blaðið - 30.12.2006, Síða 32
32
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006
blaöiö
SIÐASTIPOTTUR ARSINS
’PAÐU Á ENSKA BOLTANN OG ÞÚ GÆTIR DOTTIÐ í SPRENGIPÖTTINN!
GLEÐILEGT NÝTT TIPPÁR!
\jii tipp"*-
' Ji
luruuir
ithrottir@bladid.net
..
Beckham í Japan
Menn geta ferðast þegar þeir þurfa ekki að hafa áhyggjur af þvi að leika of mik-
ið með félagsliðum sínum. David Beckham hefur átt erfitt uppdráttar hjá Real
Madrid og er þessa dagana í kynningarferð um Asíu. Þessi japanski aðdáandi
Beckhams datt í lukkupottinn og fékk tekna af sér mynd með goðinu.
Skeytin
Alan Pardew
hefur
tryggt sér
undirskrift fyrsta
leikmannsins
sem hann fær til
sín eftir að hafa tekið
við stjórn Charlton á
aðfangadag. Nýi leikmaðurinn
er Zheng Zhi, fyrirliði kinverska
landsliðsins, sem verður lánaður
til loka keppnistímabilsins með
möguleika á að hann verði keypt-
ur þá. Zhi getur hvort tveggja
leikið í vöm og á miðjunni. Hann
er líka mikill markasícorari og setti
boltann 21 sinni í net andstæðinga
sinna á síðustu leiktíð sinni f Kína.
Steve Pressley, fyrmm fyr-
irhði Hearts, hefur gengist
undir læknisskoðun hjá
Charlton. Óvíst er þó hvort hann
verður annar maðurinn
til að ganga til hðs við
Pardew og Charlton
þvihannheldurenn
HgT opnum möguleikan-
A * MhÉ um á að gansa til
SLméÉK hðsviðCeltic.
Peter Crouch er ekki á leið-
inni frá Liverpool til Newc-
astle þrátt fyrir orðróm þess
efnis segir Glenn Roeder, stjóri
liðsins á Tyneside.„Þetta em ein-
tómar vangaveltur og það kæmi
mér á óvart ef hann yrði leikmað-
ur Newcastle,“ sagði Roeder. Þó er
ljóst að Roeder verður að styrlga
sóknarleik liðsins, Michael 0 wen
og Shola Ameobi em meiddir auk
þess sem Giuseppi
Rossi er á leiðinni aft-
ur til Manchester Un-
Eftirminnilegustu íþróttaviðburðir ársins 2006:
Eiður Smári og
Svíagrýlan kvödd
■ Afrek hjá Birgi Leifi ■ Guðjón Valur og Margrét Lára mjög góð
Félagaskipti Eiðs Smára Guðjohnsen úr Chelsea til Barcelona og sigur íslenska karlalands-
liðsins í handbolta á Svíum eru eftirminnilegustu atburðir síðasta árs að mati íþróttafrétta-
manna sem Blaðið hefurfengið til að taka árið saman.
Eiður Smári frá Cheisea
Arnar Björnsson, íþróttafrétta-
stjóri hjá Sýn, segir að félagaskipti
BEiðs Smára
Guðjohnsen
frá Chelsea séu
klárlega í 1. sæti:
„Það að fá að æfa
með Ronaldinho
einu sinni hlýtur
aðveramjög eftir-
minnilegt en að
fá að spila með
honum í liði, ekki bara einu sinni
heldur alltaf, er stórkostlegt."
Arnar var ekki einn um þetta
val því flestir álitsgjafar Blaðsins
nefndu félagaskiptin sem einn eftir-
minnilegasta atburð íþróttaársins.
Svíagrýlan kveðin í kútinn
Svíagrýlan hefur legið eins og
mara á íslendingum árum saman.
Það kemur því
ekki á óvart að
mörgum íþrótta-
fréttamönnum
fannst sigur ís-
lendinga á Svíum
í undankeppni
HM standa upp
úr. „Ég dansaði
stríðsdans þegar
úrslitin lágu fyrir. Alveg magnaður
leikur hjá strákunum okkar!“ segir
Lovísa Árnadóttir, íþróttafrétta-
maður á RÚV.
Birgir Leifur kemst inn á
Evrópumótaröðina
ívar Benediksson hjá Morgun-
blaðinu var ánægður með árangur
Birgis Leifs Haf-
þórssonar kylf-
ings sem náði
inn á evrópsku
atvinnumanna-
mótaröðina í
golfi.
„Loksins náði
Birgir Leifur
markmiði sínu en hann hefur sýnt
sérstaka þrautseigju og úthald til að
ná því.“
GuðjónValur '
slærígegn
Dagur Sveinn
Dagbjartsson
hjá DV hreifst
af Guðjóni Val
Sigurðssyni í
Gummersbach:
„Hann er
að raða inn
mörkum í sterkustu deild í heimi og
var kosinn bestur af leikmönnum
og þjálfurum. Afrek hans í því ljósi
er stórkostlegt.“
(jsæs
Alfreð tekur við landsliðinu
Óskar Ófeigur Jónsson hjá DV
segir skipun Alfreðs Gíslasonar sem
þjálfara landsliðsins kærkomna:
„Hann hefur
sannað sig sem
einn fremsti þjálf-
ari í heimi með
árangri sínum í
þýsku deildinni.
Að fá Guðmund
Guðmundsson
sem sína hægri
hönd var líka
sterkur leikur.“
Aðrir atburðir sem einnig fengu
atkvæði voru HM í knattspyrnu,
síðasta ár Michaels Schumachers
í Formúlu 1, árangur Viggós Sig-
urðssonar með Flensburg, árangur
Margrétar Láru Viðarsdóttur í
kvennafótboltanum, Evrópumótið í
frjálsum íþróttum, bringuskalli Zid-
ane í úrslitaleik HM í Þýskalandi,
kaup Eggerts Magnússonar og Björg-
ólfs Guðmundssonar á West Ham,
sigur Miami Heat í bandarísku
NBA-deildinni í körfubolta og loks
Norðurlandameistaratitlar Sifjar
Pálsdóttur í fimleikum.