blaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 22
ÞRIÐJUDAGUR 27. PEBRÚAR 200
blaöiö
ferdir@bladid.net
Frosið vatn á ströndina
[ (slendingar eru fæstir vanir miklum hita og þurrki og því geta þeir oröiö
! afar þyrstir á sólarströndum. Mikil álagning er jafnan á drykkjum sem
| seldir eru á ströndunum auk þess sem dósir og flöskur hitna fljótt í sólinni.
Best er að setja vatnsbrúsa í frysti yfir nótt áður en haldið er á ströndina.
Útlensk lög
Áður en haldið er í ferðalag til framandi lands getur verið afar gagn-
legt að fletta uþþ í og lesa stjórnarskrá landsins og ef til vill fleiri
lög. (slenska stjórnarskráin fylgir ekki hérlendum ferðamönnum til
útlanda og dýrkeypt getur reynst að gleyma þeirri staðreynd.
Manx, mál Manar
Á eyjunni Mön í (rlandshafi búa um
80.000 manns, þar af um 26.000 í
höfuðborginni Douglas, eða Dool-
ish eins og hún er stundum kölluð.
Áður fyrr töluðu íbúar eyjarinnar
flestir tungumálið manx sem er
náskylt gelísku og írsku, en síðasti
maðurinn sem hafði manx að móð-
urmáli lést árið 1974 og er enska op-
inbert tungumál eyjarinnar. Málið
lifir hins vegar ennþá þar sem það
er kennt í skólum, en sjaldgæft er
að fólk tali það sín á milli.
Indlandsævintýri
Sögufrægar borgir, arfleifð breska
heimsveldisins og mikill fjölbreyti-
leiki mannlífs og landslags gerir
Indland að eftirlætisáfangastað
ófárra ævintýraþyrstra ferðalanga.
Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn býður
upp á vorferð til þessa áhugaverða
« lands þann 3.-11. apríl og haust-
ferð þann 7.-23. nóvember með
íslenskri fararstjórn Sigmundar M.
Andréssonar. Indland er sjöunda
stærsta land í heimi og óhætt er að
segja að það sé jafnfjölbreytilegt
og það er stórt.
Borgarferð
til Kanada
Heimsferðir bjóða upp á ferð til
tveggja vinsælla kanadískra borga
16.-23. ágúst. Um er að ræða ann-
ars vegar borgina Quebec, sem er
þekkt fyrir sérstaklega blómlegt
lista- og menningarlíf, fallega
garða og áhugaverðar byggingar.
Hin borgin er Montreal sem er
nútímalegri með háhýsi innan um
m gamlar fallegar byggingar sem tek-
ist hefur að varðveita einstaklega
vel, fræg breiðstræti, sögufrægar
byggingar og urmul skemmtistaða
og kaffihúsa.
Flogið er (beinu leiguflugi til
Montreal og ekið þaðan til Quebéc.
Nánar á heimsferdir.is.
íslenskir hjúkruxiarfræðinemar:
r
I mannúðarferð
til Keníu í vor
Þann 17. maí næst-
komandi ætla átta
ungar íslenskar kon-
ur að fljúga alla leið-
ina til Nairobi í Ken-
íu og dveljast þar í
fjórar vikur. Þessar
átta konur eru all-
ar nemar á öðru ári í hjúkrunar-
fræði í Háskóla íslands og ætla
að starfa á heilsugæslustöðvum
í einu af fátækustu hverfum borg-
arinnar. Blaðið tók hús á tveimur
þeirra, þeim Halldóru Ögmunds-
dóttur og Lilju Þórunni Þorgeirs-
dóttur og fræddist um undirbún-
ing og aðdragandann að þessu
metnaðarfulla verkefni.
„Samtökin Provide Internation-
al reka nokkrar heilsugæslustöðv-
ar þarna og við förum út á þeirra
vegum,“ segir Lilja Þórunn. „Við
vorum nokkrar sem byrjuðum að
leita að hjálparsamtökum sem
við gætum gengið til liðs við og
hittum læknanema sem heitir Eyj-
ólfur og hefur farið til Nairobi
með þessum samtökum. Hann
setti okkur í samband við þau og
hefur sýnt okkur myndir frá því
að hann var þarna þannig að við
vitum að vissu leyti við hverju
við megum búast.“
Um átta manna hópinn sem hef-
ur valist til þessarar ferðar segja
þær að innbyrðis hafi stúlkurnar lít-
ið þekkst fyrir. „Þetta hefur verið
gamall draumur hjá okkur öllum,
að fara að vinna við hjálparstörf
af þessu tagi og þess vegna erum
við núna búnar að mynda hóp sem
ætlar að ferðast saman,“ segir Hall-
dóra. „Við stöndum í ströngu þessa
dagana við að safna styrkjum fyrir
ferðinni og það hefur gengið mjög
Hópurinn Islensku hjúkrunarfræði-
nemarnir sem ætla til Nairobi í mai.
hilduredda@bladid.net
Konungurinn hylltur
Nú er ég búin að vera að ferðast
í Taílandi í 12 daga ásamt unnusta
mínum og tveimur vinum okkar.
Ferðalagið hefur gengið mjög vel
ef frá eru talin einstaka moskít-
óbit. Þegar við lentum í Bangkok
tók heill her af bílstjórum á móti
okkur. Þeir voru átta talsins að
snúast í kringum okkur, röðuðu
farangrinum í bíl-
inn og slógu á
létta strengi.
Þetta voru okk-
ar fyrstu kynni
af Taílandi og
við fundum strax
fyrir þeirri miklu
glaðværð og þjón-
ustulund fólks sem ég
hafði heyrt svo mikið
um og það er ekki of-.
sögum sagt að fólkið
hér er yndislegt. Við
eyddum fjórum dögum í Bang-
kok sem er einstaklega skemmti-
leg borg og iðar af lífi hvert sem
litið er. Hótelið sem við gistum á
er staðsett í Sukhumvit-hverfinu
sem er mikið viðskiptahverfi, en
hér í borg sér maður flestar hlið-
ar mannlífsins; fátækt í bland við
ríkidæmi, götusala, skóla-
krakka, alls kyns
veitingastaði og ur-
mul ferðamanna.
Það fyrsta sem
við tókum eftir
úti á götu var að önn-
ur hver manneskja var í
gulum bol. Við veltum því
fyrir okkur hvort þetta
Fiiippseyjar væru skólabúningar
eða búningar rík-
j. isstarfsmanna en
síðan fréttum við
• ' * að guli liturinn
meö gulum lit
er litur konungsins og á mánudög- gengt að fólk klæðist bláu, en það
um klæðist fólk gulu til að hylla er þó ekki eins áberandi.
konunginn. Blár er litur drottn-
ingarinnar og á föstudögum er al- Framhald í næstu viku...
Nairobi / fátækustu hverfum
Nairobi, höfuöborgar Keníu, býr
fólk við mikla fátækt og fjölmarg
ir eru smitaðir af HlV-veirunni.
þessari lífsreynslu. „Við verðum
allar saman í herbergi í heilan
mánuð þannig að það er spurning
hvernig stemningin verður í hópn-
um í lok dvalarinnar," segir Lilja
kankvís. „Við veltum því töluvert
fyrir okkur hversu lengi við ætt-
um að dveljast úti og komumst
sameiginlega að þeirri niðurstöðu
að einn mánuður væri passlegur
til að byrja með. Þetta verður ef-
laust mjög nýtt og framandi fyrir
okkur og ef ég þekki okkur rétt
eigum við eftir að óska þess að
við gætum tekið öll börnin sem
við sinnum með okkur heim þótt
það verði auðvitað ekki í boði.“
Fyrir þá sem vilja styrkja þenn-
an metnaðargjarna hóp hjúkrunar-
fræðinema til fararinnar er hægt
að leggja frjáls framlög inn á
bankareikninginn 1158-26-5801,
og kennitalan er 580107-0600.
vel. Við eigum enn dálítið í land
og ef einhver afgangur verður,
eftir að búið er að fjármagna för-
ina, verður hann notaður í kaup á
hjúkrunarvörum fyrir heilsugæslu-
stöðvarnar þannig að ekkert fer til
spillis,“ bætir hún við.
Bágbornar aðstæður
Halldóra hefur ekki áður farið til
Afríku en Lilja Þórunn hefur áður
verið túristi í Suður-Afríku. „Þar
sá ég einmitt svona fátækrahverfi
svipuð því sem við hyggjumst
starfa í í Nairobi en upplifunin
var auðvitað allt önnur þar sem ég
fór ekki inn í þau,“ segir hún. Nú
verða stöllurnar hins vegar starf-
andi með fátækustu íbúum Nairo-
bi sem búa sannarlega við þröng-
an kost. „Það er engin tilviljun að
ekki er vitað nákvæmlega hversu
margir búa þar,“ segir Halldóra.
„í mörgum tilfellum búa jafnvel 10-
12 manna fjölskyldur í 6 fermetra
kofum og þurfa að framfleyta sér
á einum dollara á dag eða minna.
„/ mörgum tilfellum búa
jafnvel 10-12 manna fjöl-
skyldur í 6 fermetra kofum
og þurfa aö framfleyta sér
á einum dollara á dag eða
minna.“
Fjölmargir eru HlV-smitaðir og
fæstir hafa efni á almennri heil-
brigðisþjónustu. Okkur skilst að
glæpatíðni sé nokkuð há þarna
enda munum við alltaf vérða sótt-
ar í vinnuna og keyrðar aftur heim
og ætlum ekki að vera úti eftir að
dimma tekur. Reyndar eru starfs-
menn Provide-samtakanna sjaldn-
ast í nokkurri hættu þar sem þeir
veita einu hjálpina sem íbúum
þessara hverfa býðst.“
Ný og framandi reynsla
Lilja Þórunn og Halldóra eru af-
ar spenntar fyrir ferðinni og telja
fullvíst að þær muni alltaf búa að