blaðið - 24.04.2007, Blaðsíða 17

blaðið - 24.04.2007, Blaðsíða 17
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2007 2 5 menning Nefertiti gæti valdið „vísindalegu stríði“ Stigmagnandi deila hefur bloss- að upp á milli Egypta og Þjóðverja vegna 3400 ára gamallar brjóst- myndar af hinni fornegypsku drottningu Nefertiti. Styttan hefur verið til sýnis og varðveislu í Þýska- landi frá árinu 1913, eða allt frá því að þýskir fornleifafræðingar fundu hana í Tell el ‘Amárna sem er í um 240 kílómetra fjarlægð frá Kaíró. Nú hafa Egyptar beðið Þjóðverja um að lána sér styttuna tímabund- ið þar sem þeir vilja fá að hafa hana til sýnis þar í landi í þrjá mánuði. Því neita Þjóðverjar þar sem þeir segja styttuna vera viðkvæma og brothætta og því ekki í ástandi til að vera flutt landa á milli. Nú hóta Egyptar því, nái þeir ekki fram vilja sínum, að hefja svokallað „vísinda- legt stríð“ við Þjóðverja, sem fælist í því að framvegis muni þeir aldrei aftur standa fyrir sýningum á eg- ypskum fornminjum í Þýskalandi. Styttan af Nefertiti, sem er úr kalksteini, hefur verið einn vinsæl- asti og frægasti safngripur Berlínar í þau tæpu hundrað ár sem hún hefur verið til sýnis þar í borg, en hún er geymd í Altes-safninu fræga. Þýskir fornmunasérfræðingar fullyrða að hún sé of brothætt fyr- ir tæpra 5000 kílómetra ferðalag til Kaíró og segja að það bæri það vott um fullkomið ábyrgðarleysi að senda hana úr landi. Ráðamenn á sviði fornminjaverndar í Egypta- landi segjast gruna að Þjóðverjar óttist að þeir muni ekki skila stytt- unni aftur ef þeir fá vilja sínum framgengt. Því hafna Þjóðverjar alfarið og segja að aldrei hafi neinn verið í vafa um eignarrétt þeirra á styttunni frægu. Egyptar vilja fá styttuna að láni fyrir opnun nýs safns, Grand Eg- yptian museum, sem fyrirhugað er að verði opnað árið 2012. Brjóstmyndin af Nefertiti drottningu. Þýskir fornleifa■ fræðingar fundu hana fyrir sunnan Kairó fyrir tæplega 100 árum. Silja hlaut verðlaun Silja Aðalsteinsdóttir hlaut ís- lensku þýðingarverðlaunin í ár fyrir þýðingu á bókinni Wunther- ing Heights eftir Emily Bronté, en verðlaunin voru afhent í gær, á degi bókarinnar, á Gljúfra- steini. Bókaútgáfan Bjartur gaf bókina út í þýðingu Silju. Bókin Wuthering Heights er meðal frægustu skáldsagna enskra bókmennta og kemur enn út í mörgum útgáfum á ári hverju þótt hún sé að verða 160 ára gömul. Frásagnarháttur hennar þykir enn nýstárlegur og persónurnar og örlög þeirra verða lesendum ógleymanleg. Sex þýðendur voru tilnefndir til verðlaunanna fyrir verk sín á síðasta ári. Bardukha á ferð og flugi íslenska balzamersveitin Bardukha undirbýr þessa dagana tónleika- ferð um landið, en hún hefst þann 2. maí með tónleikum sveitarinnar í Pakkhúsinu á Höfn í Hornafirði. Daginn eftir ætlar hún að halda til Egilsstaða og spila á Hótel Héraði, þann 4. maí verður hún með tón- leika á Gamla Bauk á Húsavfk og 5. maí ætlar hún að spila á Græna hattinum á Akureyri. Hljómsveitin var stofnuð árið 2003 og eru meðlimir Steingrímur Guð- mundsson sem leikur á slagverk, ÁstvaldurTraustason á harmóníku, Hjörleifur Valsson á fiðlu og Birgir Bragason á bassa. Þeir leika eigin hræring af þjóðlagatónlist þar sem blandað er saman balknesku, slav- nesku og arabísku tónkryddi. Frá stofnun hefur hljómsveitin verið iðin við að leika vítt og breitt um landið. Urvalverka Laxness Úrvalsbók Halldórs Laxness kom út hjá Vöku-Helgafelli í gær, á degi bókarinnar og fæðingardegi skálds- ins. í bókinni er að finna 24 verk, ýmist hluta eða í heilu lagi, sem Halldór Guðmundsson bókmennta- fræðingur og rithöfundur hefur valið. Halldór hefur jafnframt ritað stutt aðfaraorð að hverju verki, auk þess að skrifa inngang að bókinni. Aftast í henni er að finna skrá yfir bækur Halldórs Laxness og jafn- framt yfir helstu bækur sem til eru um hann á íslensku. I Úrvalsbók eru bæði hlutar úr skáldsögum, smásögur, ritgerðir og Ijóð auk tveggja skáldsagna í heilu lagi, Brekkukotsannáls og Kristnihalds undir Jökli. Úrvalið nær yfir sextíu ár af höfundarferli skáldsins og á að gefa glögga mynd af fjölbreytninni. Öll verkin eru birt með nútímastafsetningu en ekki þeirri stafsetningu sem Hall- dór kaus að hafa á verkum sínum. RARIK UfcuicU olt Lifandi afl í 60 ár Málþing í tilefni 60 ára afmælis RARIK verður málþing í Salnum, Kópavogi, föstudaginn 27. apríl kl. 14:00 að afloknum aðalfundi fyrirtækisins. DAGSKRA Avarp iönaðarráðherra, Jóns Sigurðssonar Saga rafmagns í 100 ár Sveinn Þórðarson sagnfræðingur Þegar rafmagnið kom í sveitina Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps Hlé / Kaffiveitingar Eru línurnar í lagi? Steinunn Huld Atladóttir, gæða- og umhverfisstjóri RARIK Umhverfi auðnuafls Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins Málþinginu lýkur um kl. 16:00 Fundarstjóri: Sveinn Ingvarsson Fundurinn er öllum opinn. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síðasta lagi 25. apríl á netfangið rarik@rarik.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.