blaðið - 30.01.2007, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2007
blaöi6
INNLENT
HVERAGERÐI
SNÆFELLSNES
Arekstur á einbreiðri brú
Harður árekstur varð á brúnni yfir Hítará á Snæ-
fellsvegi um miðjan dag á sunnudag. Tveir bílar
sem komu úr gagnstæðri átt rákust þá saman á
einbreiðri brúnni. Ekki urðu alvarleg meiðsl á fólki en
fernt var í öðrum bílnum og einn í hinum.
Þrjár íkveikjur um helgina
Slökkviliðið í Hveragerði var þrisvar kallað út á laugardag.
Um kvöldmatarleytið var tilkynnt um eld í gróðurhúsi við
Þelamörk en þar hafði verið kveikt í dagblaði. Skömmu
síðar var tilkynnt um eld í rusli við nýbyggingu og rétt eftir
níu var eldur slökktur í stórum ruslagámi á bak við Eden.
NORÐVESTURKJÖRDÆMI
Tafir á framboðsiista
Vinstrihreyfingin - grænt framboð hefur ekki
birt framboðslista sinn í Norðvesturkjördæmi og
verður það ekki gert fyrr en í fyrsta lagi um næstu
helgi að sögn framkvæmdastjóra flokksins. Jón
Bjarnason vill leiða listann líkt og síðast.
Eftirmál af landsþingi Frjálslyndra:
Fylgja fari Margrét
Guðrún Ásmundsdóttir, leik-
kona og stuðningsmaður Margr-
étar Sverrisdóttur, segir að ákveði
Margrét að segja sig úr Frjáls-
lynda flokknum muni helmingur
flokksmanna fylgja henni. Hvert
það muni verða sé Margrétar að
ákveða. Jafnramt segir hún að
borgarstjórnarhópur flokksins sé
mjög óánægður með framvindu
kosninganna sl. helgi.
Magnús Þór Hafsteinsson bar
sigurorð af Margréti í slagnum
um varaformannsembættið
í flokknum um helgina með
rúmlega 56 prósent atkvæða og
hafa Margrét og stuðningsmenn
hennar gagnrýnt framkvæmd
kosninganna harðlega. Eru stuðn-
ingsmenn Magnúsar, einkum og
sér í lagi félagsmenn úr Nýju afli,
sakaðir um að hafa keypt atkvæði.
Margrét hefur enn ekki gert
Ákvörðun væntanleg Margrét
Sverrisdóttir mun innan skamms
tilkynna ákvörðun um hvort hún
hyggst halda áfram aö starfa innan
Frjálslynda flokksins.
upp hug sinn hvort hún muni
verða áfram í flokknum en hún
hefur áður sagt að forráðamenn
annarra flokka hafi haft sam-
band við sig og beðið sig um að
taka sæti á lista. Hún segist hins
vegar ætla að ráðfæra sig við sína
stuðningsmenn áður en hún taki
ákvörðun.
British Airways a Bretlandi:
Verkfalli aflýst
Verkfalli starfsmanna breska
flugfélagsins British Airways
hefur verið aflýst eftir að sam-
komulag náðist í langvarandi við-
ræðum samningsaðila. Tveggja
daga verkfall starfsmanna átti að
hefjast í dag og hafði flugfélagið af-
lýst rúmlega þúsund flugferðum
frá Heathrow og Gatwick-flugvelli
í Lundúnum.
Flugfélagið mun nú reyna að
koma áætluðum flugferðum
aftur á eftir fremsta megni þó að
reikna megi með einhverri röskun.
Tveimur þriggja sólarhringa
verkföllum í næsta mánuði hefur
einnig verið aflýst.
Starfsmenn kjarnorkuvers í Svíþjóð:
Unnu ölvaðir
Öryggismál í kjarnorkuver-
inu Forsmark í Svíþjóð eru harð-
lega gagnrýnd í nýrri skýrslu og
eru brot starfsmanna sögð vera
óásættanleg. 1 skýrslunni segir
að þrír starfsmenn hafi unnið
undir áhrifum áfengis og að
brotin hefðu getað leitt til dauða
starfsmanna.
Bilun varð í kjarnaofni versins
síðasta sumar sem varð til þess að
öryggismál kjarnorkuversins voru
tekin til skoðunar. Samkvæmt
skýrslunni áttu 22 óhöpp sér stað
í verinu á síðasta ári. Skýrslunni
!
Kjarnorkuver Öryggismál eru í
ólestri og harðlega gagnrýnd í nýrri
skýrslu.
var skilað í október síðastliðnum
og hefur verið haldið leyndri þar
til nú.
■ Dregið úr reiðinni ■ Þverpólitískt framboð ■ Runnið sitt skeið á enda
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Suðurnesjamenn ræða nú þver-
pólitískt sérframboð vegna lélegs
gengis í prófkjörum í vetur. Krist-
ján Gunnarsson, formaður Verka-
lýðs- og sjómannafélags Keflavíkur,
segir málið mikið rætt í eldhúsum.
„Það er búið að stilla upp á lista yfir
kaffibollunum.“
Kristján segir niðurstöður próf-
kjaranna hafa valdið mikilli ókyrrð
en sú staðreynd að Helga Sigrún
Harðardóttir frá Reykjanesbæ
skipi nú 3. sæti á lista framsóknar-
manna í Suðurkjördæmi og Guðný
Hrund Karlsdóttir frá Reykjanesbæ
4. sæti á lista Samfylkingarinnar
hafi dregið úr reiðinnni. Það er mat
Kristjáns að þrátt fyrir mikla um-
ræðu um sérframboð muni menn
stíga varlega til jarðar. „Menn eru
með bitra reynslu."
Þverpólitískur hópur
Jón Gunnarsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, sem gaf kost
á sér í 1. sæti í prófkjöri flokksins
í Suðurkjördæmi en lenti í 5. sæti,
segir oftast einhvern fót fyrir
flugusögunum.
„Menn hafa verið að tala um þetta
þverpólitískt vegna þess að niður-
staðan hefur verið eins hjá öllum.
Það væri undarlegt ef umræðan
hefði ekki farið af stað en til hvers
hún leiðir er eitthvað sem á eftir að
koma í ljós. Það er ekkert meira að
segja um þetta á þessu stigi,“ segir
Jón sem að loknu prófkjöri ákvað að
gefa ekki kost á sér til uppstillingar
fyrir neðan 5. sæti fyrir alþingiskosn-
ingar í vor en hann hefði færst niður
um eitt sæti vegna kynjakvóta.
Engin breiðfylking
Hjálmar Árnason, þingmaður
Framsóknarflokksins, sem ákvað
að hætta í stjórnmálum þar sem
hann hlaut ekki 1. sæti í prófkjöri
flokksins í Suðurkjördæmi, kveðst
hafa heyrt raddir um sérframboð
Suðurnesjamanna.
„En ef það væri hér einhver breið-
fylking um það væri maður búinn
að verða var við þá öldu. Þetta er
kannski eitthvað sem kemur upp
í kjölfar prófkjara þar sem Suður-
nesjamenn höfðu tækifæri til að
sýna samstöðu sína, mátt og megin
sem þeir gerðu hins vegar ekki. Þar
að auki tel ég að eftir að kjördæmin
voru stækkuð hafi raunhæfur mögu-
leiki á sérframboðum runnið sitt
skeið á enda.”
+
ÞAÐÁ
AÐ BURSTA
TENNURNAR
TVISVAR Á DAG!
Lágmúli - Smáratorg - Laugavegur ■ Smáfalind ■ Spöngin - Garðatorg • Setberg ■ Keflavík • Grindavik • Selfoss •• Laugarás
Borgarnes - Stykkishólmur • Grundarfj'örður Búðardalur - Isafjörður - Boiungarvik - PatreksFjörður - Sauðárkrókur
Blönduós - Hvammstangi - Skagaströnd • Húsavík - Kópasker Raufarhöfn - Pórshöfn - Egilsstaöir - Seyðísfjörður
Fáskrúðsfjörður - Höfn - Neskaupotaður • Reyðarfjörður - Eskífjörður
LYFJA
WWW.lyfja.is ámS - Lrfið heil
Vinsæl vetrarfrí íslendinga:
Þúsundir á skíðum í Ölpunum
„Það er eiginlega uppselt. Það eru
örfá sæti laus í lokaferðina," segir
Þorvaldur Sverrisson, markaðs-
stjóri ferðaskrifstofunnar Úrvals-
Útsýnar sem býður um 3.000 sæti í
skipulagðar skíðaferðir til Ítalíu og
Austurríkis ívetur.
Þorvaldur segir að um stækkandi
markað sé að ræða. „Við fjölgum
sætum eins og við getum. Þetta er
líklega góðæriseinkenni. Fólk er
farið að fara oftar utan og er skemur
í einu auk þess sem það er kannski
búið að gefast upp á snjóleysinu í
Bláfjöllum." Þorvaldur getur þess
einnig að sífellt fleiri kaupi sér flug-
sæti og fari síðan á eigin vegum á
einhvern skíðastað í Ölpunum.
Lilja Hilmarsdóttir, deildarstjóri
hjá Express Ferðum, segir 150 til 200
manns fara í skipulagðar ferðir til
Sviss og Austurríkis á vegum ferða-
skrifstofunnar. „Þar að auki teljum
við að 99 prósent þeirra 900 sem
keypt hafa flugsæti til Friedrichs-
hafen séu gagngert að fara á skíði.“
Hjá Heimsferðum er boðið upp
á 1.100 sæti til skíðasvæða í Austur-
ríki. „Það er laust í einstaka ferðir í
lok tímabilsins," segir Þyri Gunnars-
dóttir sölustjóri.