blaðið - 30.12.2006, Side 17
blaöið
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006
11
Skipulagsmál
á Alftanesi
Forseti bæjarstjórnar á Álfta-
nesi, Kristján Sveinbjörnsson,
ritar grein í Blaðið 21. desember
þar sem hann enn eina ferðina
er að fjalla um lóðina nr. 8 við
Miðskóga. Töluverður tími hefur
farið í þetta mál hjá þeim starfs-
manni Skipulagsstofnunar sem
hefur haft með málið að gera frá
upphafi og ætti Kristjáni að vera
fullkomlega ljóst hvernig að mál-
inu var unnið hjá stofnuninni.
Nú ber svo við að Kristján telur
sig hafa fundið skýringu á því
hvers vegna Skipulagsstofnun
tók ekki undir málflutning hans
varðandi stöðu skipulagsmála
við Miðskóga og segir hann m.a.
í greininni: „Nú hefur komið í
ljós að aðilar venslaðir málinu
komu með formlegum hætti
að seinni álitunum. Það rýrir
trúverðugleika álitanna og
skýrir hugsanlega vinkilbeygju
Skipulagsstofnunar.”
Um erað
ræða faglega
vel rökstutt
álit en ekki úrskurð
Umrœðan 1
Stefán Thors
f fyrsta lagi hefur engin vink-
ilbeygja verið í afstöðu Skipu-
lagsstofnunar til málsins. í bréfi
Skipulagsstofnunar til skipulags-
fulltrúans á Álftanesi, Kristins
Alexanderssonar, dags. 5. október
2005 segir m.a. í niðurstöðu:
„Skipulagsstofnun telur að skipu-
lagsuppdrátturinn frá 1980 hafi
tiltekið gildi, enda verið byggt
eftir honum. Skipulagsstofnun
telur engu að sfður rétt, og með til-
liti til aðstæðna, að unninn verði
deiliskipulagsuppdráttur ásamt
greinargerð af lóðinni nr. 8 við
Miðskóga...” Með bréfi dags. 19.
október 2005 sendi Sveitarfélagið
Álftanes Skipulagsstofnun bréf
og gögn til stuðnings þvi að deili-
skipulag fyrir svæðið frá 26. okt-
óber 1981 væri í gildi og féllst Skipu-
lagsstofnun á þau rök og staðfesti
þá afstöðu með bréfi til sveitarfé-
lagsins dags. 31. október 2005.
I öðru lagi er rétt að taka fram
að um er að ræða faglega vel rök-
stutt álit en ekki úrskurð. Það er
úrskurðarnefndar skipulags- og
byggingarmála og dómstóla að úr-
skurða og vil ég eindregið hvetja
forseta bæjarstjórnar Álftaness
til að fara með málið þá leið.
í þriðja lagi, og það sem er
verulega alvarlegt f þessu máli,
þá heldur Kristján því fram að
ónefndir aðilar venslaðir málinu
hafi með formlegum hætti komið
að afgreiðslu málsins hjá Skipu-
lagsstofnun. Aðspurður um það
hvað hann meini með þessum
aðdróttunum svaraði Kristján
því til að hann ætti við syni mína
tvo, þar sem annar starfar hjá
VSÓ-ráðgjöf sem var sveitarfélag-
inu til aðstoðar í skipulags- og
byggingarmálun og hinn tengist
fjölskyldu Kristjáns. Ég vil vísa
þessum aðdróttunum Kristjáns
algerlega á bug. Hvorugur sona
minna hefur komið nálægt áliti
Skipulagsstofnunar. Kristján vissi
mæta vel hvernig að málinu var
unnið hjá Skipulagsstofnun og ef
hann sem forseti bæjarstjórnar
og eigandi nágrannalóðar er
svona ósáttur við álit stofnunar-
innar er honum f lófa lagið að láta
reyna á málið fyrir dómstólum og
er Skipulagsstofnun reiðubúin að
færa rök fyrir niðurstöðu sinni á
þeim vettvangi.
Höfundur er skipulagsstjóri rikisins
Umskipti og hamskipti
í Blaðinu 21. desember gerir Hannes
Pétursson athugasemdir við nokkur at-
riði í viðtali sem birtist við mig 12. des.
sl. um nýja þýðingu mína og Eysteins
Þorvaldssonar á sögunni Die Verw-
andlung eftir Franz Kafka. Sagan birt-
ist fyrir nokkru hjá Stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur og Háskólaútgáfunni
í tvímála útgáfu, þ.e. lesendur hafa í
hverri opnu þýska textann á vinstri
síðu og á hægri þann íslenska, sem
nefnist Umskiptin. Þetta verk hefur
áður verið þýtt á íslensku og þá af
Hannesi Péturssyni undir heitinu
Hamskiptin.
Hannes segir haft eftir mér í viðtal-
inu að hann hafi þýtt verkið á sjöunda
áratugnum. Lesi hann viðtalið betur
sér hann vafalaust að þetta er raunar
ekki haft eftir mér - en ég nenni ekki
að elta ólar við það. Hannes leggur
áherslu á að 1960 sé „við lok sjötta ára-
tugar“. Gottogvel.
Ég vissi raunar vel að þýðing Hann-
esar birtist fyrst 1960 og líka að end-
urskoðuð þýðing hans birtist 1983,
en Hannes telur að það sé kannski
„sökum ókunnugleiká' að ég nefni
ekki þá útgáfu f viðtalinu. Nú snerist
viðtalið í Blaðinu ekki um þýðingu
Hannesar, nema þá helst hvað varðar
söguheitið. Mér finnst hinsvegar í
góðu lagi að Hannes veki athygli á
þessari seinni útgáfu sinni. I eftirmála
með henni segir hann að þýðingin sé
„verulega endurskoðuð" en í greininni
nú segist hann hafa þýtt hana „nánast
upp á nýtt“. Við eigum þá orðið þrjár
þýðingar á þessari kynngimögnuðu
sögu Kafka og ekki nema gott eitt um
það að segja.
I formála nýjubókarinnar (Umskipt-
anna) er getið um þýðingu Hannesar
frá 1960 og um hina endurskoðuðu
þýðingu hans frá 1983. Raunar fylgir
formálanum einnig listi yfir íslenskar
þýðingar á verkum Kafka, allt frá elstu
þýðingu sem fannst á prenti, en það er
íslensk gerð Halldórs J. Jónssonar á
smásögunni „Föturiddaranum“ sem
birtist 1947. Einnig fylgir listi yfir það
sem skrifað hefur verið um Kafka og
verk hans á íslensku; þar er m.a. getið
eftirmála Hannesar ff á 1983.
í áðurnefndum formála er enn-
fremur útskýrt nokkuð rækilega hvers-
vegna þýðendur telja að „Hamslcipti"
hæfi ekki sem þýðing á „Die Verw-
andlung“, þó að þetta íslenska orð sé
fallegt og eigi sér hljómgrunn í fornri
söguvitund Islendinga. Ég mun ekki
endurtaka þær útskýringar og rök hér.
Ég las hina upprunalegu þýðingu
Hamskipti
hæfa ekki
sem þýðing á
Die Verwandl-
ungþó orðið
tttm KK
Umrœðan
Ástráöur Eysteinsson
Hannesar mér til ánægju (og hrolls) á
unglingsárum og ég naut þess einnig
aðlesa endurskoðaða (eða síðari) þýð-
ingu hans þegar hún birtist. Vonandi
hefur hann - og aðrir lesendur - svo-
lítið gaman af þessari góðu sögu í enn
einni íslenskri gerð. Og þeir sem hafa
kynnst þýsku máli geta jafnffamt
flakkað fram og aftur milli tungu-
mála hafi þeir gaman af slíku.
Höfundur er prófessor (
bókmenntafræði
yOjGA
IDYFA
VOGA
ÍIDYFA
Paprikublanda
jMu.
H yoga
ÍDÝFA/SÓSA
létt hvttlauksblanda
•Súk-
yOGA
IDYFA
VOGABÆR
VOGA
DIETIDYFA
Með kryddblöndu
Kólcstcrólskert
W VpgMOfVIV
Sími 424 6525 www.vogabaer.is
Vogaidýfur
Alltaf í stuði