blaðið - 24.04.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 24.04.2007, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2007 blaöi6 UTAN ÚR HEIMI ÞÝSKALAND Vél nauðlent vegna sprengjuhótunar Flugvél á leið frá Aþenu til Strasborgar var nauðlent í Miínchen í Þýskalandi vegna sprengjuhótunar í gær- morgun. Vélin var rannsökuð en engin sprengiefni fundust um borð. Um 130 farþegar voru um þorð, þará meðal grískir þingmenn Evrópuþingsins. NÍGERÍA Urslit kosninga vefengd Eftirlitsmenn á vegum ESB segja ekki hægt að treysta úr- slitum forsetakosninganna í Nígeríu. Kosið var um helgina og bentu fyrstu tölur til þess að Umaru Yar’Adua, forseta- efni stjórnarflokksins, hefði unnið stórsigur. Eftirlitsmenn segja framkvæmdina hafa verið stórlega gallaða. Nemendur aftur í skólann Nemendur í Virginia Tech-háskólanum mættu aftur í skólann í gær, viku eftir að Cho Seung-hui, skaut 33 til bana á skólalóðinni. Starfsmenn skól- ans hringdu bjöllum og slepptu hvítum blöðrum til himins, einni fyrir hvert fórnarlamb harmleiksins. MULTI-VIT Náttúruleg fjölvítamín með steinefnum Vélin bæiiefm iynr þorfir titendíngi 180 töflur Inniheldur 22 valin bætiefni, 12 vítamín og 10 steinefni. KÍ heilsa ms BMt -haföu þaö gott ferðir Auglýsingasíminn er 510 3744 ? Wilson Muuga: Seldur til Líbanons Búið er að ganga frá því að flutningaskipið Wilson Muuga verði selt til Líbanons. Ekki er þó búið að ganga frá undirskrift, heldur er aðeins um heiðurs- mannasamkomulag að ræða. Guðmundur Ásgeirsson, stjórnar- formaður Nesskipa, vildi hvorki gefa upp nafn fyrirtækisins sem kaupir skipið né kaupverð þess. Innbrot: Farið inn í tvo skóla Brotist var inn í tvo skóla í fyrrinótt, Langholtsskóla og Menntaskólann við Sund, með aðeins rúmlega hálítima millibili. Lögreglan útilokar ekki að um sömu aðila sé að ræða. Ekki lá ljóst fyrir um þjófnað í Lang- holtsskóla, en í MS var reynt að losa 2 skjávarpa úr lofti. Nýjar umgjardir Ný hönnun glerja ! w ww. sj onarholl. is SJONARHOLL Gleraugnaverslun 565-5970 Reykavíkurvegur 22 220 Hafnarfirði 30 flóttamenn til landsins: Konur og börn frá Kólumbíu ■ írakar fái hæli ■ Búa í Reykjavík ■ Flóttamenn á hverju ári Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net Um 30 flóttamenn frá Kólumbíu, einstæðar mæður með börn, eru væntanlegir til landsins síðar á þessu ári. í júní fer sendinefnd héðan til að velja hópinn. Flótta- mannanefnd kannaði það sérstak- lega hvort mögulegt væri að fá flóttamenn frá írak. Hægt hefði verið að fá þaðan einstæða karl- menn en ekki fjölskyldur með ung börn eins og íslensk yfirvöld hafa lagt áherslu á að fá, að því er Árni Gunnarsson, formaður flótta- mannanefndar, greinir frá. Hann útilokar ekki að flóttamenn frá írak komi til íslands síðar. „Við tökum þátt í verkefni Flótta- mannastofnunar Sameinuðu þjóð- anna sem heitir Women at risk eða Konur í neyð. Árið 2005 kom hingað hópur frá Kólumbíu á grundvelli þessa verkefnis og nið- urstaðan var sú að það kæmi aftur hópur þaðan nú,“ segir Árni. Um var að ræða fimm einstæðar mæður og börn þeirra auk eins ein- staklings. Þessir flóttamenn höfðu flúið skálmöldina í Kólumbíu til Kostaríku og Ekvadors en stjórn- völd þar gátu ekki tryggt öryggi flóttamannanna. Einnig kom hingað sjö manna fjölskylda frá Kosovo árið 2005. „Hópnum hefur almennt vegnað mjög vel. Flóttamennirnir stunda ýmist fjölbreytt störf eða eru við nám,“ segir Karen Theódórs- dóttir, verkefnisstjóri hjá Rauða krossinum. Flóttamennirnir sem komu 2005 settust að í Reykjavík. „Reykjavík var móttökusveitarfélag þá og síð- astliðið vor fengum við bréf frá borgaryfirvöldum um vilja til að taka á móti öðrum hópi. Við ósk- uðum eftir staðfestingu á vilja yf- irvalda," segir Árni aðspurður um hvar flóttamennirnir sem koma síðar á þessu ári muni fá búsetu. Ríkisstjórnin hefur markað þá stefnu að tekið verði á móti hópi flóttamanna hér á landi á hverju ári. Samkvæmt yfirlýsingu sem Magnús Stefánsson félagsmálaráð- herra og Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra undirrituðu í febrúar síðastliðnum greiðir utan- ríkisráðuney tið kostnaðinn við mót- töku flóttamanna en félagsmála- ráðuneytið annast framkvæmdina í samvinnu við flóttamannanefnd og Flóttamannastofnun Samein- uðu þjóðanna. nano Þorsteins Gauta Ármúli 38 / við Selmúla s: 5516751 6916980 pianoskolinn.is pianoskolinn@pianaoskolinn.is Innritun fyrir næsta vetur lýkur 30.apríl. Tryggið ykkur pláss Hægt er að sækja um skólavist á pianoskolinn@pianoskolinn.is eða á http://rafraen.reykjavik.is/pages/ ATH! Sumarnámskeið verða í skólanum Innritun stendur yfir Varnir íslands: Þingað með NATO Valgerður Sverris- dóttir ásamt Henault formanni hermála- nefndar NATO. Mynd/ÁmiSæberg Samstarf við Noreg Viljayfirlýsing um varnar- og ör- yggissamstarf Islendinga og Norð- manna verður undirrituð á fundi ut- anríkisráðherra landanna í tengslum við óformlegan ráðherrafund NATO í Ösló síðar í vikunni. Þetta kom fram í kvöldfréttum Útvarps í gær. Fulllyrt var að Valgerður Sverris- dóttir utanríkisráðherra og Jónas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, undirriti í vikulokin vilja- yfirlýsingu um öryggis- og varn- arsamstarf Islands og Noregs á Norður-Atlantshafi. Samningurinn snýst að sögn um öryggisþjónustu í lofti og á sjó og verður undirritaður í tengslum við NATO-fund í Ósló á fimmtudag og föstudag. Viðræður hafa staðið yfir við Norðmenn frá því í nóvember. Valgerður Sverrisdóttir utanríkis- ráðherra hefur kallað utanríkismála- nefnd Alþingis saman til að upplýsa um málið í dag.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.