blaðið - 15.03.2007, Page 16
16
FIMMTUDAGUR 15. MARS 2007
blaðið
Gagnrýnandi er maöur sem
þekkir veginn en hefur
aldrei lært aö aka.
KennethTynan
Franskar bækur
í forgrunni
[ Bókabuo Máls og menningar
á Laugavegi stendur yfir frönsk
bókasýning. Þar er að finna
fjölbreytt úrval franskra bóka
og allnokkur meistarastykki eru
þar á meðal. Þetta eru bækur
á frönsku, franskar bækur á
ensku og íslenskar þýðingar
á frönskum úrvalsverkum.
Franskir fánar grýða svo verslun-
ina. Bókmenntaunnendur ættu
að líta við í Máli og menningu
og kynna sér úrvalið. Bókasýn-
ingin, sem er vitaskuld sölusýn-
ing, stendurtil 18. mars.
Metsöluiistinn - íslenskar bækur
^ Viltu vinna milljarð? - kilja
Vikas Swarup
2 Skólinn hans Barbapabba
AnnetteTison
, Skipið - kilja
Stefán Máni
4 Sálmabók
' Ýmsir höfundar
5 Flugdrekahlauparinn - kilja
Khaled Hosseini
6 Aðveraeðasýnast
Hörður Bergmann
_ Sér grefur gröf - kilja
Yrsa Sigurðardóttir
8 llmurinn - kilja
Patrick Siiskind
9 HringurTankados
Dan Brown
1(j Hreinn og sjónræningjarnir
Jón Sveinbjörn Jónsson
Listinn er gerður út frá sölu í Pennanum Eymundsson og
Bókabúð Máls og menningar dagana 07.03 -13.03.
Metsölulistinn - erlendar bækur
The S’thHorseman
James Patterson
The Thirteenth Tale
Diane Setterfield
Ðirty Blonde
Lisa Scottolíne
WhitethornWoods
Maeve Binchy
Pieteofmy Heart
Peter Robinson
Montana Sky
Nora Roberts
TheColdMoon
Jeffery Deaver
The Alchemist - Gift Edition
Paulo Coelho
Complete dog
10 Nowyou'reCookingThai
Rebo books
Listinn er gerður út frá sölu dagana 07.03.07 -13.03.07 í
Pennanum Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar
Erum bílskúrsband
ið árlega Spaðaball
verður haldið á Nasa
næstkomandi föstu-
dagskvöld. Meðlimir
Spaða eru Gunnar
Helgi Kristinsson, Aðalgeir Arason,
Guðmundur Pálsson, Magnús Har-
aldsson, Guðmundur Ingólfsson,
Sigurður G. Valgeirsson og Guð-
mundur Andri Thorsson. Sala á
miðum á tónleikana er í Tólf tónum
við Skólavörðustíg og á nasa.is.
„Þetta er gamall kunningjaklúbb-
ur sem hittist einu sinni í viku og
spilar lög eftir meðlimi hljómsveit-
arinnar. Við erum bílskúrsband
og viljum helst vera það. En þegar
hljómsveitarmeðlimir hafa samið
dágóðan slatta af lögum og eru
búnir að spila þau allnokkrum
sinnum þá verður að fara á næsta
stig með það og halda ball. Það er
það sem við gerum. Einu sinni á ári
skjótumst við út úr híði okkar og
höldum hið árlega Spaðaball," segir
Guðmundur Andri Thorsson sem
er aðalsöngvari Spaða.
Þið komið ekki oftfram opinber-
lega en þegar það gerist, er það þá
ekki gaman?
„Jú, okkar finnst það óskaplega
gaman því þá fer þetta allt fram
á okkar forsendum. Við höldum
ballið og fólk kemur til að hlusta á
okkur og við ráðum lagavalinu. Við
spilum lög eftir okkur og erlend
þjóðlög sem við höfum grafið upp
og eru ekki þekkt nema meðal vel-
unnara og áhangenda sveitarinnar.
Ef maður spilar á árshátíð þá þarf
maður að spila Bjarnastaðarbeljurn-
ar allt kvöldið og við nennum því
ekki.“
Tilgangurinn ekki að slá í gegn
Þú ert aðalsöngvari hljómsveitar-
innar, færðu mikla útrás meðþví að
syngja?
„Eg hef alltaf haft mikið yndi af
söng og alveg frá því ég var krakki
hef ég sungið mikið. Ég er ekki góð-
ur söngvari en mér finnst bara svo
skemmtilegt að syngja og þetta er
eini vettvangurinn þar sem mér
býðst slíkt. Ég var í kórum hér áður
fyrr en það er svo flókið félagslegt
atferli að vera í kór og gengur mikið
út á samskipti kynjanna og annað
sem mér er alveg ofviða.“
Hvað heldurðu að Spaðar verði
lengi að, kannski jafn lengi og Rol-
lingStones?
„Kannski jafn lengi og Buena Vista
Social Club, sem er skemmtilegri
samlíking því Rolling Stones hefur
mér alltaf þótt leiðinleg hljómsveit
og bjánaleg. Við höfum ekkert hugs-
að út í það hvað við verðum lengi,
við hættum þegar við verðum leiðir
á þessu. Leikurinn er ekki til þess
gerður að slá í gegn. Við erum ekk-
ert sérstaklega að sækjast eftir því
að höfða til fleiri en við gerum nú
þegar. Þetta er alveg prýðilegt eins
og það er.“
Ligg yfir textanum
Þú ert aðallega þekktur fyrir rit-
störf, er von á nýrri skáldsögu fyrir
jól?
„Já, það kemur bók fyrir jólin. Ég
fékk loksins nokkuð góða hugmynd
að skáldsögu og er að vinna í henni.
Ég ætla eklci að segja meira að svo
stöddu.“
Þú ert ekki einn af þeim höfund-
um sem senda frá sér bók annað
hvert ár.
„Nei, ég er ekki mjög afkastamik-
ill höfundur. Það er svo margt ann-
að sem ég hef gaman af að gera auk
þess að skrifa. Ég hef alltaf unnið
töluvert með skriftunum og það hef-
ur sitt að segja. Þegar ritstörfin eiga
í hlut er ég kannski nokkuð lengi að
hafa mig að verki og svo hættir mér
til að liggja yfir textanum þegar ég
er byrjaður á annað borð. Annars
lief ég svosem enga skýringu á því af
hverju ég er svona afkastalítill. Ætli
það sé ekki bara metnaðarleysi?“
Sesar myrtur
Á þessum degi árið 44 f. Kr. var
Júlíus Sesar myrtur. Vinir og sam-
starfsmenn Sesars höfðu snúist
gegn honum vegna einræðistilburða
hans, en hann hafði sankað að sér
embættum og var einvaldur í Róm.
Höfuðpaurar samsærisins gegn Ses-
ari voru Kassíus og Brútus en Sesar
hafði reynst þeim vel, sérstaklega
Brútusi. Sesar kallaði öldungaráðið
saman 15. mars. Sagt er að spámað-
ur hafi varað Sesar sérstaklega við
þeim degi.
Þegar Sesar settist í sæti sitt í öld-
ungaráðinu var ráðist á hann og
hann stunginn að minnsta kosti
tuttugu og þremur stungum. Þegar
Brútus lagði til Sesars sagði Sesar:
„Þú líka, barnið mitt“ og hætti að
verja sig. I leikriti Williams Shake-
speare um Sesar eru andlátsorðin
hins vegar: „Og þú líka, Brútus.“