blaðið - 24.04.2007, Blaðsíða 26

blaðið - 24.04.2007, Blaðsíða 26
Shooter SAM-bíóin Álfabakka, Kefla- vík og Borgarbíói Akureyri Antoine Fuqua Mark Wahlberg, Danny Glover, Micha- el Pena, Kate Mara, Elias Koteas, Ned TraustlSalvarKrlst)ánsson Beatty. traustls@bladid.net Kvikmyndir ★ ★★★ klisjugryfjur og væmnissenur eru skornar við nögl. Myndinni er leyft að flæða í spennuþrunginni fram- vindu sem gerir Shooter að einni óvæntustu og ferskustu formúlu- handrita-hasarmynd síðari ára. Fagnað og frumsýnt „Helgin mín var alveg stórfín," segir Bergur Þór Ingólfs- son leikari en hann leikur um þessar mundir í söngleiknum Gretti sem sýndur er í Borgar- leikhúsinu. „Ég var á æfingu fyrir Gretti á föstudagskvöldinu á milli 18 og 24. Laugardag- urinn var rólegur nema ég fór með spýtur upp í Sorpu. Þar hitti ég starfsmann sem var algerlega miður sín yfir hversu mikið var að gera enda var röð langt út fyrir endurvinnslustöð- ina. Eftir Sorpuferðina átti ég rómantíska stund með konunni minni. Við héldum upp á 16 daga brúðkaupsafmælið okkar með því að fara í rómantíska gönguferð um skóginn við hlið- ina á Bústaðakirkju. Um kvöldið fór ég síðan aftur á æfingu upp í Borgarleikhús. Á sunnudaginn var ég eitthvað utan við mig, fór í hjólreiðatúr með fjölskyldunni og lagði mig með yngstu dóttur minni. Um kvöldið var síðan frumsýning á Gretti sem gekk mjög vel og var mjög gaman. í mínum huga er hver dagur há- tíð og helgin var samkvæmt því ein heljarinnar hátíð.“ Helvíti fín hasarmynd ÞRIÐJUDAGUR 24. APRIL 2007 blaöið David Lynch-vika Orðlaus mælir með því að setja sig í gírinn fyrir frumsýningu á nýrri mynd David Lynch, Inland Emp- ire, sem frumsýnd verður á föstudaginn. (tilefni af frumsýningunni býður verslunin Nexus upp á tilboð á myndum og bókum eftir leikstjórann og á Aðalvideoleigunni er búið að koma upp sérstöku Lynch-horni þannig að allir aðdáendur David Lynch ættu að eiga góða viku. Frábærir tónleikar á Nasa „Þetta var alveg rosalega góð helgi," svarar Urður Hákon- ardóttir, söngkona GusGus, þegar hún er spurð út í nýliðna helgi. „Á laugardaginn voru tónleikar GusGus á Nasa og helgin fór að mestu í að undirbúa þá, spila á þeim og hvíla sig eftir þá. Tón- leikarnir voru alveg frábærir, fullt af fólki, skemmtilegt crowd og allir í geðveiku stuði og ég er alsæl með þetta allt saman. Á sunnudaginn var ég síðan í róleg- heitum með dóttur minni og naut þess að slappa af. Svaf út, fór í frábæra humarveislu til frænku minnar og horfði svo á vídeó um kvöldið." Hljómsveitin GusGus fer eftir viku í stutt tónleikaferða- lag um Þýskaland. „Við verðum úti í tíu daga og spilum í öllum helstu borgum Þýskalands. í sumar verðum við á einhverju flakki og förum í nokkrar tón- leikaferðir en spilum ekki aftur á íslandi fyrr en í ágúst. Kvikmyndin Shooter er byggð á bókinni Point of Impact eftir Steph- en Hunter. Hún fjallar um leyniskytt- una Bob Lee Swagger sem sest hefur í helgan stein eftir að hafa misst vin sinn og samstarfsmann í leyni- legu verkefni í Afríku. Þegar Sámur frændi biður Swagger að hjálpa sér við verndun forseta Bandaríkjanna gegn meintum tilræðismanni verður hann við bóninni, enda föðurlands- vinur mikill. Þegar upp er staðið er Swagger einungis blóraböggull sem fær það hlutskipti að vera hundeltur fyrir morð sem hann framdi ekki. Hann reynir því að hreinsa nafn sitt og sækja þá seku til saka. Kvikmynd- in Shooter er frábær hasarmynd. Þó svo sagan hafi verið margþvæld og of oft tuggin í öðrum myndum náði hún að halda manni við efnið. Hún er einskonar blanda af Rambo, The Fugitive og John Clancy-myndun- um, sem verður að teljast með betri blöndum. Wahlberg virkar trúverð- ugur og tekst vel til í hasarmynda- hlutverkinu. Þar að auki er Danny Glover fínn sem vondi karlinn, þrátt fyrir sssmámælsku sína. Plottið er frekar einfalt og auðskilið en ágæt- lega hugvitssamlegt og raunsætt. Myndin fellur aldrei í ljúfa löð né »Vegvísir að heimili mínu s«ioir og venjur pao er ant saman mjog rr- jálst og lítið um fasta siði. Það er hins vegar venjan að iðka skemmtanalífið um helgar. Hvenær er hentugast að ferðast Ef folk vill skoða myndlist er hægt að koma um helgar á milli 15 og 18. Ef fólk vill hinsvegar heimsækja húsráðanda er gott að líta við á kvöldin eftir vinnu. Dýralíf Það býr köttur í íbúðinni og hann nýtur samvista við fjöldann allan af öðrum kattardýrum sem búa í nágrenninu. Hvað þarf að hafa með Ekki neitt nema kannski helst opinn huga. llón Pálmar Slgurðsson heldur myndlistarsýningar á heimili sínu þar sem hann býr í lítilli kjall- araíbúð á Óðinsgötunni. Hugmyndin að galleríinu kviknaði þegar hann leigði myndlistarmanni herbergi fyrir nokkrum árum og síðan þá hafa 10 sýningar verið settar upp í Skotgalleríinu, en það er nafnið á þessu heimilislega galleríi. Yfirleitt er eitt herbergi notað sem sýningarrými en nú er nánast öll íbúðin undirlögð undir sýningu myndlistarmannsins Halldór Hrafns sem nú sýnir í Skotgalleríinu. Gestir eru boðnir velkomnir um helgar og þá gefst þeim kostur á að njóta myndlistarinnar svo lengi sem þá ber að garði með opnum huga. Staðhættir Litll kjallaraíbúð á rólegum stað i miðbænum, nánar tiltekið að Óðinsgötu 22a. Hvað þarf að hafa með Ekki neitt nema kannski helst opinn huga. Heilsa Heilsa bæði huss og húsráðanda er mjög góð. Samfelag og menning Menning á háu plani og samfélag myndlistaráhugamanna Hættur Það gæti verið hætta a leka eða jafnvel flóði þar sem herbergi fullt af vatni er hluti af sýningunni. * tr Matur og menning Það er oft eldað og oft- ar en ekki mexíkóskur matur sem er borinn á borð. Á opnunum er stundum boðið upp á léttvín og léttar veitingar. Vert að sjá Yfirstandandi sýningu myndlistarmannsins Halldórs Hrafns sem stendur næstu tvær helgar.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.