blaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 7
blaðið
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 7
Ai.
•Jt ' •%'«**.
ÚR RÉTTARSALNUIVI
Fékk ekki að vera „memm“
Saksóknari spurði Hrein Loftsson mikið
út í skemmtibátinn fræga Thee Vlking en
Hreinn kvaðst ekkert vita um bátinn og
svaraði því til nokkuð súr i bragði að Jón
Ásgeir hefði aldreiboðið honum um borð
í bátinn.
Af því að hann flýtur
Jóhannes Jónsson fékk sömuleiðis sinn
skerf af spurningum út í Víkinginn. Hann
svaraði því meðal annars til að hann heföi
ætlað að nota bátinn til skemmtunar og
yndisauka, rétt eins og annað fólk sem hafi
keypt sér fasteignir erlendis. Hins vegar
hafi fjárfesting hans hlotið meiri athygli en
annarra... af því að hún flýtur.
Enginn fjósamaður
Myndlíkingin um fjósamanninn og mjólkina
kom enn og aftur við sögu i Baugsmálinu i
gær og að þessu sinni var það Hreinn Lofts-
son sem vék að henni. „Allir sanngjarnir
menn vita að Jón Ásgeir Jóhannesson
lagði sig í lima að vera ekki sakaður um að
taka mjólk úr fjósinu."
Ekki meira?
Vitnaleiðslur yfir Sigfúsi i Heklu tóku að-
eins um 15 mínútur og ekki laust að hann
hafi orðið heldur hissa þegar saksóknari
kvaðst hafa lokið máli sínu. „Allt búið?“
kvað Sigfús við frekar hissa.
Ég veit að þú veist að ég veit
Jakob Möller, verjandi Tryggva Jónssonar,
sá sig tilneyddan að mótmæla sögusögn-
um saksóknara um bátinn fræga með þeim
rökum að saksóknari geri sér grein fyrir
þvi að þær hafi ekki sönnunargildi. „Það
er gott að þú veist hvað ég veit,“ svaraði
saksóknari að bragði.
Hryðjuverkamenn
Jóhannes Jónsson er með skilgreininguna
um húsleit lögreglu á hreinu i sambandi
við það sem hann lýsir sem mesta brjálæði
Islandssögunnar. „Þetta var ekki húsleit.
Þetta var skemmdarverk, hryðjuverk."
Jóhannes segir Baugsmálið apaspil frá upphafi:
Forsætisráðherra var fársjúkur
Þetta er nú ekki það skemmtileg-
asta sem maður tekur þátt í,“ sagði
Jóhannes Jónsson er hann gekk út
úr dómsal í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær. Hann segir þó mál-
inu ekki lokið og býst við að-
þurfa að mæta öðru hvoru
fyrir rétt næstu tvö árin.
„Eg er búinn að segja að þetta
sé apaspil frá upphafi og það
heldur áfram sem slíkt.
Þetta getur tekið eitt
til tvö ár í viðbót og
þá verður þetta mál
búið að taka tíu pró-
sent ævinnar.“
Jóhannes hefur
haldið því fram að málið sé tilhæfu-
laust og hafi verið það frá upphafi.
,Það sést þegar æðsti maður þjóðar-
innar lætur það út úr sér sem stjórn-
arformaðurinn okkar [Hreinn
^. Loftsson] sagði í morgun, að
1} við værum glæpahyski og
ij, við ættum að vera í fangelsi.
Það er grunnurinn að mál-
inu og málatilbúnaðurinn
eftir því,“ segir hann
og lítur á ummæli
Davíðs Oddssonar,
fyrrum forsætis-
ráðherra, sem
hótun. „Hann
var búinn
að hóta okkur í þinginu áður en
það verður að virða honum til vor-
kunnar að á þessum tímapunkti
þegar þetta á sér stað er maður-
inn fárveikur. Þá á ég við það að
hann lagðist skömmu seinna inn
á spítala og gekkst undir alvarlega
uppskurði.“
ijyiJJU/J Hi
HEILSUDYN
Ein besta heilsudýna í heimi
IQ-CARE aðlagast fullkomlega að líkamanum og tryggir dýpri og betri svefni.
IQ-CARE er svæðisskipt og gefur því réttan stuðning fyrir mjóbak og axlir.
IQ-CARE er með opnari efniseiginleika en flestar vörur úr skyldum efnum og andar því betur.
IQ-CARE aðlagast hraðar að líkamanum en flest rúm úr skyldum efnum.
IQ-CARE er ein sterkasta efnablanda sem þróuð hefur verið og endist því lengur en skyldar vörur
IQ-CARE þrýstijöfnunarefnið er mikið notað og viðurkennt af sjúkrahúsum og heilsustofnunum.
VELDU AÐEINS ÞAÐ BESTA!
S-CAPE
WALLHUGGER
okkar bestu ICV-CARE heilsudýnu
Dæmi: 160 x 200 cm kr. 369.900 stgr.
Rúm sem dregst að veggnum þannig
að þú helst við hlið náttborðsins.
• Mest seldi botninn í heiminum.
• Upplýst þráðlaus fjarstýring með
öllum stillingum.i.
• Sterkir og hljójátir þýskir
lyftumótorar.
• Sér stilling fyrir höfuðlag.
• Öflugir nuddmótorar með
sjálfvirkum tímarofa.
• Einn allra sterkasti stálgrindarbotn
sem framleiddur er í dag.
• Öll liðarmót úr flugvélaplasti.
• 12áraábyrgð.
Loftrúm án rafmagns
Hjónarúm með
okkar bestu IQ-CARE heilsudýnu
Dæmi: 160 x 200 cm kr. 219.900 stgr.
Mest selda stillanlega rúmið
Frábær reynsla á íslandi frá árinu 2000.
• Sterkir og hljóðlátir þýskir mótorar.
• Stýring er einföld og þægileg.
• Mýkra axlasvæði og stillanlegt
mjóbakssvæði.
• Hægt að fá stillanlega fætur sem
ráða hæð rúmsins.
• 5 ára ábyrgð.
Ef þig vantar gott og sterkt stillanlegt
rúm þá er BIFLEX lausnin.
Frí þrýstijöfnunarmæling
sem greinir hvaða dýna
hentar þér best
SVEFN & HEILSA GEGNIR MIKILVÆGU HLUTVERKI
Í.UIB lUlfi.
Svefn&heilsa
^ ★★★★★
Svefn&heilsa
W. ★★★★★
AKUREYRI
Etill.t. I’ORSTI INSSON KIRÖPRAKTOR
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Dalsbraut 1, Akureyri, 461 1150
Opið virka daga 10:00 - 18:00 - laugardaga 11:00 - 16:00
www.svefn.is