blaðið - 30.12.2006, Side 24
24
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006
blafiið
Halldor Asgnmsson hættir í stjornmalum. Bandartska
herliðið hverfur á hrott. Sina brénntir á Mýrum. Eiður
Smári leikur með knattspyrnustórliðinu Barcelona.
Israelski herinn ræðst inn i Lílmuon. Stórfréttir ársins
eru fjölbreyttar. Afleiðingar þeirra tnisniunandi. Blaðið
leitaði til tiu valinkunnra einstaklinga úr samfélaginu
ogfékk þá til að nefna helstu atburði ársins.
Brottför hersins stærsta fréttin
Að mínu viti eru þrjár fréttir
hér innanlands sem standa upp
úr. Það er í fyrsta lagi afsögn Hall-
dórs Ásgrímssonar sem formanns
Framsóknarflokksins og forsætis-
ráðherra. Halldór er að minu viti
merkilegur stjórnmálamaður sem
gerði marga hluti mjög vel, ekki síst
í kyrrþey.
I annan stað nefni ég átökin um
Kárahnjúkavirkjun og ekki síst
þátt Ómars Ragnarssonar í því
máli. Ómar er að marka djúp og
merkileg spor í sögu þjóðarinnar
og það er nánast einsdæmi að ein-
staklingur geti hrifið þjóð sína
með þessum hætti. Síðast en ekki
síst nefni ég brottför hersins sem
er á allan máta stórfrétt og þegar
fram í sækir líklega það sem
ársins verður minnst fyrir.
Persónulega var þetta gott
ár fyrir mig. í mínu starfi
var árið merkilegt en við
reyndum til þrautar að
halda úti fréttastöð frá
morgni til kvölds.
tókst ekki sem skyldi
en eftir stendur
sterk fréttastofa
sem ætlar sér góða
hluti á nýju ári. Ég
tók mér ekki nógu
mikið frí á árinu
sökum anna og
náði því ekki að
ferðast eins mikið og ég hefði viljað.
Við hjónin náðum þó að dvelja
með vinum okkar á Spánar-
ströndum í tvær vikur og svo
endaði árið á því að foreldrar
mínir buðu öllum mínum
systkinum, þeirra mökum
og börnum til Kanaríeyja.
i>að var einstaklega
góður samfundur
og prýðilegur
endir á farsælu
ári.
Það
Sólveig Pétursdóttir,
Varnarsamningurinn merkastur
„Síðasta ár er að mörgu leyti minn-
isstætt, ekki síst fyrir mig persónu-
lega. í einkalífi gnæfir einn atburður
yfir alla aðra en það er fæðing fyrsta
barnabarns okkar hjóna. Yngri syni
okkar og tengdadóttur fæddist 19.
febrúar sl. lítil stúlka sem er alger
sólargeisli og mesta yndi afa og
ömmu. Ég varð sem sagt amma á
árinu og það er merkari atburður en
flest annað fyrir mig!
Störf Alþingis gengu vel, okkur
tókst með góðu samkomulagi allra
að skipuleggja þingstörfin þannig að
sómi var að. Ég átti þess kost að ferð-
ast víða sem forseti Alþingis, m.a.
til Indlands, sem er merkilegt land,
en minnisstæðust verður þó ferð
okkar á slóðir
Vestur-Is-
lendinga í
Kanada í
ágúst sl.
Ég tók
svo þá
ákvörðun
haust að
h æ 11 a
afskiptum af stjórnmálum næsta
vor. Nýr forsætisráðherra, Geir H.
Haarde, sigur í sveitarstjórnarkosn-
ingum og gott gengi kvenna þá,
nýr borgarstjóri, allt eru það góðar
fréttir af Sjálfstæðisflokknum á
þessu ári. Brottför varnarliðsins í
haust og samningar í kjölfar þess
um varnir Islands teljast með merk-
ustu atburðum
ársins. Annars er
mér hin íslenska hvunndagshetja
jafnan efst í huga, með gleði sínar
og sorgir. Ég vil líka minnast ótrú-
legrar björgunar Landhelgisgæsl-
unnar á dönskum sjóliðum nú
nýverið. Á erlendum vettvangi eru
hin dapurlegu stríðsátök mér efst í
huga, innrásin í Líbanon sl. sumar
og átökin í Irak. Mannkyni ætlar
seint að lærast að leysa ágreining
sinn með friði."
Innrásin í Líbanon Israelsher
réðst inn íLíbanon 12. júlíog átti
Istríöi við Hizbollah 132 daga, til
14. ágúst.
Sænski boltinn
Á árinu tók ég þátt í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins og náði þar fjórða
sæti eins og ég ætlaði mér og það
var mjög gaman. Bæjarstjórnarkosn-
ingar I kjölfarið standa upp úr og nú
er ég komin í bæjarstjórn sem eru
nokkur viðbrigði fyrir mig.
Ég spilaði í sænsku deildinni sem
var mjög gaman en erfitt þar sem
ég flaug alltaf á milli íslands og Sví-
þjóðar. Þrátt fyrir mikið álag þá er
það einkennilegt að árið er örugg-
lega besta árið mitt i fótboltanum,
það gekk nánast allt upp inni á vell-
inum. Það var líka mjög gaman að
hljóta tilnefningu sem besti fram-
herjinn í sænska boltanum þar sem
sænska deildin er áreiðanlega sú
sterkasta I heimi.
Það sem stendur upp úr I fréttum
í mínum huga eru sveitarstjórnar-
kosningarnar í vor. Sjálfstæðisflokk-
urinn hélt meirihluta ásamt Fram-
sóknarflokknum í Kópavogi og
flokkurinn náði Reykjavík aftur.
og pólitíkin
Hvað varðar erlendar fréttir detta
mér helst í hug málaferlin á hendur
Saddam Hussein, það er svona það
fyrsta sem kemur upp í hugann.
Árið hefur verið
mjög viðburðaríkt
og ánægjulegt og
það hefur verið
mjög mikið að gera
á þessu ári. Það
er líka margt
spennandi
framundan
en ég hef
ákveðið að á
nýju ári ætla
ég að eiga
meiri tíma
fyrir sjálfa
mig og mína
nánustu.