blaðið - 24.04.2007, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2007
blaðið
SELFOSS
Sekt fyrir að valda hneykslan
INNLENT
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi 17 ára pilt í
30 þúsund króna sekt fyrir að valda hættu og
hneykslan á almannafæri. Pilturinn sat uppi í aftur-
rúðu bíls sem ekið var um götur Selfoss og neitaði
að auki að gefa lögreglu upp nafn sitt og kennitölu.
365 MIÐLAR
Pétur framkvæmdastjóri tekjusviðs
Pétur Pétursson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri
tekjusviðs 365 miðla ehf. Péturtekurvið af Helga
Birni Kristinssyni. Innan tekjusviðs fer fram öll sala
áskrifta á sjónvarpsstöðvum 365 miðla og auglýsinga-
sala Ijósvakamiðla félagsins og Fréttablaðsins.
REYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR
Ekki vilji til að færa völlinn
Ríflega 54 prósent segja framtíðarmiðstöð innan
landsflugs á höfuðborgarsvæðinu eiga að vera
í Vatnsmýri, samkvæmt skoðanakönnun Frétta-
blaðsins. Fleiri landsbyggðarmenn eru fylgjandi
núverandi staðsetningu en höfuðborgarbúar.
Danmörk:
„Lille pige"í kastljósið
Friðrik, krónprins Dana, og
Mary, kona hans, leyfðu fjöl-
miðlum að mynda nýjustu prins-
essu dönsku konungsfjölskyld-
unnar í fyrsta sinn þegar hjónin
yfirgáfu ríkissjúkrahúsið í Kaup-
mannahöfn í gær. Prinsessan
hefur enn ekki fengið nafn en
gengur undir nafninu „lille pige“.
Hún fæddist síðastliðinn laugar-
dag, vó 3,35 kíló og var 50 senti-
metrar á hæð.
„Lille pige“ er annað barn Frið-
riks og Mary, en fyrir áttu þau
drenginn Christian sem kom í
heiminn fyrir um einu og hálfu
ári.
'lnnritun fynr_
haustönn 200
stendur yf»r.
■ Öflugt starfsnám sem skilar árangri
■ í fyrra komust færri að en vildu
■ Upplýsingar og skráning á haustönn
í síma 544 4500 og á www.ntv.is
Fermingargjafir
fyrir poppara, rappara og rokkara
Mbox mini
MXL 2006 Condenser
míkrófónn
Míkrófónsnúra
Míkrófónstatíf
Esi Mear-04 Studio-
hátalarar med magnara
Fullt verð 79.280 kr.
Fermingartilbod 65.900 kr.
HLJÓÐFÆRAHÚSIÐ
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
Boris Jeltsín, fyrrum Rússlandsfor-
seti, lést í höfuðborginni Moskvu
í gær, 76 ára að aldri. Dánarorsök
hefur ekki verið gerð opinber, en
heimildarmenn erlendra fjölmiðla
segja að hann hafi látist úr hjart-
veiki sem hrjáði hann um margra
ára skeið. Jeltsín átti stóran þátt í
endanlegu falli Sovétríkjanna, en
hann varð fyrsti þjóðkjörni forseti
Rússlands í júní árið 1991. Jeltsín
sagði óvænt af sér forsetaembætt-
inu á gamlársdag árið 1999 og
skipaði Vladimír Pútín forsætis-
ráðherra sem eftirmann sinn, fram
að forsetakosningunum sem fram
fóru nokkrum mánuðum síðar.
Jeltsín vakti mikla athygli og
öðlaðist virðingu víða í heiminum
þegar hann varði lýðræðið með því
að flytja ræðu af skriðdreka í mið-
borg Moskvu við valdaránstilraun
harðlínumanna í ágúst árið 1991 og
fylkti sér þar með að baki Mikhaíl
Gorbatsjov, leiðtoga Sovétríkjanna.
Gorbatsjov steig þó af valdastóli í
desembermánuði sama ár.
Jeltsín var þó umdeildur alla
valdatíð sína og álitu fjölmargir
Rússar hann vera hetju fyrir að
hafa bundið enda á kommúnista-
stjórnina í Moskvu. Aðgerðir Jelt-
síns í þá veru að færa Rússland frá
miðstýringu í átt að markaðshag-
kerfi að vestrænni fyrirmynd voru
mjög umdeildar og einkenndust af
mikilli spillingu. Efnahagsaðgerð-
irnar ollu því að nokkrir auðguð-
ust gríðarlega á meðan lífskjör fjöl-
margra Rússa versnuðu mikið. Enn
fremur varpaði slæmt heilsufar og
drykkjuvandi hans miklum skugga
á forsetatíð Jeltsín.
Gorbatsjov sendi frá sér tilkynn-
ingu í gær þar sem hann sagði
dauða Jeltsíns vera sorgleg örlög.
,Ég votta fjölskyldu hins látna
mína dýpstu samúð.“ Gorbatsjov
sagði að merkir atburðir sem voru
til hagsbóta fyrir rússneska þjóð,
sem og alvarleg mistök, hafi hvílt
á herðum hins látna. Talsmaður
Bandaríkjastjórnar sagði að Jeltsín
hefði verið merkur forseti á tímum
mikilla breytinga og áskorana fyrir
Rússland. „Við vottum frú Jeltsín,
fjölskyldu hans og rússnesku þjóð-
inni samúð okkar.“
Boris Jeltsín fæddist 1. febrúar
árið 1931 í smábænum Butka í Úr-
alfjöllum. Hann ólst upp við kröpp
kjör, en hlaut menntun og starfaði
sem byggingaverkfræðingur áður
en hann komst til áhrifa innan
Kommúnistaflokksins. Jeltsín var
lítt áberandi frá því að hann lét af
forsetaembætti í lok árs 1999. Hann
lætur eftir sig eiginkonu, tvær
dætur og barnabörn.
BORIS JELTSÍN
Febrúar 1931 Fæddist í Butka í Úralfjöllum.
1955 Gengur aö eiga Naina og eignast meö
henni tvær dætur.
Júli 1990 Gengur úr Kommúnistaflokknum.
Júní 1991 Kjörinn Rússlandsforseti (Innan
Sovétríkjanna).
Ágúst 1991 Flytur ræðu af
skriðdreka og talar gegn valdaránstilraun
harölínumanna. Bannar starfsemi Kommún-
istaflokksins.
Desember 1991 Tekur viö af Mikhail Gor-
batsjov sem þjóðhöföingi.
1992 Verðsetning gerð frjáls og Jeltsín
hefur einkavæöingu.
Október 1993 Rússland á barmi borgara-
stríðs og Jeltsín skipar stjórnarhernum að
skjóta á þinghúsið þar sem uppreisnarmenn
höfðu komið sér fyrir.
Desember 1994 Sendir skriðdreka inn i
Téténíu.
Júní 1996 Endurkjörinn Rússlandsforseti.
Fær hjartaáfall í miðri kosningabaráttu.
1998 Efnahagskrísa í landinu og rússneska
rúblan fellur um 75 prósent.
Desember 1999 Segir af sér og skipar
Vladimir Pútín í embætti forseta landsins.
April 2007 Deyr í Moskvu, 76 ára að aldri.
Saksóknari í máli gegn Jónasi Garðarssyni:
Andmælir mati heilasérfræðinga
„Þetta snýst um að hann hafi verið
ófær um að taka meðvitaðar og rök-
réttar ákvarðanir eftir áreksturinn
sökum höfuðhöggs og eiginlega allt
þar til báturinn sökk. Við teljum að
svo hafi ekki verið. Að matið byggi
ekki á miklum læknisfræðilegum
gögnum, ekki umfram það sem lá
fyrir í héraðsdómi,“ segir Sigríður
J. Friðjónsdóttir, saksóknari í máli
Jónasar Garðarssonar. Mat tveggja
sérfræðinga í heila- og taugasjúk-
dómum, sem kom fram í málflutn-
ingi fyrir Hæstarétti síðastliðinn
föstudag, telur Sigríður ekki skipta
máli um ákvörðun sektar.
„Auðvitað kemur mikið högg á
bátinn þegar hann keyrir á þetta
sker. Höfuðið kastast til og heilinn
þar með inni í kúpunni. Þá merst
augntaug. Það sáust engir áverkar
á heilanum við sneiðmyndatöku.
En læknarnir segja í þessu mati, ef
ég man rétt, að það þurfi í sjálfu
sér ekki að sjást. Menn geti fengið
heilahristing eða eitthvað. Hann var
með sár á hökunni en enga aðra ytri
áverka á höfði,“ segir saksóknarinn
sem andmælti því að matið yrði lagt
til grundvallar í málinu.
„Auðvitað vankast hann við
höggið í kannski nokkrar mínútur
á eftir en kannski ekki í 30 mínútur.
En menn hugsa kannski ekki rök-
rétt undir áhrifum áfengis og hvað
þá við þessar aðstæður," bætir Sig-
ríður við.
Engir áverkar á heila við mynda-
töku Jónas Garðarsson, fyrrver-
| andi formaður Sjómannafélags
Reykjavíkur.