blaðið - 30.01.2007, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2007
blaöið
m m m HVAÐ FINNST ÞÉR? i
folk Er fjölskyldudrama í vændum?
folk@bladid.net „Allt sem við gerum gerum við af mikill ástríðu."
HEYRST HEFUR...
Fréttablaðið stóð fyrir því í
gær að finna tvífara þekktra
íslendinga með hjálp
heimasiðunnar my
heritage.com. Margir
urðu hissa þegar þeir
sáu að samkvæmt út-
tektinni er tvífari grín-
arans Sveppa enginn annar en
hjartaknúsarinn, sjarmörinn og
íslandsvinurinn Viggo Morten-
sen. Þetta hlýtur að setja Sveppa
í annan flokk og býður upp á að
hann sæki í önnur hlutverk en
þau sem hann hefur einbeitt sér
að hingað til. Nú þurfa Hilmir
Snær og Björn Hlynur að fara að
vara sig.
Davíð Þór Jónsson, dómari
í Gettu betur, segir frá þvf
á heimasíðu sinni að hann hafi
predikað við guðþjónustu í Nes-
kirkju sl. sunnudag.
Davíð sem þekktur
er fyrir orðleikni og
samfélagsrýni tók
boðinu þegar sóknar-
presturinn, Sigurður
Árni Þórðarson, bað hann að sjá
um predikunina. Davíð lagði
stund á guðfræði f HÍ en sneri sér
að öðrum hlutum, eins og alþjóð
veit. Nú er aldrei að vita nema
þessi predikun hafi kveikt neista
hjá Davíð um að feta veg innan
kirkjunnar og flytja bakþankana
úr predikunarstól.
Fyrsta árshátíð vetrarins var
haldin með pomp og prakt
á föstudagskvöldið og var það
árshátíð 365 miðla. Nokkrar
óánægjuraddir höfðu heyrst
innan fýrirtækisins
þar sem starfsfólk
varekkisáttvið
tímasetninguna. Fólk I
var hins vegar mjög
ánægt með kvöldið.
Helgi Seljan, sem hóf ferilinn á
Stöð 2, var mættur en kona hans
starfar hjá 365. Hann segir frá því
á bloggsíðu sinni að hann hafi að
mestu eytt kvöldinu í að svara
kommentum um hugsanlega end-
urkomu á stöðina og útskýra af
hverju hann var þarna mættur.
Sigríöur Dögg Auðunsdóttir
ritstjóri Krókiuunr
Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Valdimar Birgisson, eiginmaður hennar,
eiga og reka saman nýtt dagblað sem á að heita Krónikan og kemur út
um miðjan febrúar. Eins og dyggir sjónvarpsáhorfendur sjá heitir blaðið
sama nafni og danski stórfjölskyld udramaþátturinn sem sýndur var á
sunnudagskvöldum á RÚV.
Sigríður Jóhannsdóttir er
hópstjóri í félaginu París
A_„Ég hef kynnst nýjum vinum í
gegnum félagið.
Astríðan min
*
Hjúskaparvottorðs ekki krafist
„Þú þarft ekki að sýna hjúskapar-
vottorð þegar þú gengur í félagið
en það er ætlað þeim sem eru
einhleypir og hugsað sem félags-
skapur fyrir þá sem eru einir eða
einar,“ segir Sigríður Jóhannsdóttir,
félagi í París, sem er félagsskapur
einhleypra.
Vettvangur fyrir fólk að hittast
„Það var fyrir fjórum árum í
apríl að ég stóð við eldhúsvaskinn
og heyrði tilkynningu í útvarpinu
um stofnfund félags einhleypra og
ég hugsaði að þarna væri kannski
félagsskapur fyrir mig,“ heldur Sig-
ríður áfram.
Hún hefur starfað með félaginu
allt frá stofnun þess og er hópstjóri
menningarhóps Parísar. „Félagið
hefur það að markmiði að efla fé-
lagslíf þeirra sem eru einir og er
vettvangur fyrir fólk til að hittast
og gera skemmtilega hluti saman.
Félagið hefur verið góð viðbót við
mína vinaflóru og ég hef kynnst
mörgum nýjum vinum í gegnum
félagið.”
Einhleypa vantar oft félagsskap
Sigríður segir að það hafi verið
þörf fyrir svona félag. „Fólk sem er
einhleypt vantar oft á tíðum félags-
skap til að gera ýmsa hluti, eins og
að fara í leikhús eða gönguferðir eða
eitthvað slíkt. Flestir í samfélaginu
eru í samböndum og gera þessa hluti
með maka sínum.“
Pör hafa orðið til
Sigríður segir að þrátt fyrir að félag-
inu sé ekki ætlað að vera vettvangur
fyrir fólk í rómantískum hugleið-
ingu hafi orðið til sambönd innan fé-
lagsins. „Það er til dæmis par i félag-
inu sem kynntist í gegnum þennan
félagsskap og er enn þá með. Þau
koma saman á ýmsar uppákomur og
stundum sitt í hvoru lagi. Það sýnir
bara hvað félagið er skemmtilegt að
fólk tímir ekki að hætta í því.”
Stendurfyrir
fjölbreyttum uppákomum
Félagið stendur fyrir ýmsum
föstum uppákomum og innan þess
eru starfræktir hópar eins og menn-
SU DOKU talnaþraut
8 7 2 1 5 9 6 3 4
4 6 9 2 3 7 1 5 8
1 3 5 6 4 8 7 9 2
5 9 8 3 i 6 2 4 7
6 4 1 9 7 2 3 8 5
7 2 3 4 8 5 9 6 1
9 8 4 7 6 1 5 2 3
2 5 7 8 9 3 4 1 6
3 1 6 5 2 4 8 7 9
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
2 7 8 3
1 2 5 9
4 5 1 3 9 7
6 8 9 1
3 4 8
8 5 2
3 8 4 6
2 1
1 7 5
ingarhópur, gönguhópur og ferða-
hópur. Að sögn Sigríðar eru um 80
manns virkir innan félagsins sem
hlýtur að þykja nokkuð gott. Það eru
haldnir félagsfundir fyrsta laugardag
í mánuði þar sem nýir félagsmenn er
boðnir sérstaklega velkomnir.
„Annars hvet ég fólk til að kíkja á
heimasíðuna okkar, paris.is, en þar
er hægt að kynna sér dagskrána.
Fólk er velkomið hvenær sem er. Við
hittumst líka alltaf einu sinni í viku
á Kaffi Mílanó bara til að spjalla um
daginn og veginn og þá koma þeir
sem vilja hverju sinni.“
Allir hugsa jákvætt til Parísar
Nafnið á félaginu segir Sigríður
að tákni í raun ekki neitt sérstakt
en flestir tengja París við borg elsk-
endanna. „Við vildum einfaldlega
velja jákvætt og skemmtilegt nafn og
ekki hafa nafnið of formlegt. París er
skemmtileg og lífleg borg sem allir
hugsa jákvætt til. Einhvern tímann
var það á dagskrá félagsins að fara í
ferð til Parísar og það verður án efa
einhvern tímann í framtíðinni.”
eftir Jim Unger
Á förnum vegi
í hvaða sæti lenda
íslendingar á HM í
handbolta?
Höskuldur Sveinsson,
arkitekt
Þeir lenda í 6. saeti.
Sighvatur ívarsson,
sölufulltrúi
Ég spái þriðja til fjórða sæti.
Björk Óðinsdóttir, nemi.
Þeir lenda í 5. sæti.
Karvel Strömme,
eftirlaunaþegi
Að sjálfsögðu lenda þeir í fyrsta
sæti.
Kolfinna Elíasdóttir, nemi
ísland lendir í öðru sæti.