blaðið - 24.04.2007, Blaðsíða 20

blaðið - 24.04.2007, Blaðsíða 20
28 ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2007 blaðið Bók um fjallamennsku Komin er út hjá Björgunarskólanum ný kennslubók í fjallamennsku. Bókin er tæpar 100 síður í fullum lit með nýjum skýringarmyndum og Ijósmyndum. Hún kostar 2500 krónur fyrir félagsmenn Slysa- varnafélagsins Landsbjargar og fæst á skrifstofu félagsins. ferdir@bladid.net Veskið í vinstri vasa Óprúttnir vasaþjófar eiga gjarnan til að flykkjast á vinsæla ferðamannastaöi á háannatíma, enda þykja grunlausir túristar gjarnan auðveld „bráð“. Flest fólk er rétthent og geymir veskið sitt í hægri vasa og því seilast vasaþjófar oft fyrst þangað. Það er því ekki úr vegi að geyma veskið í vinstri vasa á ferðalögum. HELLULOGN www.meistan.is Félag SkrúSgarSyrkjumeistara BM’VALIÁ 55 nýir flugliðar Metfjöidi nýrra flugliða gengur til liðs við lceland Express í sumar vegna fimm nýrra áfangastaða félagsins, sem eru Basel í Sviss, Bil- lund í Danmörku, Ósló í Noregi og París í Frakklandi. Samtals eru 55 verðandi flugliðar í þjálfun, en hóp- urinn er á nokkuð breiðum aldri og með mikla og fjölbreytta reynslu, allt frá hjúkrunarfræðingum til flugmanna. Flugliðarnir útskrifast í byrjun maí og hefja störf í háloft- unum um miðjan mánuðinn. Fréttabréf FL komiö út Nýtt fréttabréf Félags leiðsögu- manna er komið út. Þar er meðal annars úttekt á avarpi sam- gönguráðherra á aðalfundi Samtaka ferða- þjónustunnar þar sem hann lofaði meðal annars betri vegi að Detti- ’— fossi. Fjallað er um haustfund Félags leiðsögu- manna sem haldinn var á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi fyrir síðustu áramót, talað er við skrifstofustjóra félagsins og margt fleira. Fréttabréfið má nálgast á pdf-formi á vef félagsins, www.tou- ristguide.is. Madríd í vor Madríd, höfuðborg Spánar, er af mörgum talin mest spennandi borg í Evrópu, enda ein fjörugasta kvöld- og næturlífs- borg álfunnar. Veitingahúsin, kaffihúsin, barirnir og diskótekin eru óteljandi í borginni og flamenk- óstaðirnir þar eru meðal þeirra albestu á Spáni. Þar er líka mikill fjöldi verslana, safna og veitingastaða auk þess sem knatt- spyrnuvöllurinn Santiago Bernabeu, heimavöllur Real Madrid, er einn glæsilegasti völlur landsins. Úrval Útsýn býður upp á vorferð til borg- arinnar 17.-21.maí næstkomandi, en þá er veðrið þar milt og sólríkt án þess að hitinn sé óbærilegur. Leifur Örn Svavarsson, einn reyndasti fjallaleiðsögumaður landsins: Krefjandi en gefandi heilsurækt | Leifur a Ammasalik-eyju með | grænlenskum yrðlingi Islenskir í>‘ fjallaleiðsögumenn bjóða upp á ferðir S þangað og á Mont Blanc í sumar. sé öll hreyfing af hinu góða. En maður verður að vera vel búinn þegar maður fer í svona ferðir og í seinni ferðinni minni til Græn- lands í fyrra þurfti ég til dæmis að hafa með mér töluvert af sólar- vörn, enda var þá sól í 29 daga í röð og mikið endurkast frá snjón- um,“ segir Leifur. Minna súrefni í háloftunum Þegar fólk sem býr rétt við sjáv- armál klífur há fjöll þarf það að gefa sér nokkurn tíma til að að- lagast loftinu hátt uppi. „Þegar maður fer að nálgast um 3.000 metra yfir sjávarmáli fer maður jafnan að finna fyrir því að loftið er orðið þynnra og þannig er það til dæmis á fjallinu Mont Blanc sem íslenskir fjallaleiðsögumenn stefna á í sumar, en það er 4.800 metrar á hæð. Ef maður myndi æða beint upp á topp á því gæti maður orðið lasinn, þannig að aðlögunin er mjög mikilvæg. í sjálfu sér getur líkaminn aðlagast allt að 5.000 -5.500 metra hæð yfir sjávarmáli, en eftir það fer líkamanum að hraka. Á hæstu fjöllum heims eins og til dæmis Mont Everest hafa menn gjarnan „Efmenn ætla til dæmis að klífa Mont Blanc er tilvalið að byrja á Esjunni, Eyja- fjallajökli, Öræfajökli og fleiri fjöllum hér á íslandi súrefniskúta með sér en reyndar hafa þau fjöll líka verið klifin án súrefnis. Það er þó spurning hversu hollt það er fyrir líkam- ann að leggja slíka súrefnisþurrð á hann,“ útskýrir Leifur. Öll dagleg hreyfing skiptir máli Hann segir besta undirbúning- inn fyrir meiriháttar fjallgöngur einfaldlega vera fjallgöngur. „Ef menn ætla til dæmis að klífa Mont Blanc er tilvalið að byrja á Esjunni, Eyjafjallajökli, Or- æfajökli og fleiri fjöllum hér á íslandi. Reyndar skiptir öll dag- leg hreyfing miklu máli, sama af hvaða tagi hún er. Sjálfur fæ ég mesta ánægju út úr útivist, hvort sem um er að ræða skíði, göng- ur eða fjallaklifur. Og ég þarf alls ekki að klífa hæstu fjöll ein- hverra heimsálfa til þess að hafa gaman af þeim heldur dugar Esj- an til dæmis prýðilega. Núna er ég til dæmis nýkominn af Norður- landi þar sem ég var á fjallaskíð- um og naut þess áð skoða gæsir, helsingja og fleiri fuglategundir í íslenskri náttúru. Svo er það þann- ig að í fjallaferðum upplifir mað- ur gjarnan andartök sem maður á eftir að muna alla sína ævi í hár- nákvæmum smáatriðum,“ segir Leifur að lokum. Með nokkrar milljónir í vasanum Eftir nokkra daga í Taílandi lögðum við land undir fót og fór- um til Laos. Strax við komuna þangað tókum við eftir breyting- um. Þar er til dæmis hægri umferð á meðan það er vinstri umferð í Taílandi auk þess sem vegirnir eru töluvert lakari. Ferð okkar var heitið til Vi- entiane, höf- uðborgar Laos. Við sáum að þar var mik- il uppbygg- ing í gangi og töluvert af verka- mönnum við vinnu og eins og algengt er í Asíu eru ansi margir um Filippseyjar hvert starf eða verk- efni. Til dæmis voru fimm einstaklingar hver ofan í öðrum með strákústa að sópa sandi ofan í samskeyti á gang- stéttarhellum. Við röltum um borgina sem er ansi fal- leg, en frönsk áhrif frá ný- lendutímanum eru enn mjög sterk bæði í byggingar- stíl og á veitingastöðum. Fyrsta hraðbankaferðin var mjög áhugaverð því að í henni endaði maður með nokkr- ‘l .-n ar milljónir af „kip“ í . ' vasanum, allt í smáum seðlum, þó svo að andvirði þeirra væri undir 10 þúsund íslenskum krónum. Við stoppuðum þó ekki lengi í Vientiane því ferðinni var næst heitið til TahKek til að athuga með mótorhjólaferð sem mælt var með í Lonely Planet-bókinni. Meira um það í næstu viku. Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hildur@bladid.net Nú þegar íslendingar eru margir hverjir byrjaðir að skipuleggja sumarið leitar hugurinn gjarnan upp á fjöll, enda er fjallganga frábær heilsurækt og skemmti- leg afþreying fyrir alla náttúru- unnendur. Það þekkir Leifur Örn Svavarsson, sérfræðingur í snjóflóðavörnum á Veðurstofu ís- lands, vel af eigin raun en hann er einn reynslumesti fjallaleið- sögumaður á Islandi. Á morgun, miðvikudaginn 25. apríl klukkan 18, ætlar hann ásamt íslenskum fjallaleiðsögumönnum að kynna ferðir til Mont Blanc, hæsta fjalls Vestur-Evrópu, og Ammasalik á Grænlandi, í verslun 66°Norður við Faxafen. „Síðastliðið ár hefur verið nokkuð annasamt hjá mér í fjalla- leiðsögn erlendis, en ég byrjaði seinasta vor á að fara yfir Græn- landsjökul á gönguskíðum, og nokkrum dögum eftir að ég kom heim aftur fór ég aftur til Græn- lands og dvaldist þá í heilan mán- uð í æfingaferð á jökulinn með indverska sjóhernum, en hann var að æfa sig fyrir ferð á suður- pólinn. Um haustið fór ég síðan til Kirgistans og kleif þar fjallið Mont Lenin og í janúar fór ég til Suður-Ameríku að klífa hæsta fjall álfunnar, Aconcagua, sem er í Argentínu og er 6962 metrar á hæð,“ segir Leifur. Spurður hvort hann stefni á að klífa Everest segir hann ekki loku fyrir það skotið. „Eigum við ekki bara að segja: Hver stefnir ekki á sinn Everest?“ spyr hann kan- kvíslega. Mikil sól á Grænlandi Eins og gefur að skilja eru fjall- göngur krefjandi og ekki síður gönguskíðaferðir yfir Grænlands- jökul. „Maður leggur auðvitað á sig töluvert líkamlegt erfiði dag eftir dag, en þetta er áreiðanlega mun heilsusamlegra en hefðbund- in líkamsrækt, þó svo að_auðvitað

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.