf sem
allir bæjarbúar i Hafnarfirði
fengu inn um lúguna hefur væg-
ast sagt vakið hörð viðbrögð.
Þannig segir Sigmar frá því
á bloggsíðu sinni að Hafnfirð-
ingar sem hann hafi heyrt í líki
gjöfinni við að opna póst með
miltisbrandi. Nú er diskurinn
hans Bó einn söluhæsti diskur-
inn fyrir jólin og því má leiða
líkur að því að hann finnist nú
þegar á mörgum heimilum í
Hafnarfirði. Engum sögum fer
af því hvort á disknum leynist
skiptimiði sem geri Hafnfirð-
ingum kleift að skunda út t
búð og skipta gripnum fyrir
einhvern annan en það er lík-
legt að álagið við skiptikassann
muni aukast milli jóla og nýárs
sökum gjafarinnar frá Alcan.
Ellý ásamt strákunum
sínum tveimur, Ármanni
Elíasi og Einari MexÆtl-
ar að eyða áramótunum
með landsmönnum öllum.
Helgin mín
Stendur áramótavaktina
Ellý Ármannsdóttir er íslend-
ingum vel kunn en hún starfar
meðal annars sem þula í sjónvarpi
allra landsmanna. Ellý mun kynna
dagskrána á síðasta degi ársins og
bjóða landsmönnum gleðilegt nýtt
ár. Ellý er líka ritstýra Hér og nú
og hennar síðasta verk fyrir blaðið
á þessu ári var að svipta hulunni af
því sem nýja árið mun bera í skauti
sér. Völvan spáir meðal annars heil-
miklum hasar í pólitikinni þar sem
Geir og Ingibjörg Sólrún sameinast
í eina sæng að loknum kosningum
í vor og ýmsar sviptingar munu
verða í fjölmiðlaheiminum á kom-
andi ári.
Kvöldið sem allir eru að horfa
Ellý er annars búin að eiga yndis-
leg jól í faðmi fjölskyldunnar. Strák-
arnir hennar tveir verða hjá pabba
sínum um áramótin þannig að
henni fannst tilvalið að standa vakt-
ina í Sjónvarpinu yfir áramótin. „Ég
er ekki frá því að ég sé með örlítinn
fiðring í maganum fyrir kvöldið
þar sem þetta er kvöld sem allir
landsmenn eru að horfa,“ segir Ellý
en bætir við að stressið sé kannski
líka tengt því að hún sé barnshaf-
andi og því aðeins viðkvæmnari en
venjulega.
„Þetta er eina kvöldið á árinu þar
sem allt þarf að vera upp á sekúndu.
Nýja árið gengur jú í garð á slaginu
tólf þannig að það má engu hnika
þegar kemur að því að kynna dag-
skrána. Það er alltaf viss stemning
sem fylgir því að vinna á þessu kvöldi
og ég hlakka til. Það er einstaklega
gott andrúmsloft á Sjónvarpinu og
þar vinnur skemmtilegt fólk.“
Aldrei að vita hverjir
koma í heimsókn
Ellý segir að hún muni að sjálf-
sögðu setjast niður og horfa á ára-
mótaskaupið á milli kynninga. „Ég
horfi á skaupið með þeim Sigga og
Pétri sem eru útsendingarstjórar
þetta kvöld og ætli við fáum ekki
konfekt og jólaöl til að hafa með
skaupinu," segir Ellý og bætir við
að síðan sé aldrei að vita hverjir líti
við í upptokuklefann þetta kvöld.
„Það er mjög reimt í Efstaleitinu og
stundum koma gestir í heimsókn á
meðan ég er að lesa kynningar. Ég
hugsa að þar séu gamlir starfsmenn
sjónvarpsins á ferð. Það virðist
vera svo gaman að vinna hjá Sjón-
varpinu að það er erfitt að slíta sig
þaðan,” segir Ellý og hlær.
Eftir að vaktinni líkur á gaml-
árskvöld ætlar Ellý að fara heim til
tengdaforeldra sinna þar sem mað-
urinn hennar bíður eftir henni og
fagna áramótunum með honum
og fjölskyldu hans. „Ég er búin að
eiga mjög gott ár og eignaðist meðal
annars bestu tengdaforeldra í heimi
á árinu. Ég ber líka miklar vonir til
ársins sem í vændum er og veit að
það verður gott ár. Ég á von á mér
á afmælisdaginn minn sem er þrett-
ándi maí en ég geng með stelpu og
er farin að hlakka mikið til,” segir
Ellý að lokum.
loa@bladid.net
SU DOKU talnaþraut
2 6 3 8 9 1 7 4 5
4 7 1 5 2 3 8 9 6
S 8 9 4 6 7 1 2 3
1 3 7 6 5 9 2 8 4
8 9 2 3 7 4 5 6 1
6 4 5 1 8 2 9 3 7
3 2 6 7 1 8 4 5 9
9 1 4 2 3 5 6 7 8
7 5 8 9 4 6 3 1 2
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
2 6 1 4
7 5 2 9
5 9 2
1 5 9 4
8 2 7 4 5
1
3 7 5
9 4 2 3 8
5 8 4 6
Ég sagði að hún ætti að fara
utan um hálsinn á þér!
Á förnum vegi
Ætlarðu að strengja
áramótaheit?
Sigurbjörg Bergsdóttir, banka-
starfsmaður:
Já, ég ætla að hreyfa mig meira.
Ingólfur Eyberg, nemi
Nei, ég held ekki þetta árið.
Katrín Rúnarsdóttir, markaðs
ráðgjafi
Já. Ég ætla að mennta mig í
ýmsum málum og fara í Hrað-
lestrarskólann.
Bjarni Daníelsson, markaðs-
ráðgjafi
Já, ég ætla að strengja áramóta-
heit en segi ekki hvert það verður.
Oddur Örnólfsson, nemi
Nei, ég held ekki. Hef gert það
áður en hef aldrei staðið við það.