blaðið - 30.12.2006, Síða 2

blaðið - 30.12.2006, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 blaAift VEÐRIÐ I DAG Urkoma Rigning eða skúrir, en skýjað með köflum og yfirleitt þurrt norðaustan- og austantil. Heldur kólnandi, hiti 2 til 8 stig á morgun. ÁMORGUN Éljagangur Suðvestlæg átt 5 til 8 m/s og dá- lítil él, en þurrt suðaustan- og austanlands. Snýst í norðan 5 til 10 m/s norðantil um kvöldið með éljagangi. B VÍÐA UM HEIM B Algarve 12 Glasgow 7 New York 6 Amsterdam 6 Hamborg 6 Orlando 17 Barcelona 11 Helsinki -6 Osló -1 Berlín 4 Kaupmannahöfn 6 Palma 21 Chicago 5 London 3 Parls 4 Oublin 2 Madrid 8 Stokkhólmur 0 Frankfurt 5 Montreal -2 Þórshöfn 9 Fasteignamarkaður: Samdráttur á árinu Um fjögur þúsund færri kaupsamningum vegna fast- eignakaupa var þinglýst á þessu ári miðað við árið í fyrra sam- kvæmt tölum Fasteignamats ríkisins. Alls var 12 þúsund kaupsamningum þinglýst í ár en í fyrra voru þeir um 16 þúsund. Þá dróst velta á markaðinum saman um 12 prósent eða um 37 milljarða milli ára og fór úr 312 milljörðum í 275 milljarða. Sé litið til höfuðborgarsvæðis- ins eingöngu fækkaði kaupsamn- ingum um rúmlega 2 þúsund og velta minnkaði um 25 milljarða. Bandaríkin: Bush hetja og skúrkur ársins George Bush Bandaríkjafor- seti var bæði valinn hetja ársins og skúrkur ársins í skoðana- könnun Associated Press og AOL. Fjórð- ungur aðspurðra nefndi forsetann sem skúrk ársins, en næstu sæti skipuðu hryðjuverkaleiðtoginn Osama Bin Laden, Saddam Hus- sein, fyrrum íraksforseti, Ahm- adinejad íransforseti og Kim fong II, forseti Norður-Kóreu. Bush fékk einnig flest atkvæði sem hetja ársins, eða þrettán prósent. Sjónvarpskonan Oprah Winfrey, öldungadeildarþing- maðurinn Barack Obama og Jesús Kristur fylgdu svo fast á hæla forsetans. E Blaðið kemur næst út 3. janúar. Starfsmenn þess þakka lesendum sínum samfylgdina á árinu. í sól og blíðu í Grímsnesi: Ljósálfar á flögri hjá skyggnum pilti ■ Á stærö við Dísu Ijósálf ■ Utan til rannsóknar ■ Öll fjölskyldan skyggn Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net Þegar fjölskylda nokkur skoðaði myndir sem teknar voru úti í náttúrunni í Grímsnesinu i sól og blíðu í haust brá henni heldur betur í brún. Á myndunum sáust sex til sjö ljósálfar flögra rétt fyrir ofan lyngið umhverfis ungan pilt. Stráksi hafði heyrt eins konar ískur að utan þar sem hann var staddur inni í húsi og gekk á hljóðið og dvaldi drykklanga stund á staðnum meðal ljósálfanna án þess að vita beinlínis að þeir væru á flugi í kringum hann. Hann fann þó fyrir einhverri vellíðunarorku sem hann hafði reyndar fundið á þessum sama stað í nokkra daga. „Amma stráksins kom þarna að og tók myndir af honum á stafræna myndavél. Þegar farið var að fletta í myndavélinni komu ljósálfarnir í ljós,“ segir Magnús Skarphéðinsson, formaður Sálarrannsóknarfélags Reykjavíkur, sem fjölskyldan hafði strax samband við. Að sögn Magn- úsar voru ljósálfarnir mjög greini- legir. Þeir virtust vera 10 til 15 cm á hæð og sáust fætur, búkur og höfuð á þeim. Ljósálfarnir virðast því hafa verið á stærð við Dísu ljósálf í sam- nefndri sögu en Dísa komst fyrir í lófa skógarhöggsmanns. „Ég hef aldrei séð svona skýrar myndir áður,“ leggur Magnús áherslu á og bætir því við að Sál- arrannsóknarfélaginu berist reglu- lega myndir með dularfullum fýr- irbærum. „Þýskir ferðamenn sem voru hér á ferð í fyrra sendu okkur til dæmis mynd frá Vík í Mýrdal þar sem engill kemur fram á mynd á gönguslóða í Dyrhólaey. Engillinn var mjög skýr á myndinni. Okkur berst alltaf eitthvað af myndum á hverju ári. Þetta hefur aukist með tilkomu stafrænna myndavéla. Það virðist sem það þurfi minni orku til að verur og framliðnir nái inn á myndir í þeim en þegar um filmur, framköllun og pappír er að ræða. En þetta eru auðvitað bráðabirgða- ályktanir okkar.“ Magnús sendi myndirnar af ljós- álfunum utan til rannsóknar, meðal annars til Noah's Ark Society í Bret- landi sem eru samtök miðilsrann- sókna og dulrænna fyrirbrigða. .Bráðabirgðaniðurstaðan er sú að þetta séu ófalsaðar myndir. Það er ályktun bresku sérfræðinganna og reynslan er sú að töluverða skyggni- gáfu þurfi til að svona verur birtist óvænt. Sá sem heldur á myndavél- inni þarf einnig að hafa þessa gáfu en ekki bara sá sem verurnar flögra í kringum, að því er virðist." I fjölskyldunni sem um ræðir eru það ekki bara ungi pilturinn og amman sem eru með skyggnigáfu. ,Það loðir mikið af dulrænni reyn- slu við flesta ef ekki alla fjölskyldu- meðlimi. Þeir sjá og skynja fram- liðna, heyra hljóð og fá viðvaranir, bæði í vöku og draumi,“ greinir Magnús frá. Hann segir ekki tímabært að sýna myndirnar með ljósálfunum sem hafa verið sendar til rannsóknar til Þýskalands og Bandaríkjanna auk Bretlands. Niðurstöðu þeirra rann- sókna er nú beðið. Bandaríkin: Þúsundir kvöddu Brown Þúsundir lögðu leið sína í Apollo leikhúsið í Harlem- hverfinu í New York á fimmtu- dag til að votta tónlistarmann- inum James Brown virðingu sína. Kista Browns lá opin á sviði leikhússins þar sem hann steig fyrst á svið og söng fyrir al- menning árið 1956. Hestvagn keyrði kistuna um Harlem- hverfið þar sem þúsundir manna sungu og dönsuðu í takt við tónlist meistarans. James Brown lést á jóladag og verður jarðaður í fæðing- arbæ sínum Augusta í Georgíu- riki í dag. íbúðalánasjóður: 83 prósent vilja óbreyttan sjóð 82,9 prósent landsmanna vilja að Ibúðalánasjóður starfi áfram í óbreyttri mynd. Þetta er niðurstaða könnunar sem Capa- cent gerði fyrir tbúðalánasjóð í nóvember og desember. Þar kom í ljós að 6,4 prósent töldu að hann ætti að hætta starfsemi og láta bönkum og sparisjóðum eftir almenn íbúðalán, og 10,6 prósent töldu að breyta ætti Ibúðalánasjóði í heildsölu. Sambærileg könnun var gerð í ársbyrjun 2006 og kom þá í ljós að stuðningur við óbreyttan Ibúðalánasjóð hefur aukist nokkuð, en þá töldu 74,2 prósent aðspurðra að hann ætti að starfa í óbreyttri mynd. — ijæoa sængur og heilsukoddar. Opið virka daga: 10-18, lau: 11-16 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 Nafnbreyting KB banka: John Cleese auglýsir Kaupþing Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net „Búið er að skjóta nokkrar aug- lýsingar með John Cleese og þær tókust mjög vel. Hann var mjög tilkippilegur og sam- starfið mjög ánægjulegt," segir Benedikt Sigurðsson, aðstoðar- upplýsingafulltrúi Kaupþings. Um áramótin verður nafni KBbankabreyttíKaup- þing og síðustu daga hafa birst dagblaða- auglýsingar vegna breytingarinnar. Skömmu fyrir jól voru teknar upp auglýsingar með hinum þekkta kvikmyndaleikara úr Monty Pyt- hon-hópnum, John Cleese. Hann mun leiða auglýsingaherferðina k og fyrsta auglýsingin með honumverðursíðastaauglýs- 1 ing fyrir áramótaskaupið. p Benedikt segir kvik- f myndastjörnuna hafa verið mjög hófsama í launa- kröfum enda hefði hann ekki verið fenginn í verkið annars. ^„Þegar samið I KB bankt breytlr nafninu i Kaupþing: Nafhinu breytt í Kaupbfnn Samstarfið varmjög ánægjulegt. Benedikt Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Kaupþings var við Cleese þá tók hann tillit t litla íslands og hversu lítið markað svæði var undir herferðinni. Vi teljum okkur mjög heppin að haí fengið svona þekkta persónu fyr ......— J KostnaAur ekki |/ós kf JL "UrtÁ “ »«>« lrik«. lUu ,(| ■»> Ufna kniuy. | ■“',l "" IMd- .Mm ijfa,.u_ni (kUui Miuuuwn _____ '"""'•'“•rwiírflfftnui Blaðið 15. des 2006 ekki meiri peninj segir Benedil „Við höfum fengi góð viðbrögð c erum bjartsýn breytinguna. Það i engin spurning.“

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.