blaðið - 02.03.2007, Síða 22
matur d y§L$ 'P’PI? Grillmatur vf/ """ Þótt enn sé langt í sumarið er tilvalið að draga grillið fram og fá smá forskot á sæluna. Ilmurinn
blaðið
matur@bladid.net
og bragðið mun minna á sumarið og áður en varir
er skapið léttara.
Ef gamla góða salatið er orðið bragðlaust má alltaf hressa
upp á það með ediki, hnetum, eplum, síld, rækjum eða ýmsu
öðru. Möguleikarnir eru óendanlegir enda bragðast flest
matvæli vel með salati.
María Sigrún er mikil áhugamanneskja um mat
Meðvituð um hollustu
Ljúffengt
og þægilegt
Þegar dagurinn hefur veriö anna-
samur og heimilisfólkið er lúið er
gott að búa til einn auðveldan en
Ijúffengan pastarétt. Hvað er þá
betra heldur en hefðbundið spa-
gettí með tómat- og basilsósu?
Pasta með tómat- og basilsósu
Fyrir sex
■ 500 g spagettí (ósoðið)
■ 4 niðurskornir tómatar (um það
bil 4 bollar)
■ 1 dós af ítalskri pastasósu
■ 1 tsk. þurrkað basil eða 2 tsk.
ferskt niðurskorið basil
■ Vá tsk. svartur pipar
■ 1 msk. olía
■ 500 g ferskur aspas, skorinn
í u.þ.b. 2 cm bita (um það bil 2
bollar)
■ 1 miðlungskúrbítur, skorinn í
helminga og í sneiðar
parmesanostur
Sjóðið pasta eins og leiðbeiningar
á pakka segja til um og látið vatnið
leka af því. Blandið tómötum,
sósu, basil og pipar í stórum potti,
hrærið vel saman og látið sjóða.
Minnkið hitann, setjið lok yfir
pottinn og leyfið að krauma í 20
mínútur. Takið lokið af og sjóðið
í 15-20 mínútur eða þar til sósan
hefur þykknað. Hrærið reglulega í
sósunni. Hitið upp olíu á pönnu og
setjið aspas og kúrbít út í. Steikið
grænmetið þar til það er orðið
mjúkt. Blandið pastanu við græn-
metið og hrærið vel saman. Setjið
sósuna ofan á pastað og dreifið
parmesanosti ofan á.
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu Guðmundsd.
svanhvit@bladid.net
María Sigrún Hilmarsdóttir, frétta-
maður hjá Sjónvarpinu, hefur alltaf
haft áhuga á eldamennsku og seg-
ist lítið nota uppskriftir. „Mamma
er eiginlega mín uppskriftabók, ég
hringi bara í hana og læri af henni.
Mamma leyfði mér að vera með í
að elda þegar ég var lítil stelpa og ég
fékk því áhuga á mat mjög snemma.
Mér finnst sérstaklega gaman að
baka og ég baka brauð, kökur, vöffl-
ur og allt mögulegt,“ segir Maria
Sigrún sem reynir að vera dugleg
að elda heima hjá sér. „Ég legg mig
fram við að elda heima en þegar
maður er á löngum vöktum þá gefst
ekki mikill tími til að elda. Þá borða
ég oft í hádeginu í mötuneytinu og
læt það vera aðalmáltíð dagsins. Þar
sem þetta er vaktavinna þá á ég góða
frídaga á móti og þá get ég nostrað
við eldamennskuna og boðið vinum
og fjölskyldu í mat.“
Borða mikið affiski
María Sigrún segist vera meðvit-
uð um hvað hún borðar og til dæmis
borði hún mikið af fiski. „Mér finnst
mjög skemmtilegt að matreiða góð-
an fisk og hafa gott salat með. Svo
finnst mér gaman að setja ávexti í
salat en það opnuðust einhverjar
nýjar víddir fyrir mér í matargerð
egar ég uppgötvaði það. Auk þess
em ég oft við á Fylgifiskum og næ
í einhvern góðan rétt þar. Ég reyni
því að hugsa um hvað ég borða. Mað-
ur er það sem maður borðar og ég vil
frekar vera gerð úr fiski, grænmeti,
„Mér finnst mjög skemmti-
iegt að matreiða góðan
fisk og hafa gott salat
með.“
ávöxtum og hnetum heldur en feitu
kjötfarsi og brúnni sósu,“ segir Mar-
ía Sigrún og hlær. „Ég reyni að hafa
það í huga þegar ég vel matinn."
Matareitrun á Ibiza
Aðspurð hver sé skrýtnasti mat-
urinn sem hún hefur bragðað segir
María Sigrún að það hafi verið í út-
skriftarferð sinni á Ibiza árið 1998.
„Ætli það sé ekki vonda ostran sem
ég fékk matareitrun út af en ég hef
ekki bragðað ostru síðan. Ég var veik
í marga daga, lenti á spítala á Ibiza
og var svo send heim. Ég er svolítið
brennd af því og er hrædd við hráan
fisk, fer varlega í að borða sushi og
svo framvegissegir María Sigrún
sem lætur fylgja með ljúffenga upp-
skrift að laxi og salati.
Grillaður soja- og hun-
angsmarineraður lax
fyrir 6
■ 900 g laxaflak með roðinu
Marinering:
■ 3 dl þunn sölt sojasósa
(þessi venjulega)
■ 3 msk. ostrusósa
■ 11/2 msk. hunang
■ 3/4 tsk. saxað chili
■ 11/2 rif hvítlaukur,
smátt saxaður
■ 11/2 msk. þykk sæt sojasósa
■ hvítur pipar.
Beinhreinsið laxinn og skafið
roðið. Skerið í 6 jöfn stykki, leggið
í fat með háum kanti. Blandið sam-
an öllu í marineringuna og hellið
yfir laxinn og látið marinerast í 6
klst. Grillið laxinn (best í álbakka)
með roðið niður þar til það er mátu-
lega brúnt og stökkt.
Berið fram t.d. með:
■ Heilum beikonvöfðum sveppum
sem þræða má á trépinna og grilla
með.
Salatið hennar Maríu
■ 1 poki klettasalat
■ 1 rauð paprika, skorin í bita
■ 1 klasi rauð vínber, steinlaus
skorin í tvennt
■ 1/2 kantalópmelóna, skorin í
stóra teninga
■ 1/2 gullostur, skorinn i teninga
■ 1 poki cashew-hnetur
■ 3 vorlauksstilkar, skornir í litla
bita
■ Mango balsamico og græn
ólífuolía.
Má líka nota venjulegt balsamedik
Kr. 123.876.-
HVlT HÁ6LANS
j|s|
ORMSSON
SMÁRALIND • Sími 530 2907 / 530 29C
NYTT
FALLEGT, VANDAÐ, ÓDÝRT ogTlL Á LAGER-NÚNA
SETTU ÞAÐ SAMAN Mf
ORMSSON LÁN: Mánaöarleg jöfn afborgun (48 mánuöi :Kr. 5.858.-
AEG
AEG HEIMILISTÆKI ÁTILBOÐSVERÐI
ÞEGAR KEYPTAR ERU „SETTUÞAÐ SAMAN" INNRÉTTINGAR
EH csm
ÁRVIRKINN, SELFOSSI • Sími 480 1160 AKUREYRI • Sími 461 5003
Blaðlaukssalat
með kúskús
■ 200 gr. kúskús
■ safi úr 2 sítrónum
■ 50 ml ólífuolía
■ 100-125 ml soðið heitt vatn
■ 1 blaðlaukur, skorinn í þykkar
sneiðar
■ 1 rauðlaukur, niðurskorinn
■ 2 handfyllir af smátt skorinni
steinselju
■ handfylli af smátt skorinni myntu
■ salt
■ pipar
■ 100 g fetaostur
Setjið kúskús í stóra skál og bætið
sítrónusafa og ólífuolíu við. Hellið
heitu vatninu yfir, hrærið og setjið
plastfilmu yfir skálina. Látið standa
í 10 mínútur. Sjóðið blaðlaukinn
f saltvatni þar til hann er orðinn
mjúkur. Sigtið laukinn og bætir
honum við kúskús ásamt lauknum,
steinselju og myntu. Hrærið og
kryddið með salti og pipar. Bætið
fetaosti við og berið á borð.