blaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 21
blaðið
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 29
Nýsköpun
verðlaunuð
Fimm verkefni eru tilnefnd til
Nýsköpunarverðlauna forseta
íslands sem verða afhent á
Bessastöðum á morgun. Verk-
efnin eru af ýmsum toga og fjallar
eitt til dæmis um áhrif aldurs á
utangenamerki mannsins, annað
um nýsköpun í sýndarverum og
enn eitt um þráðlausa mælingu
stökkkrafts. Þá eru einnig tilnefnd
verkefni sem gengu út á hönnun
og smíði nýrra tækja. Rafmagns-
flugan er verkfæri til að draga
snúrur og leiðslur í röralagnir og
Geo-breeze er handþurrka sem
byggir að langmestum hluta á
hitun með hitaveituvatni í stað
hefðbundinna rafmagnsvíra.
Nýsköþunarverðlaun forseta
íslands eru árlega veitt þeim
námsmönnum sem hafa unnið
framúrskarandi starf við úrlausn
verkefnis sem styrkt var af
Nýsköpunarsjóði námsmanna.
Markmið sjóðsins er að stuðla að
nýsköpun jafnt fyrir atvinnulíf sem
á fræðasviði.
Fyrir sumarið 2006 bárust
sjóðnum alls 277 umsóknir um
styrki. Þar af hlutu 145 verkefni
styrk og voru unnin af 156
stúdentum.
Dagur ungra
fræðimanna
Sex ungir fræðimenn munu flytja
erindi tengd rannsóknum þeirra á
sviði Evrópumála í fundarsal Þjóð-
minjasafns Islands á morgun kl.
13. Erindin sem kynnt verða taka á
ólíkum þáttum Evrópusamrunans,
frá innleiðingu tilskipana ESB á
íslandi til rannsóknar þýsks stjórn-
málafræðings á afstöðu íslend-
inga til Evrópusamrunans. Meðal
annars mun Bjarni Már Magnússon
flytja erindi um þróun íslenskra
hagsmuna í hafrétti eftir lok þorska-
stríðanna. Bjarni er ungur lögfræð-
ingur sem útskrifaðist á dögunum
með meistaragráðu í aþjóðasam-
skiptum frá Háskóla íslands. Flutt
verður erindi um norrænt samstarf
innan Evrópusambandsins, annað
um uppbyggingu Evrópuvitundar
og loks ræðir doktor í lögfræði
evrópskan samningarétt sem gæti
haft gífurleg áhrif á ESB- og EES-
löndin.
Fundarstjóri er Ólafur Þ. Harðarson,
deildarforseti félagsvísindadeildar
Háskóla Islands.
Fundurinn stendur frá kl. 13-16 og
um miðbik hans verður gert hlé
og gestum boðnar léttar veitingar.
Dagskráin er í tilefni dags ungra
fræðimanna sem Alþjóðamála-
stofnun Háskóla íslands og Samtök
iðnaðarins standa að. Dagskráin er
öllum opin og aðgangur ókeypis.
Væntingar ungmenna vanmetnar
Misræmi er á milli niðurstaðna
í skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu
þjóðanna (UNICEF) um náms- og
starfsvæntingar íslenskra ung-
menna og innlendra kannana um
sömu mál.
Eitt af hverjum þremur (32,9 pró-
sent) fimmtán ára ungmennum
á Islandi býst ekki við að stunda
störf sem krefjast menntunar við
30 ára aldur samkvæmt skýrslu UN-
ICEF. I skýrslunni sem er nýkomin
út er fjallað um velferð barna og
ungmenna í löndum sem eru efna-
hagslega best sett í heiminum.
Bjartari mynd
I nýjasta vefriti menntamálaráðu-
neytisins er bent á að þessi útkoma
sé ekki í samræmi við þau gögn sem
ráðuneytið og Námsmatsstofnun
hafa undir höndum og gefa mun
bjartari mynd af væntingum ís-
lenskra ungmenna til frekari mennt-
unar og framtíðarstarfa.
Nær allir nemendur 10. bekkjar
sjá fyrir sér að fara í störf sem krefj-
ast umtalsverðrar menntunar sam-
kvæmt könnunum sem Námsmats-
stofnun hefur lagt fyrir úrtak bekkja
i kjölfar samræmdra prófa. Um 76
prósent nemenda í 10. bekk stefndu
á háskólanám samkvæmt niðurstöð-
um könnunar Námsmatsstofnunar.
Þá hefur ásókn ungs fólks í mennt-
un á æðri stigum aukist á undanförn-
um árum. Það kemur fram í skýrsl-
unni Ungt fólk 2006 sem byggð er
á könnun meðal nemenda í 9. og 10.
bekk grunnskóla vorið 2006.
Byggt á gömlum tölum
Nánari skoðun á UNICEF-skýrsl-
unni leiddi í ljós að tölurnar sem
gefnar eru upp eiga rætur sínar að
rekja í alþjóðlegu PISA-könnuninni
frá árinu 2000. Svipaðar kannan-
ir voru gerðar á síðasta ári og árið
2003. Ekki liggja fyrir niðurstöð-
ur könnunarinnar sem gerð var í
fyrra en árið 2003 sögðust hátt í 80
prósent nemenda telja að þeir muni
vinna störf sem krefjast fag- eða
háskólamenntunar.
NAMSKEIÐ
STARFSNAM
Nám sem virkilega hefur skilað árangri. Lögð er rík
áhersla á að styrkja einstaklinginn, þjálfa hann í
verki og sjálfstæðum vinnubrögðum.
Skrifstofu- og tölvunám - 258 st.
19.3 til 30.5 | Alla virka morgna
ALMENNT TÖLVUNAM
Tölvan er stór og ört vaxandi þáttur í daglegu
lífi fólks og í rekstri fyrirtækja. Því er símenntun
einstaklingsins oft það forskot sem ræður úrslitum
við ráðningu starfsfólks.
EDCL tölvunám fyrir byrjendur - 78 st.
11.4 til 23.5 | Tvö kvöld í viku
ECDL tölvunám fyrir byrjendur - 78 st.
27.3 til 24.5 | Tvo morgna í viku
Tölvunám - Fyrstu skrefin - 36 st.
5-21. mars | Tvö kvöld í viku
Tölvunám - Fyrstu skrefin - 36 st.
8-27. mars | Tvo morgna í viku
BÓKHALDSNÁM
í bókhaldsnámi NTV er lögð áhersla á að kenna
vel öll grunnhugtökin og vinnubrögð við bókhald.
Kennt er á Navision tölvubókhaldskerfið sem mjög
víða er notað.
Grunnnám í bókhaldi - 108 st.
29.3 til 4.5 | Alla virka daga
Grunnnám í bókhaldi - 108 st.
11.4 til 21.5 | Tvö kvöld í viku og fh. á lau.
MARGMIÐLUN
OG GRAFÍK
NTV er í forystu hvað varðar kennslu í grafík og
margmiðlun. Þessi námskeið eru frábær undir-
búningur fyrir þá sem hyggja á frekara nám eÖa
vilja starfa á sviði margmiðlunar og/eða gerð
kynningarefnis.
Photoshop Expert - 96 st.
11.4 til 21.5 | Tvö kvöld í viku
Dreamweaver - HTML - 72 st.
13.3 til 14.4 | Tvö kvöld og f.h. á lau.
Dreamweaver - gagnagrunnur - 84 st.
17.4 til 24.5 | Tvö kvöld og f.h. á lau.
Photoshop grunnnám - 30 st.
8.5 til 24.5 | Tvö kvöld í viku
Photoshop grunnnám - 30 st.
15.5 til 31.5 | Tvo morgna í viku
Myndbandavinnsla - Premiere - 36 st.
6-22 mars | Tvö kvöld í viku
SÉRHÆFT DIPLOMA NÁM
NTV hefur frá stofnun skólans 1997 lagt mikla
áherslu á sérhæft nám, sem tengt er alþjóðlegum
prófum, og hefur námið verið í stöðugri þróun enda
markmiðið að mæta þörfinni þar sem hún er mest
fyrir störf á þessu sviði.
Kerfisstjórinn - 180 st.
11.4 til október Tvö kvöld í viku og f.h. á lau.
Tölvuviðgerðir - 72 st.
11.4 til 7.5 Tvö kvöld í viku og f.h. á lau.
MCP XP netstjórnun -108 st.
19.3 til 7.5 | Tvö kvöld í viku og f.h. á lau.
Innritun og skráning í síma 544 4500 og á www.ntv.is
nlv.
Hlíðasmára 9 - 201 Kópavogur - Fax 544 4501 - skoli@ntv.is