blaðið - 24.04.2007, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2007
blaðiö
VESTFIRÐIR
Sekt fyrir líkamsárás
Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi tæplega tvítuga
stúlku í 40 þúsund króna sekt fyrir líkamsárás fyrir
utan veitingastað í Bolungarvík í mars. Stúlkan sló
meðal annars með krepptum hnefa í höfuð annarrar
stúlku. Hin dæmda játaði verknaðinn.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Sautján stútar teknir
Sautján ökumenn voru teknir fyrir ölvuna-
rakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina,
þar af tíu í Reykjavík. Einn var stöðvaður á
föstudagskvöld, átta á laugardag og jafn-
margirásunnudag.
REYÐARFJÖRÐUR
Fyrsta álið frá Alcoa
Áli var um helgina tappað úr fyrsta kerinu sem gangsett var
nýlega í nýju álveri Alcoa-Fjarðaáls. Gangsetning hófst um
miðjan mánuðinn og er gert ráð fyrir að um 40 ker verði gang-
sett í þessum fyrsta áfanga. Alls verða 336 ker í álverinu og
framieiðslugetan verður 346.000 tonn á ári.
Hveralykt tífaldast:
Er og verður inn
an heilsumarka
„Þær kvartanir sem hafa borist
vegna hveralyktar eru teljandi
á fingrum annarrar handar og
brennisteinsvetnismengun á höf-
uðborgarsvæðinu er langt undir
öllum heilbrigðismörkum og hún
verður það áfram þrátt fyrir fyr-
irhugaðar virkjanir við Krýsuvík
og á Hellisheiði," segir Eiríkur
Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi
Orkuveitu Reykjavíkur.
Eins og sagt var frá í fréttum
Sjónvarps um helgina hefur brenni-
steinsvetnismengun í Reykjavík
allt að tífaldast eftir að Hellisheið-
arvirkjun var tekin í notkun, en
slík mengun getur verið banvæn.
Þegar mengunin hefur mælst sem
hæst á höfuðborgarsvæðinu nær
hún þó ekki nema einum þriðja af
viðmiðunarmörkum Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar. Reglurnar
um magn brennisteinsvetnis
eru þó mjög mismunandi eftir
löndum, og athyglisvert er t.d. að
topparnir á höfuðborgarsvæðinu
eru þrisvar sinnum hærri en
leyfileg brennisteinsvetnismengun
í Kaliforníuríki. Engar reglu-
gerðir eru á Islandi um það magn
brennisteinsvetnis sem virkjanir
og verksmiðjur mega losa út í and-
rúmsloftið. Að sögn Þorsteins Jóns-
sonar hjá Umhverfisstofnun er þó
von á slíkum viðmiðunarreglum á
næstu mánuðum.
LAGERUTSALA
í Síðumúla 3-5
40-70% afsláttur af nærfatasettum
á dömur, herra og börn
W Æ
\Jajolef
AXÍOM'
Sími 567 7776 - Opiðvirka daga kl. 12-18, laugardaga kl. 11-15
EUROVISION-UPPHITUN SPRON
Taktu þátt í leik á spron.is fyrir 1. maí og þú
gætir unnið ferð fyrir tvo til Helsinki
og verið með i fylgdarliði Eiriks.
Fylgstu með á spron.is
*.
'spron
Tenging Helgafellsbrautar við Vestur-
landsveg Tillaga Varmársamtakanna
Varmársamtökin kynna tillögu að nýrri tengibraut:
Verndar grænt
útivistarsvæði
■ Bjargar Álafosskvos ■ Vilja ekki samstarf ■ Umhverfisskýrsla í vinnslu
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
,Ég er alveg ósammála því sem haft
hefur verið eftir Ragnheiði Rík-
harðsdóttur bæjarstjóra að tillaga
Varmársamtakanna að leiðum
í Helgafell hafi meiri umhverfis-
áhrif í för með sér en leiðin á deili-
skipulagi yfirvalda Mosfellsbæjar.“
Þetta segir Sigrún Pálsdóttir, einn
aðstandenda Varmársamtakanna
sem um helgina kynntu tillögu að
nýrri leið til og frá Helgafellshverfi
að Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ.
Markmiðið með tillögu samtak-
anna, sem unnin var undir hand-
leiðslu umferðarsérfræðinga, er að
vernda útivistarsvæði við Varmá
og að koma í veg fyrir að Álafoss-
kvos verði eyðilögð. Varmársam-
tökin vilja að grænt útivistarsvæði
nái frá íþróttavellinum upp með
ánni að Álafosskvosinni og áfram
upp að Reykjalundi. Leggja sam-
tökin til að helstu vegtengingar
verði í útjaðri byggðarinnar en
ekki í henni miðri.
„Tengibrautin sem yfirvöld
skipuleggja fer inn að aðalíþrótta-
skólasvæði Mosfellsbæjar og þess
vegna yrði mikil hætta á svifryks-
mengun þarna. Þetta er bara rétt
við fótboltavöll barnanna okkar.
Auk þess yrði mengun í kvos-
inni, vinsælasta ferðamannastað
Mosfellsbæjar, og í sjálfri Varmá.
Þessi tengibraut á deiliskipulag-
inu veldur viðvarandi umferðar-
hávaða og liggur í raun meðfram
ánni á mjög löngum kafla," bendir
Sigrún á. Hún geturþess jafnframt
að á deiliskipulagi og aðalskipu-
lagi sé vegur yfir Varmá eins og í
tillögu Varmársamtakanna. Þau
hafi ekki átt frumkvæði að því veg-
arstæði. „Það var líka uppástunga
sérfræðinga í umferðarverkfræði
að leggja veginn þarna frekar en
að skemma kvosina."
Samtökin segjast ekki vilja
beina allri umferð ofan byggðar
inn á Þingvallaveginn, heldur fara
niður að Vesturlandsvegi við jaðar
byggðarinnar.
Sigrún bendir á að í tveimur af
fjórum tillögum arkitektastofa
sem þátt tóku í samkeppni um
skipulagningu Helgafellslandsins
hafi ekki verið gert ráð fyrir vegi
um Álafosskvos. „Verkfræðingar
sem við höfum verið í samstarfi
Uppástunga
sérfræðinga
Sigrún Pálsdóttir,
Varmársamtökunum
við mæla með þessari tillögu
sem við höfum nú sett fram. Við
bárum upp þá ósk við bæjarstjóra
þann 21. febrúar að gefið yrði
grænt Ijós á að við færum í sam-
starf við ákveðna verkfræðistofu
um að bjóða íbúum upp á fleiri
valkosti. í svari sem okkur barst
nú í apríl var ekki fallist á þessa
ósk okkar. Bæjaryfirvöld vilja
ekki samstarf. Það sýndi sig líka
á íbúaþinginu um helgina. Sjálf-
stæðisflokkurinn var eini stjórn-
málaflokkurinn sem ekki sendi
fulltrúa á þingið.“
Bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ
hafa ákveðið að láta gera umhverf-
isskýrslu um tengiveg inn í Helga-
fellshverfi. Endurskoðuð tillaga
að deiliskipulagi ásamt umhverf-
isskýrslu verður auglýst til kynn-
ingar og gefst þá öllum tækifæri á
að koma með athugasemdir.
Heilsugæslan á Siglufirði:
Þúsund fermetra viðbygging rís
Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra, und-
irritaði í gær verksamning við
byggingafélagið Berg hf. um við-
byggingu við húsnæði Heilsugæsl-
unnar á Siglufirði. Viðbyggingin,
sem mun rísa austan við núverandi
húsnæði, verður liðlega 1000 fer-
metrar að stærð á tveimur hæðum.
Þetta kom fram í fréttatilkynningu
frá ráðuneyti Sivjar í gær. Gert er
ráð fyrir að heildarkostnaður við
bygginguna verði um 270 millj-
ónir króna en áætluð verklok eru
um mitt sumar 2008. Núverandi
sjúkrahús á Siglufirði var vígt árið
1966 og leysti þá af hólmi eldra hús
sem tekið var í notkun 1928. Gamla
húsið var rifið árið eftir vígslu nýja
hússins, en nýbyggingin sem nú er
verið að hefjast handa við mun að
hluta til rísa þar sem gamla húsið næðis Heilbrigðisstofnunarinnar á
stóð. Viðbyggingin er liður í heild- Siglufirði sem staðið hefur yfir frá
arendurbótum og stækkun hús- árinu 2002.