blaðið - 24.04.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 24.04.2007, Blaðsíða 1
Góð vorveiði Ik Örn Helgason segir að vor- ||§fe veiðin hafi verið mjög góð §Ht| og árnar vaxið mikið K þar sem hann var að H veiðum við Leirá í Leirársveit. Þjálfaði hermenn Leifur Örn Svavarsson fjallaleið- sögumaður fór til Grænlands fyrir stuttu með indverska sjóhernum en hermennirnir voru að æfa sig fyrir ferð til suðurpólsins. Islenskan gloppótt | Elín Petersdóttir leikkona er alin |L upp (Finnlandi og hefur ekki enn ratað á fjalir leikhúsanna M hér á landi en getið sér gott H orð bæði í Bandaríkjunum og ■ Finnlandi. SÉRBLAл FERÐALÖG:» 75. tölublað 3. árgangur þriðjudagur 24. apríl 2007 FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓK> KJÓSUMMEO ÍSLANDSHREYFINGIN UfnaJlíaML Olíumálið aftur fyrir héraðsdóm: Vilja að dómari víki ■ Vanhæf vegna fyrri dóma ■ Enginn fjárhagslegur ávinningur af samráði Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net Lögmenn olíufélaganna þriggja, Olís, Kers og Skelj- ungs, fóru í gær fram á að Sigrún Guðmundsdóttir víki sæti sem dómari í máli félaganna gegn Sam- keppniseftirlitinu og íslenska ríkinu. Olíufélögin fara fram á að stjórnvaldssektir sem þau hlutu verði felldar úr gildi þar sem samráð þeirra hafi ekki bitnað á almenningi. Gísli Baldur Garðarsson, lögmaður Olís, lagði við þinghald í gær fram bókun um að Sigrún víki sæti þar sem hún var einnig dómari í skaðabóta- málum sem voru olíufélögunum í óhag. Lögmaður Olís sagði að í þessum málum hefði niðurstaða dómara verið á þann veg að skoðanir hennar væru mótaðar. Þannig væri ómögulegt fyrir skjólstæð- ing hans að tryggja að fyllsta hlutleysis verði gætt. Engar likur séu á að dómari breyti þessari skoðun sinni þar sem það væri líklega gegn mannlegu eðli. Vísaði lögmaður Olís bæði í ákvæði stjórnarskrár og Mannréttindasáttmála Evrópu um réttláta málsmeðferð. Gísli Baldur gagnrýndi einnig framgöngu samkeppnisyfirvalda í málinu og sagði að málið stefndi í óefni í höndum stofnunarinnar. Olíufé- lögin hefðu aldrei viðurkennt samráð á þann hátt sem samkeppnisyfirvöld hafa lýst. Olíufélögin telja að ekki hafi hlotist fjárhagslegur ávinningur af olíusamráðinu og áætlun samkeppnisyfirvalda um ávinning af samráðinu, 6,6 milljarðar króna, sé fjarstæðukennd. Enda hafi áfrýjunarnefndin komist að þeirri niðurstöðu að hann hafi verið mun lægri, um 2 milljarðar króna. Kristinn Hallgrímsson, lögmaður Kers hf., tók undir kröfu Gísla Baldurs og sagði að hverju barni væri ljóst að dómarinn í málinu leggi ekki við hlustir við málflutning olíufélaganna af kostgæfni og hlutleysi. Fyrri fullyrðingar dómara bæru keim af fréttaflutningi fjölmiðla sem hefðu afflutt málið með aðstoð Samkeppniseftirlitsins. Enn fremur hafi olíufélögin ekki hagnast fjárhagslega af samráðinu og líkti hann málinu við innbrot, þar sem innbrotsþjófarnir væru þekktir en engu hefði verið stolið. Því sé enginn skaði skeður. Heimir Örn Herbertsson, verjandi Samkeppn- iseftirlitsins, fór fram á að kröfunni verði hafnað. Sagði hann að Samkeppniseftirlitið og íslenska ríkið hafi í sjálfu sér enga hagsmuni af því hvaða dómari dæmir í málinu en krafan um meint van- hæfi sé ekki á rökum reist. Heimir Örn mótmælti jafnframt fullyrðingum olíufélaganna í garð Sam- keppniseftirlitsins sem hann kallaði gífuryrði: Heimir Örn sagði að krafa olíufélaganna væri jafnvel ekki til þess gerð að leiða til vanhæfis dóm- ara, heldur til að freistaþess að hafa áhrif á afstöðu dómarans á þann hátt að hann líti olíufélögin mild- ari augum en ástæða er til. Ólöglegt og siðferðilega hæpið Vilhjálmur Árnason, prófessor í heim- speki, segist hallast gegn staðgöngu- mæðrun, aðallega út frá barnavernd- arsjónarmiðum. Vafasamt sé hvort barnsburður sé svið sem selja eigi undir lögmál markaðar og viðskipta. FRÉTTIR » 2 Verndar grænt útivistarsvæði Varmársamtökin hafa kynnt nýja tillögu að tengibraut til og frá Helgafellshverfi að Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ. Sam- tökin vilja að grænt útivistarsvæði nái frá íþróttavellinum upp með ánni að Álafoss- kvosinni og áfram upp að Reykjalundi. FRÉTTIR » 6 Boris Jeltsín, fyrrverandi forseti Rússlands, lést í gær 76 ára að aldri. Jeltsín var fyrsti þjóðkjörni forseti landsins og sat tvö kjör- tímabil sem einkenndust af miklum átökum, bæði innanlands og utan. FRÉTTIR » 4 Litríkur forseti látinn Asni ieiddur í vitnastúku Gregory Shamoun, bandarískur lögmaður, leiddi asnann sinn Buddy upp í vitnastúku í réttarsal í Dallas í Bandaríkjunum í síðustu viku. John Cantrell, nágranni Shamoun, hafði kvartað til borgaryfirvalda þar sem Shamoun væri að byggja skúr í bak- garði sínum sem ætlaður var til að hýsa Buddy og vildi Cantrell meina að mikill hávaði og illa lyktandi asna- saur myndu fylgja fyrirkomulaginu. Með því að leiða Buddy upp í vitnastúku vildi Shamoun sýna kviðdómi fram á að Buddy væri ijúfur sem lamb, og stóð Buddy þögull og starði á kviðdóminn þegar hann var kominn í vitnastúkuna. Þrátt fyrir það fengu hvorki kviðdómurinn né Buddy að hafa síðasta orðið því Shamoun og Cantrell náðu að semja um málalok skömmu síðar. Verð á hreinsun á jakkafötum Efnalaug Krónur Efnalaugin Fönn 2.070 Efnalaugin Úðafoss 1.980 Efnalaugin Björg 2.100 Efnalaug Grafarvogs 1.980 Efnalaug Suðurnesja 2.120 Efnalaug Suðurlands 2.100 Verð á hreinsun jakkafata í völdum efnalaugum Upplýsingar frá Neytendasamtökunum GENGIGJALDMIÐLA SALA % WM USD 64,81 0,06 ▲ GBP 129,76 0,08 ▲ EBBB m wm DKK 11,75 0 ♦ e JPY 0,55 0,39 ▲ H EUR 88,05 -0,01 ▼ GENGISVÍSITALA 119,19 0,04 ▲ ÚRVALSVfSITALA 7.832,94 -0,20 ▼ RYMINGAR- SALA! OUarco fSLÁTTUB Afgreiðslutími virka daga: 10-18 og lau.: 11-16 Reykjavík simi: 533 3500 - Akureyri simi: 462 3504 Egilsstaðir: sími: 471 2954 Erum að taka inn nýjar gerðir af rúmum frá Sealy og stólum og sófum frá Action Lane og þurfum að rýma verslun og lager af eldri gerðum.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.