blaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 9
blaöiö
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007 9
Steingrímur Leiðtogi Vinstri
grænna útiiokar ekkert.
spurning hvort Vinstri grænum tekst
að ná til þessara óákveðnu. Reynslan
sýnir að þeir eru oft og tíðum
miðjukjósendur."
Katrín Jakobsdóttir, varaformaður
Vinstri grænna, segir flokkinn ekki
geta verið annað en ánægðan með
niðurstöður kannana. „Þær sýna að
við höfum mikinn byr í seglum. Ég
er allavega vongóð með framhaldið
en tek þessu bara með ró og sé hvað
kemur á daginn 12. maí.“
Katrinu sýnist stefna í að umhverf-
ismálin geti orðið aðalmálið í kosn-
ingabaráttunni sem framundan er.
„Það eru allir flokkar búnir að setja
þau á dagskrá og það er náttúrlega
barajákvætt.“
Vinstri grænir vilja að frekari stór-
iðjuframkvæmdir verði stöðvaðar og
þannig verði náttúrunni gefin grið
og efnahags- og atvinnulífinu veitt
svigrúm til að jafna sig eftir þenslu
undanfarinna ára. Vinstri grænir
ætla að friðlýsa mikilvæg svæði og
taka frumkvæði í loftslagsmálum
á alþjóðavettvangi.
Sióræningjar á ferð Enn hafa
engar frettir borist af tolf manna
ahöfnmm.
Nordicphotos/AFP m
Sómalía:
Skipi Sameinuðu
þjóðanna rænt
Sjóræningjar rændu MV Rozen,
vöruflutningaskipi á vegum Sam-
einuðu þjóðanna, undan ströndum
Sómalíu í gær. Skipið lá við akkeri
eftir að hafa komið hjálpargögnum
til svæða í norðausturhluta lands-
ins þegar ræningjarnir réðust til
atlögu.
Enn sem komið er hafa sjóræn-
ingjarnir ekki sett fram neinar
kröfur og engar fréttir hafa bor-
ist um hvort einhver í tólf manna
áhöfn skipsins hafi særst. Sjórán
hafa verið algeng við strendur Sóm-
alíu, en eftir að íslamistar náðu
tökum á landinu dró skyndilega úr
þeim. Stjórnarher Sómalíu tókst að
hrekja íslamista frá landinu með
aðstoð Eþíópíuhers í desember
síðastliðnum.
á
P c n 1/ n
i—»u I l|\.
'c i G£i L! R F G R R G! R R
eða gefðu hann til góðgerðamála
nustuveri í síma 440 4000 eða á www.glitnir.is.
leiðis ekki tekist að hafa hendur í
hári Radovans Karadzic, leiðtoga
Bosníu-Serba í stríðinu. Karadzic
og Mladic hafa báðir verið ákærðir
fyrir stríðsglæpi.
Úrskurður Alþjóðadómstólsins
er talinn vera mikilvægur áfangi
fyrir Serba í þeirri viðleitni að ger-
ast aðili að Evrópusambandinu.
Boris Tadic Serbíuforseti hvatti serb-
neska þingið í gær til að samþykkja
ályktun þar sem morðin í Srebrenica
eru fordæmd. Tadic sagðist vona að
slík ályktun gæti bætt samskiptin
milli nágrannaríkjanna tveggja.
Vaxandi vandi í bílastæöahúsum:
• •
Okumenn
taka tvö stæði
Notkun á bílastæðahúsum hefur
aukist töluvert og nú er ekki lengur
hægt að ganga að stæðum vísum í
húsunum. Á meðan notkunin hefur
aukist hefur jafnframt borið meira
á því að ökumenn leggi hirðuleysis-
lega og taki fleiri en eitt stæði undir
bifreið sína.
„Vandinn hefur vaxið töluvert á
síðustu tveimur árum jafnhliða
aukinni notkun á bílastæðahús-
unum. Við getum lítið annað gert
en að biðja ökumenn um að draga
úr hirðuleysinu og leggja á milli lín-
anna sem settar eru,“ segir Stefán
Haraldsson, forstöðumaður Bíla-
stæðasjóðs Reykjavíkur.
Stefán biður ökumenn um að sýna
kurteisi og leggja innan merktra
stæða. „Þetta er orðið frekar hvim-
leitt í húsunum en heimild er fyrir
því að rukka utanhúss fyrir svona
lagað. Ástandið hefur versnað til
muna eftir að erfiðara varð að fá
stæði inni og þetta er farið að fara í
taugarnar á fólki,“ segir Stefán.