blaðið - 24.04.2007, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2007
blaöið
VEÐRIÐ I' DAG
Léttskýjað fyrir norðan
Suðaustan 10 til 18 og skúrir, en
5 til 10 norðan- og austanlands
og léttirtil. Hiti 3 til 8 stig, en allt
að 14 stigum í innsveitum yfir
hádaginn.
Á FÖRNUM VEGI
Á MORGUN
Hvasst syðra
Suðaustan 5 til 13 m/s og rign-
ing, hvassast og úrkomumest
suðvestanlands, en léttskýjað
á Norðausturlandi. Hiti 5 til 12
stig, hlýjast norðantil.
VÍÐA UM HEIM
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Dublin
Frankfurt
Óskað eftir staðgöngumóður:
23 Glasgow
20 Hamborg
21 Helsinki
21 Kaupmannahöfn
24 London
16 Madrid
23 Montreal
13 New York
20 Orlando
3 Osló
16 Palma
16 Paris
24 Stokkhólmur
15 Þórshöfn
Á að leyfa stað-
göngumæðrun?
Ásgerður Sigrfður
Sigurðardóttir
Nei, mér finnst réttara að aettleiða
frá bágstöddum löndum.
Bæði ólöglegt og
siðferðilega hæpið
■ Auglýst eftir móðurkviði í Morgunblaðinu ■ Staðgöngumæður neita að láta börn af hendi
17
16
12
23
24
9
B
Karl Gunnlaugsson
Já, ef þær geta ekki átt börn
öðruvísi er það hið besta mál.
Jón Stefánsson
Já, af hverju ekki?
Guðfinna Guðlaugsdóttir
Já, mér finnst það.
Egill S. Finnbogason
Já, hvað kemur það fólki við
hvað aðrir eru að ganga með?
Og fleiri kemur til. „Við tækni-
frjóvgun er aðeins meiri hætta
á fötlun. Og hvað ef eitthvað fer
úrskeiðis; er hægt að skilyrða það
í samningum að parið taki við
barninu? Upp koma einkennilegar
spurningar sem gerir þetta mjög sið-
ferðilega hæpið,“ segir Vilhjálmur.
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
1 Morgunblaðinu um helgina birt-
ist auglýsing þar sem óskað var
eftir staðgöngumóður, en stað-
göngumóðir er kona sem gengur
með og elur barn sem getið er af
öðru fólki með tæknifrjóvgun, en
hefur samþykkt fyrir meðgönguna
að láta það af hendi við fæðingu.
Staðgöngumæðrun er óheimil á ís-
landi, en þess eru dæmi að íslensk
pör hafi farið til útlanda til að láta
konu ganga með væntanlegt barn
sitt.
Haqur barnsins og móður
Ástæða þess að staðgöngu-
mæðrun er bönnuð er álitamál sem
geta komið upp varðandi móðerni
barnsins. Reynsla frá löndum þar
sem staðgöngumæðrun er leyfð
sýnir að hætta er á að konur sem
láta frá sér barn sem þær hafa alið
verði fyrir miklum sálfræðilegum
skaða, og komið hafa upp dæmi
þar sem staðgöngumæður neita að
láta börnin af hendi þrátt fyrir að
hafa gert samning um það.
Vilhjálmur Árnason, prófessor
í heimspeki og sérfræðingur í lífs-
siðfræði, segir fleiri siðfræðileg
álitaefni fylgja staðgöngumæðrun.
,Þeir sem eru fylgjandi staðgöngu-
mæðrun tala um þetta sem frelsi
fullveðja einstaklinga til að gera
samninga sín á milli, og benda að
auki á að verið sé að bæta úr barn-
leysi sem fólki líður illa yfir. En á
móti kemur að þetta snýst ekki
aðeins um þessa fullveðja einstak-
linga sem gera með sér samning.
Huga verður að barninu, en hugsan-
lega er verið að tefla hagsmunum
þess í tvísýnu með því að að setja
það í mjög sérstaka aðstöðu." Við
slíkar aðstæður geti barn lent í
tilfinningalegri togstreitu vegna
tengsla sem það myndar við
staðgöngumóðurina.
Eg hallast gegn
staðgöngu-
mæðrun
Vilhjálmur Árnason,
prófessor í heimspeki.
Mérfinnst
að opna eigi
fyrir þennan
möguleika
ReynirTómas Geirsson,
yfirlæknirá
kvennasviði LSH.
Móðurkviður sem söluvara
Vilhjálmur segir einnig vafasamt
hvort barnsburður sé svið sem
selja eigi undir lögmál markaðar
og viðskipta, þannig að konur sem
þjáist af fátækt leiðist jafnvel út í
að gerast staðgöngumæður í fullu
starfi. Slíkt þekkist víða erlendis.
„Maður heyrir konur stundum segj-
ast geta skilið það að aðrar vilji ger-
ast staðgöngumæður þótt þær vilji
ekki gera það sjálfar. Þá kemur upp
spurning um það hver hvatinn sé;
hvort hann sé bara fjárhagslegur.
Ef svo er er hætt við því að viðkom-
andi kona misbjóði líkama sínum.“
Þótt hægt væri að forðast slíkt
með því að banna greiðslur fyrir
staðgöngumæðrun segir Vil-
hjálmur að hún væri samt tvíbent
út frá hagsmunum barnsins. „Ef
ég ætti sjálfur að taka afstöðu í
þessu þá mundi ég hallast gegn
staðgöngumæðrun, aðallega út frá
barnaverndarsjónarmiðum.“
Reynir Tómas Geirsson, pró-
fessor og yfirlæknir á kvennasviði
Landspítala-háskólasjúkrahúss,
tekur ekki alveg í sama streng.
„Mér finnst ekki að koma eigi til
greina að konur fái greitt fyrir að
ganga með börn, En mín persónu-
lega skoðun er samt sú að opna eigi
fyrir þennan möguleika, eða a.m.k.
skoða það vel.“
Sumardekk
Öryggi bílsins byggist
á góðum hjólbörðum
GUMMIVINNUSTOFAN
SP DEKK
Skipholti 35, 105 RVK
Sími: 553 1055
www.gummivinnustofan.is
Opið: mán -fös 8-18 lau 9-15
Kárahnjúkavirkjun:
Vafasamt vatn í kaffistofu
Fram til þessa hefur yfirborðs-
vatn verið leitt inn í kaffiskúr á
vinnusvæði við Kárahnjúkavirkjun,
og það meðal annars notað til að
hella upp á kaffi. Heilbrigðiseftirlit
Austurlands gerði athugasemd við
þetta, enda segir Helga Hreinsdóttir,
framkvæmdastjóri þess, að ekki
sé ráðlegt að drekka vatn úr ám og
lækjum á íslandi. „Við segjum oft
að það sé í lagi að drekka vatn af yf-
irborði lækja og áa þegar við erum
að hlaupa um landið, en það eru
vaxandi vísbendingar um að svo sé
alls ekki. Við erum að finna kam-
fýlóbakter og jarðvegsgerla í vatn-
inu, og við höfum vísbendingar um
nýja tegund af veiru sem erfitt er að
greina í vatni og grunur leikur á að
valdi magasýkingum." Starfsmenn
Kárahnjúka þurfa þó ekki að óttast vantslagninar sem leiða vatn í svefn-
það lengur, því frá og með deginum í skálana og mötuney tið, en það vatn
dag verða kaffiskúrarnir tengdir við stenst kröfur Heilbrigðiseftirlitsins.
i Tær laekur? Visbendingar eru
um að grunnvatn á Islandi sé
alls ekki meinlaust.
____________Mynd/Bryn]iir Gouli
I* •■■■■■■aRMswHfc