blaðið - 30.01.2007, Page 18
26 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2007
blaöið
KoiúifiiíiÍ.
Ef ég vildi eyðileggja þjóð myndi ég
gefa henni of mikið af öllu og innan
skamms væri hún orðin sýkt,
gráðug, aumingi inn í merg.
John Steinbeck
Afmælisborn dagsms
FRANKLIN D. ROOSEVELT FORSETI, 1882
BORIS SPASSKY SKÁKMEISTAR11937
VANESSA REDGRAVE LEIKKONA, 1937
kolbrun@bladid.net
Sígild
barnasaga
Hjá Máli og menningu er komin
út í kilju hin sígilda barnasaga
Vefurinn
hennar Karl-
ottu eftir E. B.
White með
myndum eftir
Garth Williams.
Helga Soffía
Einarsdóttir
þýddi.
Jón Arabel er í
þann mund að
stytta líf lítils gríss þegar hann
mætir dóttur sinni Furu. Með
snarræði fær Fura því fram-
gengt að Völundur - eins og
hún kallar grísinn - fær að lifa.
(lífsbaráttunni nýtur Völundur
þess að eiga góða vini, ekki
síst hina stórsnjöllu kónguló
Karlottu.
Þessi sígilda og töfrandi saga
fjallar um umhyggju og ást,
ævintýri og dularfull teikn og
daglegt líf dýranna á bænum.
Mest fjallar hún þó um það
hvernig vinátta og tryggð geta
gert kraftaverk.
Myndir frá
heimsborgum
Á kaffihúsinu Mokka á Skóla-
vörðustíg stendur yfir Ijósmynda-
sýningin Jaguar. Þar sýnir
Guðmundur Heimsberg níu
svarthvítar myndir frá Barcel-
ona, Reykjavík og New York.
Sýningunni lýkur 5. mars.
Norðurljós og rafmagn
álarahópurinn
Gullpensillinn, fé-
lagsskapur 14 mál-
ara, sýnir verk sín
í Gerðarsafni og
lýkur sýningunni 14. febrúar. Daði
Guðbjörnsson er einn þeirra lista-
manna sem eiga verk á sýningunni
en hann var einn af hvatamönnum
að stofnun félagsins.
„Hugmyndin kviknaði í samtali
milli mín og Birgis Snæbjörns Birg-
issonar,“ segir Daði. „Ég var að gæla
við að stofna listmálarafélag en það
varð nú ekki heldur varð til þessi fé-
lagsskapur myndlistarmanna sem
hittist og sýnir saman. Sýningin
okkar í Gerðarsafni var ákveðin fyr-
ir um tveimur árum og fékk vinnu-
heitið Indigo eftir hinum sérstæða
bláa lit.“
Norðurljós „Það er kannskídálítill
Einar Ben í þessari mynd.“
VILT ÞU HAFA ÁHRIF Á
ÞRÓUN DANSLEIKHÚSS
Á ÍSLANDI?
DANSLEiKFiUS
SAMKEPPNi
Leikfélag Reykjavíkur og fslenski dansflokkurinn
óska eftir hugmyndum að dansleikverkum fyrir
daðan hóp leikara og dansara
Dansleikhússamkeppni LR og ÍD verður haldin 1 fimmta sinn í júní.
Tilgangur keppni af þessu tagí er að styðja undir dansleikhúsformið
og kanna möguleika þess. Frábært tækifæri fyrir fólk i listum til að
hafa áhrif á þróun spennandi listforms sem enn er ungt á íslandi.
LISTAI
Fáöu hugmynd aö verki sem
sameinar leikhús og dans og
sendu hugmyndina og
upplýsingar um þig til okkar
fyrir 19/02/2007.
12 hugmyndir verða valdar til
frekari þróunar.
L Að TAKA ÁSKORUNINNI!
6 hugmyndir veröa valdar til útfærslu.
Höfundar leggja til leikara/dansara til
verkefnisins.
Borgarleikhúsið ieggur til aðstöðu.
Dansleikhússamkeppnin verður haldín
á Stóra sviði Borgarleikhússins 7. Júní.
Skipuð dómnefnd veitir verðlaun.
Áhorfendur velja sitt eftirlætisverk.
■>i
Útlistun á hugmynd ásamt upplýsingum um höfund/höfunda skal merkja
"dansleíkhúskeppni"og senda með tölvupósti á borgarleikhus@borgarleikhus.is
Móðir jörð
Daði sýnir þrjú verk á sýning-
unni, tvö stór málverk og eitt litið.
„Annað stóra verkið heitir Norður-
ljós. Myndin er í blásvörtum lit og
þar er rafmagnsljósapera um borð
í báti skáldskaparins um vetrarnótt
og norðurljósin mála himininn.
Það er kannski dálítill Einar Ben
í þessari mynd: Annars vegar eru
norðurljósin sem eru eitt það róm-
antískasta sem til er á norðurhveli
og hins vegar rafmagnið og raun-
veruleikinn. Hitt stóra verkið heitir
Ljóð til jarðarinnar en jörðin er hin
stóra uppspretta alls - og er móðir
okkar.“
Litla myndin heitir Indian Summ-
er og er hugleiðing um andlega
heima í tengslum við sahaja-jóga.
Það var eins konar endurfæðing fyr-
ir mig að byrja í jóga vegna þess að
þar nær maður sambandi við and-
lega heima og um leið nær maður
betra sambandi við sjálfan sig og
fær meiri jafnvægi í lífið. Mér líður
miklu betur og finnst ég vera betri
maður eftir að ég fór að stunda sa-
haja-jóga.“
Gamanaðvinna
Þegar Daði er spurður hvort hann
megi ekki teljast afkastamikill mál-
ari segir hann: „Afköstin eru allt-
af að minnka og það verður sífellt
seinlegra að búa til nýja mynd. Þeg-
ar ég var að byrja feril minn málaði
ég stórar myndir og var fljótur að
mála. Nú eyði ég meiri tlma í hverja
mynd. Mér finnst gaman að vinna.
Það eru forréttindi að fá að vinna
við það sem veitir manni ánægju.“
menningarmolinn
Friöarleiötogi
myrtur
Á þessum degi árið 1948 var ind-
verski friðarleiðtoginn Mohandas
Gandhi myrtur í Nýju-Delí en tíu
dögum áður hafði tilræði við hann
mistekist.Gandhivarpólitískurleið-
togi Indverja, fór fyrir friðsamlegri
baráttu Indverja fyrir sjálfstæði frá
Bretum, hreyfingu sem tugir millj-
óna Indverja tóku þátt í.
Morðingi Gandhis var Nathuram
Godse, öfgafullur hindúi, sem skaut
Gandhi þar sem hann var í þann
mund að leiða bænastund. Godse
reyndi að svipta sig lífi eftir morðið
en mistókst. Á næstu dögum voru
fjórir aðstoðarmenn hans handtekn-
ir. Godse sýndi enga iðrun vegna
glæps síns. Hann var hengdur í nóv-
embermánuði 1949. Synir Gandhis
höfðu beðið honum griða því þeir
töldu að aftakan væri andstæð öllu
því sem faðir þeirra hafði trúað á.