blaðið - 30.01.2007, Blaðsíða 29
blaðið
ÞRIÐJDAGUR 30. JANÚAR 2007 37
Clooney ekki með Anderson
Leikarinn George Clooney neitar því aö eiga í ástarsambandi við Baðstrandarstúlkuna
Pamelu Anderson en sögur ganga fjöllum hærra um að þau hafi látið vel hvort að öðru
á veitingastað í Hollywood. Þar var Anderson sögð hafa setið í fangi Clooneys og þau
skemmt sér konunglega. Clooney segir söguna vera uppsguna og segist ekki hafa séð
hana í sjö ár eöa síðan þau unnu saman.
Vísindakirkjan hindrun
Leikkonan Katie Holmes sem
er hvað best þekkt sem eigin-
kona leikarans Toms Cruise hafn-
aði nýlega tilboði upp á margar
milljónir fyrir að leika í framhald-
inu af kvikmyndinni Batman Beg-
ins. Búist var við því að leikkonan
myndi ásamt Christian Bale taka
að sér hlutverk i kvikmyndinni
Batman: The Dark Knight en hún
hætti við á síðustu stundu.
Þrátt fyrir að Holmes hafi
boðist ýmis hlutverk í kjölfar
þess að vera orðin frú Cruise
halda fjölmiðlar ytra því fram að
kvikmyndaverin hafi haldið að sér
höndunum og verið feimin við að
ráða hana.
Ástæðan er einna helst talin
vera sú að Holmes er meðlimur
í Vísindakirkjunni líkt og eig-
inmaður hennar sem er talinn
aðeins of fylgispakur við stefnu
kirkjunnar sem truflar marga.
helgin?.
Var á kafi
um helgina
„Það var alveg brjálað að gera
hjá mér um helgina. Ég var að
sýna Footlose á föstudag og
laugardag og svo var árshátíð
hjá 365 á föstudagskvöldið,"
segir Halla Vilhjálmsdóttir leik-
kona. „Svo var lokasýning á
Footlose á sunnudaginn með
lokapartíi og öllu en við erum
búin að vera með sýninguna frá
því í júní oa það er rosa tómlegt
að hætta. Eg grenjaði eiginlega í
gegnum alla sýninguna."
Glöggir áhorfendur hafa lík-
lega tekið eftir Höllu á skjánum
en hún kynnir X-factor um
þessar mundir. „X-factor fór í
loftið á föstudagskvöldið í þeinni
útsendingu og það var rosa stuð
þó að ýmislegt hafi komið upp
á. Við vorum til dæmis rafmagns-
laus alveg í tvo tíma yfir daginn
þannig að við náðum ekki að
æfa neitt og handritinu var
breytt alveg á síðustu stundu.
Það gekk bara allt á afturfót-
unum út af þessum tæknilegu
klikkum og ég hljóp inn á svið
20 sekúndum fyrir útsendingu,
þá var ég ekki einu sinni búin
að fara almennilega í förðun
eða neitt. Þetta var ótrúlegt
og ég var eiginlega bara mjög
hissa þegar þetta hófst svo allt
saman. Annars voru keppendur
bara rólegir yfir þessu öllu. Það
voru líka alveg nokkur klúður hjá
þeim en þetta var ekkert sem
fólk var að taka eftir og þau voru
ótrúlega dugleg að redda sér.
Svo hlógum við bara að þessu
og fórum á árshátíð hjá 365.“
Aðspurð um hvað sé næst á
dagskrá segist Halla ætla að ein-
beita sér að X-factor í bili. „Ég er
búin að segja nei við öðru [ bili
en það er þó eitt tilboð sem ég
er mjög spennt fyrir en get ekki
sagt frá núna. Svo er ég bara í
skýjunum yfir því að eiga afmæli
á morgun en þá er ég orðin 25
ára gömul, loksins fullorðin og
ætla að njóta dagsins."
---------------
Nýtt á íslandi
Fíkniefnapróf
íslenskur leiðarvísir
niðurstöður eftir 5 mínútur
TtlGEÖN'w6ftR ft;
^nnðfcis ..........
■n.iDCTBsy'Dfj ton'iOO'S
modln\og^ab®
ILGRöNiNGAR A
efNapR°f
Port farma
Fæst í öllum helstu lyfjaverslunum,
verslunum 10/11,11-11, Hagkaupa, Esso og Olís