blaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 2007
blaóið
Pakistan:
Cheney í
heimsókn
Dick Cheney, varaforseti
Bandaríkjanna, mætti í óvænta
heimsókn til Pakistans í gær
og ræddi við Pervez Musharraf,
forseta landsins.
Cheney hvatti Pakistana til
að taka betur á talibönskum
uppreisnarmönnum nærri
afgönsku landamærunum, en
hrósaði Pakistönum jafnframt
fyrir þátt sinn í stríðinu gegn
hryðjuverkum. Eftir viðræð-
urnar hélt Cheney til Kabúl,
höfuðborgar Afganistans, til
viðræðna við Hamid Karzai, for-
seta Afganistans.
Formaður Vinstri grænna:
Utilokar ekki samstarf
við Sjálfstæðisflokk
■ Rétt afstaða ■ Mest gerjun í umhverfismálum ■ Óákveðnir oftast í miðju
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
„Ég hugsa að þeir geti vel unnið
saman. Ég held að það sé rétt hjá
Vinstri grænum að útiloka ekki sam-
starf við Sjálfstæðisflokkinn," segir
Einar Mar Þórðarson, stjórnmála-
fræðingur og forstöðumaður Félags-
vísindastofnunar Háskóla íslands.
Á landsfundi Vinstri grænna um
helgina sagði Steingrímur J. Sigfús-
son, formaður flokksins, stjórn
stjórnarandstöðuflokkanna aug-
ljósan fyrsta kost. Það þýddi hins
vegar ekki að hann væri að útiloka
samstarfvið Sjálfstæðisflokkinn.
„Flestar nýjar kannanir benda til
að stjórnin og stjórnarandstaðan
séu svipaðar að stærð og að það verði
tæpur meirihluti. Það er ólíklegt að
í þeirri stöðu haldi ríkisstjórnin
áfram eða að stjórnarandstaðan
taki beint við. Þá er auðvitað likleg-
asti kosturinn að Sjálfstæðisflokk-
urinn fari annaðhvort í samstarf
við Vinstri græna eða Samfylk-
inguna og að sjálfsögðu vill Stein-
grímur ekki útiloka það,“ segir
Einar Mar.
Vakning um umhverfismál
Einar kveðst gera ráð fyrir þvi
að mikil umræða sé innan Sjálf-
stæðisflokksins um umhverfismál.
„Þeir finna það eins og aðrir að
það er að verða ákveðin vakning í
þjóðfélaginu um umhverfismál og
þeir eru að bregðast við þvi. Þarna
eru komnir kandídatar sem eru
áberandi og hafa skilgreint sjálfa
sig sem hægri græna. Illugi Gunn-
Stjórnarand-
staðan augljós
--*§ „ j fyrstikostur
arsson fer þar til dæmis fremstur
í flokki," bendir Éinar Mar á og
bætir því við að almennt hafi verið
mikil gerjun hjá hægriflokkum í
umhverfismálum.
Einar Mar segir hægrimenn
almennt vera að hugsa þessi
mál upp á nýtt og út frá sínum
forsendum. „Ihaldsflokkurinn í
Bretlandi er kannski kominn
lengst í þessum efnum. Mesta
gerjunin í hægri hugmynda
fræðinni er í umhverfismálum."
Steingrímur J.
Slgfússon, formaður
Vinstri grænna
Mikillbyrí
seglum
Katrín Jakobsdóttir,
varaformaður
Vinstri grænna
Kjósendur á miðju óákveðnir
Samkvæmt nýlegum skoðanakönn-
unum eru margir óákveðnir. „Það er
sameiginlegt með öllum könnunum
sem eru að birtast núna og það er
Alþjóðadómstóllinn í Haag:
núnagetur þu
gefið afganginn
tilgóðgerðamála
Kláraðu málið hjá ráðgjöfum í næsta útibúi, í Þj
UÐ-AKTÍN
FXTRA
Heldur liðunum
liðugum!
tS) W) heilsa
SkfHH -haföu þaö gott
Serbar ekki sekir
Æðsti dómstóll Sameinuðu þjóð-
anna sýknaði í gær Serba af því að
bera ábyrgð á þjóðarmorði í stríð-
inu á Balkanskaga á síðasta ára-
tug. Alþjóðadómstóllinn í Haag í
Hollandi úrskurðaði hins vegar að
Serbar hefðu brotið alþjóðalög með
því að hafa mistekist að koma í veg
fyrir fjöldamorðin í Srebrenica árið
J995. þar sem um átta þúsund músl-
ímar voru teknir af lífi.
Bosníumenn sóttust eftir því að
Serbar myndu greiða marga millj-
arða í skaðabætur vegna þjóðar-
morðsins. Málið er hið fyrsta sinnar
tegundar þar sem ríki er ákært fyrir
þjóðarmorð, en nokkrir einstak-
lingar hafa þegar verið dæmdir fyrir
þjóðarmorð í Bosníu. Rúmlega íoo
þúsund manns létust í stríðinu sem
stóð frá árinu 1992 til 1995 og varð
kveikjan að upplausn Júgóslavíu.
Múslímar í Bosníu og Króatar
vildu slíta tengslin við stjórnvöld
í Belgrad, en Bosníu-Serbar mót-
mæltu þeirri fyrirætlan harðlega á
sínum tíma.
Réttarhöld í málinu hófust
fyrir um ári og hafa dómarar
ráðið ráðum sínum frá því að yf-
irheyrslum lauk í maímánuði sið-
astliðnum. Bosníumenn héldu því
fram að ráðamenn í Belgrad hefðu
kynt undir hatri á ákveðnum þjóð-
ernishópum, séð Bosníu-Serbum
fyrir vopnum og tekið virkan þátt
í fjöldamorðunum. Serbar sögðu
hins vegar stríðið vera innanrík-
isdeilu milli þjóðernishópa og að
stjórnvöld hafi ekki tekið neinn þátt
í drápum á almennum borgurum.
Forseti réttarins sagði að það
um þjóðarmorð
væri niðurstaða dómara að ekki
væri hægt að rekja þjóðarmorðin í
Srebrenica til stjórnvalda í Belgrad.
Dómurinn úrskurðaði hins vegar að
ráðamenn hefðu brugðist skyldum
sínum og brotið alþjóðalög með því
að hafa ekki tekist að koma í veg
fyrir fjöldamorðin og refsa þeim
sem ábyrgð báru á voðaverkunum.
Þá var skaðabótakröfum Bosníu-
manna hafnað.
Múslímar í Bosníu lýstu yfir
óánægju sinni með niðurstöðu rétt-
arins og fjölmargir mótmæltu fyrir
utan Friðarhöllina í Haag eftir að
niðurstaðan lá fyrir.
Dómstóllinn fór fram á það í gær
að serbnesk stjórnvöld framseldu
Ratko Mladic, hershöfðingjann
sem stjórnaði fjöldamorðunum
í Srebrenica, þegar í stað. Serbar
segja að þeim hafi ekki tekist að
handtaka Mladic, en saksókn-
arar Sameinuðu þjóðanna segja
að Mladic hafi tekist að forðast
handtöku með aðstoð serbneskra
öryggissveita. Hersveitum Atl-
antshafsbandalagsins hefur sömu-