blaðið - 30.01.2007, Side 24
32 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2007
blaðið
íþróttir ithrottir@bladid.net % m' \ # í sjöunda himni Tiger Woods vann Buick Invitational-mótið um helgina og tryggði sér þannig sinn sjöunda titil í röð á PGA-mótaröðinni í Bandaríkj- unum. Aðeins einum manni hefur tekist að vinna fleiri mót i röð en það var fyrir 60 árum þegar Byron Nelson var upp á sitt besta.
Skeytin i|m
Nýtt stórstirni er
að fæðast í Barc-
elona í mynd
Javiers Saviola sem
leikur við hvern sinn
fingur ogtær þessa
dagana. Kanínan, sem
er viðurnefni Saviola
vegna smæðar og framstæðra tanna,
skoraði fyrsta mark Barca í 3-1 sigri
gegn Celta Vigo um helgina. Var það
áttunda mark hans fyrir liðið á 19
dögum og hans tólfta í vetur. Erfitt
verður fyrir Eið Smára að komast
í liðið við slíkar kringumstæður og
ekki bætir úr skák fyrir okkar mann
að Samuel Eto '0 æfir stíft og er að
komast í leikform eftir löng meiðsli.
Italskir sagnfræðingar verða að
gera sér að góðu að endurskrifa
knattspyrnusögu landsins
vikulega þessa dagana enda virðist
ekkert stöðva sigurgöngu
Inter Milan. Hefur liðið
nú unnið þórtán leiki í
röð eftir útisigur á
Sampdoria um helg-
inaoghefúrellefu
stigaforskotá
lið Roma í
öðru sæti.
Þessi hð
mætast um
næstu helgi og má
telja fullvíst að Inter vinni titilinn ef
Rómverjar ná ekki stigi eða stigum.
Edgar Davids mun að líkind-
umendaferilsinn
þarsemhann
hófst hjá Ajax í Hollandi
en Martin Jol segist
htil not hafa
fyrir hann hjá
Tottenham þrátt
fyrir að Davids
hafi spilað vel
fyrir liðið á
síðustu leiktíð.
Beinar útsendingar
16.20 RUV
Handbolti
Þýskaland - Spánn
>11 18.50 RUV
JliL: Handbolti
Lið-a-mót
FRÁ ÍÍS®
www.nowfoods.com
GIT1P NNFA QUALITY
GÓÐ
HEILSA
GULLI
BETRI
OG HEILSUBÚÐIR
Islendingar draumamótherjar Dana ■ Danir sigurvissir Ekki unnið okkur í þrjú ár
Alexander
34 mörk
Oechsler
12 mörk
Ólafur
32 mörk
Stryger
18 mörk
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@bladid.net
íslenska landsliðið í handbolta
leikur f kvöld einn mikilvægasta
leik sem íslenskt landslið hefur
nokkru sinni leikið þegar strákarnir
mæta Dönum í fjórðungsúrslitum
HM í Þýskalandi. Með sigri nær
liðið lengra en það hefur áður náð
á heimsmeistaramóti en besti ár-
angur Islands hingað til er fimmta
sætið á HM í Japan fyrir tíu árum.
Leikur gegn Dönum er að margra
mati auðveldari en gegn öðrum
þjóðum sem eftir eru f úrslitunum
en hið sama segja Danir um ísland.
Leikmenn þess margir eru fullvissir
um sigur og þjálfari Dana sagði Is-
land óskamótherja í þessari umferð.
Tölfræðilega hafa Danir þó ekki
haft betur gegn íslensku strákunum
síðan í maí 2004 en í síðustu þremur
leikjum hafa Islendingar unnið
einn og tvisvar sinnum orðið jafnt-
efli. Staðan versnar til muna sé litið
lengra aftur í tímann eins og sést á
meðfylgjandi töflu.
Danir náðu þó ólíkt íslendingum
að hvíla flesta sína lykilmenn að
Birkir
34%
Hvidt
39%
Knudsen
24 mörk
Logi
36 mörk
Christiansen
29 mörk
Guðjón
47 mörk
Boesen
29 mörk
mestu eða öllu leyti í síð-
asta leik sínum í riðlakeppninni
og getur það haft sitt að segja enda
mikið álag á leikmenn og eins dags
hvíld milli leikja hefur ekki mikið
að segja.
Alfreð Gíslason hugðist leika
sama leik í leik Islands gegn Þjóð-
verjum en lykilmenn komu þó fljót-
lega inn á þegar syrta fór verulega
í álinn í þeim leik. Eru þannig þrír
íslenskir leikmenn búnir að spila
lengur en sá Dani sem lengst hefur
spilað fyrir leikinn í dag.
Ein afleiðing þess að danski þjálf-
arinn dreifir álaginu á marga menn
kemur fram í tölfræði mótsins en
þar finnast danskir leikmenn vart
á listum. Guðjón Valur er marka-
hæstur íslendinga með 47 mörk
en markahæsti Daninn er Lasse
Boesen með 29 mörk. Ólafur Stef-
ánsson leiðir mótið yfir flestar stoð-
sendingar með 35 slíkar en efsti Dan-
inn, Jesper Jensen, er aðeins með 15.
Enginn Dani kemst á topp 40 yfir
mörk og stoðsendingar en ísland á
þar fjóra leikmenn; Olaf Stefánsson,
Loga Geirsson, Guðjón Val og Alex-
ander Petersson.
SÍÐUSTU LEIKIR
Jan 07 Island-Danmörk 28-28
Jún 06 Island-Danmörk 34-34
Jún 06 Island-Danmörk 34-33
Jan 06 Island-Danmörk 28-28
Mai 04 Island-Danmörk 25-36
Jan 04 Island-Danmörk 33-28
Maí 03 Island-Danmörk 31-32
Maí 03 Island-Danmörk 36-31
Jan 03 Island-Danmörk 23-32
Mar 02 fsland-Danmörk 26-32
Feb 02 Island-Danmörk 22-29
Jan02 Island-Danmörk 24-28
Jan 00 Island-Danmörk 24-26
Leikir frá aldamótum: 13
Sigrar: 3 - Jafntefli: 3 - Töp: 7
Samtals landsleikir þjóðanna: 93
Island sigrað 33 sinnum Danir sigrað 47 sinnum Jafntefli 13sinnum
ÞREYTUSTUÐULL:
(LEIKNAR MÍNÚTUR)
FJÓRÐUNGSÚRSLIT:
ísland - Danmörk
Spánn - Þýskaland
Króatía - Frakkland
Pólland - Rússland
Guðjón Valur 6:44:00
Alexander Petersson 6:28:00
Ólafur Stefánsson 5:19:00
Logi Geirsson 4:23:00
Birkir Ivar 4:03:00
Snorri Guðjónsson 3:45:00
Sigfús Sigurðsson 3:14:00
Michael Knudsen 5:14:00
Kasper Hvidt 5:08:00
Lars Christiansen 4.34:00
Sören Stryger 4:24:00
Joachim Boldsen 3:54:00
Lasse Boesen 3:43:00
Anders Oechsler 2:55:00
LEIKIR DANA í KEPPNINNi:
Danmörk - Ungverjaland 29-30
Danmörk - Angóla 39-20
Danmörk - Noregur 27-25
Danmörk - Króatia 26-28
Danmörk - Spánn 27-23
Danmörk-Rússland 26-24
Danmörk-Tékkland 33-29
Markatala: + 28
Alfreð hættir með landsliðið
Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari
fslands, mun hætta þjálfun þess í
sumar og einbeita sér að þjálfun
þýska félagsliðsins Gummersb-
ach sem Alfreð þjálfar einnig.
Frá þessu er skýrt í þýskum fjöl-
miðlum og er ástæðan sögð per-
sónuleg. Einar Þorvarðarson,
framkvæmdastjóri HSÍ, vildi
ekki staðfesta þetta þegar
eftir því var leitað en fyrir
liggur að samningur Al-
freðs rennur út í júlí. „Nú
er HM og við einbeitum
okkur að því. Það liggur
ekkert fyrir með fram-
haldið að svo stöddu.”
Hinum megin geta
Danir vart hætt að
hrósa sfnum þjálf-
ara, Ulrik Wilbek, og
danska handknattleiks-
sambandið vill nú
þegar framlengja
samninginn við
hann sem rennur
þó ekki út fyrr en
eftir eitt ár. Þykir
danska liðið ekki
hafa staðið sig betur
lengi og telja margir
fjölmiðlar næsta
víst að Danir
komist létt í
gegnum við-
ureignina við
íslendinga í
dag.