blaðið - 02.03.2007, Síða 18
18
FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007
blaöi6
menning@bladid.net
Sýningin Foss stendur nú yfir á Kjarvalsstöðum.
Þar eiga verk listamennirnir Hekla Dögg Jónsdóttir,
Ólafur Elíasson, Pat Steir og Rúrí.
Skinnskór og súkkulaði
I Iðnaðarsafninu á Akureyri er að finna ýmislegt forvitnilegt
en á árum áður blómstraði iðnaður í bænum. Þar voru
meðal annars framleiddir skinnskór, súkkulaði, húsgögn
og málning. Safnið er opið á laugardögum frá 14-16.
Kynningar á
Ebsco Host
Á vegum landsaögangs að
gagnasöfnum og rafrænum tíma-
ritum verða haldnar kynningar á
Ebsco Host gagna- og tímarita-
söfnunum sem nýlega eru komin
í landsaðgang. Þau eru þar með
aðgengileg á öllum nettengdum
tölvum á landinu. Þau hafa að
geyma yfir 8000 tímarit, 200.000
myndir, orðabók, yfir 100.000
skýrslur af öllu tagi og fleira efni.
Kynningar verða í fyrirlestrarsal
Þjóðarbókhlöðu kl. 9, mánu-
daginn 5. mars, í Skriðu, sal
Kennaraháskóla íslands kl. 15,
mánudaginn 5. mars, í stofu
L201, Háskólanum á Akureyri við
Norðurslóð kl. 10, þriðjudaginn
6. mars og í Amtsbókasafninu
áAkureyri kl. 13, þriðjudaginn
6. mars. Kynningin í KHf verður
send út beint á vef skólans og að
því loknu verður hún aðgengileg
þar. Allar nánari upplýsingar eru
á hvar.is.
Veðurfar í ASÍ
Guðrún Kristjánsdóttir opnar
sýninguna Veðurfar í Ásmundar-
sal og Gryfju Listasafns AS( á
morgun klukkan 15.
Á sýningunni Veðurfar beitir
Guðrún öllum þessum aðferðum
til að teikna fram umlykjandi
mynd, eins konar umhverfi, þar
sem áhorfandanum er sökkt inn
í veröld veðurskrifaðra forma og
hugleiðinga um umhleypinga,
birtu og skuggaspil.
Guðrún les (landslagið eftir
veðurfarinu og fylgist með því
hvernig munstur umhleypinga,
svo sem snjómynstur í leysingum
og skaflar í hlíðum sækja á hug-
ann eins og skrift í bók sem við
skiljum ekki. Sú skrift verður ekki
lesin eins og bók en krefst þó
eins konar læsis sem er meira (
ætt við lestur á blindraletri, í sam-
þættingu upplifunar og abstrakt-
hugsunar.
Listasafn ASl er opið alla daga
nema mánudagafrá kl. 13.00-
17.00. Aðgangur er ókeypis.
að er líf og fjör á íslenska
myndlistarmarkaðnum
um þessar mundir og
verk gömlu meistaranna
hafa mörg hver
margfaldast í verði á mjög stuttum
tíma. Skemmst er að minnast
málverksins Hvítasunnudags
eftir Jóhannes Kjarval sem seldist
á 15,25 milljónir á uppboði í
Kaupmannahöfn nú í vikunni. Á
sunnudaginn kl. 19.00 efnir Gallerí
Fold til listmunauppboðs í Súlnasal
Hótels Sögu og þar eru í boði um
130 verk eftir marga af okkar helstu
listamönnum
„Þetta uppboð er líklega það
besta sem við höfum haldið þegar
horft er til gæða myndanna sem
verið er að bjóða upp. Það eru
ansi mörg stór verk í listsögulegu
samhengi. Þar ber líklega hæst
verk Þorvaldar Skúlasonar frá
1941 „Telpur í boltaleik". Þetta
er eitt af lykilverkum Þorvaldar
og tvímælalaust eitt hans besta
frá þessu tímabili. Þetta tiltekna
verk er að koma frá einkaaðila,
eldra fólki sem fékk það beint frá
listamanninum á sínum tíma og er
nú tilbúið til að selja,“ segir Jóhann
Hansen hjá Gallerí Fold. Aðspurður
segir hann nánast ómögulegt að
segja til um hvaða verð fáist fyrir
myndina en hún er metin á 3,2-3,5
milljónir. „Ef tveir eru að bítast um
hana þá gæti hún farið mjög hátt.
Ég spái því að það verði sett einhver
met í því sambandi.“
Meðal annarra listamanna
sem eiga verk á uppboðinu má
nefna Þórarin B. Þorláksson, Jón
Stefánsson, Mugg, Svavar Guðnason,
Louisu Matthíasdóttur, Einar
Jónsson og Jóhannes Kjarval. „Það
er óvenjumikið af góðum verkum
eftir þessa helstu listmálara okkar.
Til dæmis má nefna eitt lítið og
mjög fallegt verk eftir Louisu.
Einnig vorum við að fá mynd eftir
Gunnlaug Blöndal sem hefur verið
í einkaeigu í Bandaríkjunum í
áratugi.“ segir Jóhann.
Verðið fer hækkandi
Jóhann segir eftirspurnina eftir
verkum gömlu meistaranna hafi
margfaldast síðustu tvö ár.
„Þessi aukna eftirspurn hefur leitt
það af sér að fleiri eru tilbúnir til
þess að selja. Verðið hefur hækkað
og þá er fólk tilbúið til að selja. Þar
af leiðandi koma betri verk inn á
uppboðin. Þetta er sama þróun og
er að eiga sér stað í Bandaríkjum
og Danmörku. Verðið er að hækka
mikið þótt þær upphæðir séu á allt
öðrum skala úti í heimi en hér.“
Áföllin sem íslenskur
myndlistarmarkaður varð
Bitist um
gömlu meistarana
fyrir í kjölfar svokallaðs
málverkafölsunarmáls eru flestum
enn í fersku minni en Jóhann segir
augljóst að áhrif þeirra áfalla séu
nú nánast horfin. „Ég held að það
sé alveg ljóst að markaðurinn sé
búinn að jafna sig eftir þetta. Við
Háskólann á Bifröst var tekin saman
listaverkavísitala og það sýndi sig að
árið 2005 fór hún beint upp á við og
sú þróun hélt áfram 2006. Verk hafa
verið að fara á háu verði, til dæmis fór
verk hjá okkur eftir Ásgrím Jónsson
á yfir 6 milljónir og svo hefur fengist
mjög hátt verð fyrir Þorvald Skúlason
og svo auðvitað Kjarval. Einnig má
nefna verk eftir Mugg, en í þvi tilfelli
er skýringin líklega sú að það eru
mjög fá verk eftir hann sem koma í
sölu. Við seldum til dæmis pínulitla
mynd eftir hann á 1,5 milljónir á
síðasta uppboði."
Guðmudur frá Miðdal vinsæll
Allskonar fólk gerir sér ferð á
listmunauppboð Gallerís Foldar,
bæði áhugafólk sem vill fylgjast
með og einnig fólk sem staðráðið er
að fjárfesta í verkum. „Þetta hefur
verið fastur kjarni af fólki sem sækir
uppboðin okkar en upp á síðkastið
höfum við verið að sjá ný andlit og
yngra fólk. Þetta tengist auðvitað
aukinni velmegun í þjóðfélaginu
og yngra fólkið er smám saman að
taka við. íslensku söfnin senda líka
sína fulltrúa en eins og fram hefur
komið í umfjöllun undanfarinna
daga þá hafa þau úr ákaflega litlum
fjármunum að spila og eru ekki í
aðstöðu til að keppa við einkaaðila
um verk.“
Um tuttugu leirverk eftir
Guðmund frá Miðdal verða
boðin upp á sunnudaginn en þau
hafa margfaldast í verði á mjög
stuttum tíma. Jóhann segist ekki
hafa áttað sig á því hvað skýri þá
auknu eftirspurn. „Fálkinn hans
hefur notið mikilla vinsælda en á
síðasta uppboði okkar fór hann á
um 400.000 sem er fjórum sinnum
meira en hann fór á fyrir um einu
og hálfu ári. 1 kjölfarið fylltust allar
hirslur hjá okkur af munum eftir
Guðmund og á sunnudaginn verða
tuttugu munir eftir hann boðnir
upp, þar á meðal fálki og önnur
Telpur í boltaleik Búist er við að
þetta verk Þorvaldar fari á mjög
háu veröi.
tegund af fálka sem ekki hefur sést
áður á uppboði. Þetta eru hlutir sem
margir settu í ruslið fyrir tveimur
árum.“
Verkin sem boðin verða upp eru til
sýnis í Gallerí Fold við Rauðarárstíg
í dag, föstudag, frá klukkan 10-18,
laugardag 11-17 °g sunnudag 12-17.
Vefsíða Gallerís Foldar er www.
myndlist.is.
www.europcar.is
Upplifðu \
wHw / Kynntu þértilboð okkar á bílaleigubílum
* ** 1 ' i f -<*r * V V V \ wa. V O* J Pantaðu bílinn hjá Europcar áður en þú leggur af stað Við erum i 170 löndum. Upplýsingar og bókanir í síma: 565 3800 europcar@europcar.is
- Europcar
ÞÚ LEIGIR MEIRA EN BARA BÍL.
Þekking á undirdjúpunum
Viðurkenning Hagþenkis
2007 var veitt í vikunni. Að
þessu sinni var bókin íslensk-
ir fiskar eftir Gunnar Jónsson,
Jónbjörn Pálsson og Jón Baldur
Hlíðberg útnefnd til verðlaun-
anna. I umsögn dómnefndar
um verkið segir: „Bókinf...] er
unnin af fágætri alúð og vand-
virkni. Ekkert skyldar fiskifræð-
inga á Hafrannsóknastofnun til
að gera meira en að afla vísinda-
legrar þekkingar á undirdjúpun-
um og skrifa fræðilegar greinar-
gerðir og skýrslur, en höfundar
bókarinnar hafa gert betur og
færa nú vísindasamfélaginu og
öllum almenningi víðtæka þekk-
ingu sína á fiskum, sem lifa eða
fundist hafa í sjónum umhverf-
is landið, með þeim hætti að að-
dáun vekur."