blaðið - 24.04.2007, Page 9
blaðið
ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2007
9
Bretland:
Lést eftir
maraþon
Skipuleggjendur Lundúnamara-
þonsins tilkynntu í gær að 22 ára
Breti, sem hné niður eftir að hafa
lokið hlaupinu á sunnudaginn,
hafi dáið. Hlauparinn var fluttur
á sjúkrahús eftir að hann lauk
hinu rúmlega 42 kílómetra langa
hlaupi í hita sem hafði ekki mælst
hærri í 27 ára sögu hlaupsins.
Nærri 36.400 manns hófu
hlaupið klukkan níu á sunnu-
dagsmorgninum og höfðu 35.974
manns klárað hlaupið síðar um
daginn, eða klukkan sex. Rúm-
lega sex hundruð manns tókst
ekki að Ijúka hlaupinu, þar á
meðal var Eþíópíumaðurinn
Haile Gebrselassie sem var talinn
einna líklegastur til að sigra.
Kæra stjórnvöld:
Vilja öll gögn
og skýrslur
Stjórn Samtaka um betri byggð
hefur kært borgarstjórann f
Reykjavík og samgönguráðherra
til úrskurðarnefndar um upplýs-
ingamál. Samtökin hafa óskað eftir
því að fá afhentar skýrslur sam-
ráðshóps um framtíð Reykjavikur-
flugvalíar sem borgarstjórinn og
ráðherrann skipuðu. f yfirlýsingu
frá samtökunum segir að þau hafi
fyrst óskað effir skýrslunum 13.
apríl sL, og hafi ítrekað ósk sína
degi áður en 7 daga frestur til að
verða við ósk þeirra rann út. Þau
telja að samkvæmt upplýsinga-
lögum beri yfirvöldum skylda til
að afhenda þeim skýrslurnar.
Alþjóðabankinn:
Wolfowitz
segi af sér
Rúmlegu fjörutíu fyrrverandi
háttsettir embættismenn innan
Alþjóðabankans hafa hvatt Paul
Wolfowitz, forseta Alþjóðabank-
ans, til að segja af sér embætti.
Wolfowitz hefur verið harðlega
gagnrýndur eftir að hann við-
urkenndi að hafa veitt ástkonu
sinni stöðuhækkun og mikla
launahækkun innan bankans.
Hópurinn, sem samanstendur
meðal annars af átján fyrrum
varaforsetum Alþjóðabankans,
segja Wolfowitz hafa glatað trausti
og virðingu starfsmanna Alþjóða-
bankans. Wolfowitz hefur beðist af-
sökunar á mistökum sfnum og seg-
ist vilja halda áfram að vinna að
mikilvægum verkefnum bankans.
Samningur um orkusölu:
Álvinnsla í Helguvík árið 2010
Norðurál og Hitaveita Suður-
nesja undirrituðu í gær samning
um orkusölu til fyrirhugaðs álvers
Norðuráls í Helguvík. Samkvæmt
samningnum mun Hitaveitan
útvega Norðuráli raforku fyrir ál-
verið, þar á meðal allt að 150 MW
fyrir fyrsta áfanga álversins sem
miðast við 150.000 tonna ársfram-
leiðslu. Þetta kom fram í fréttatil-
kynningu sem Hitaveitan og Norð-
urál sendu frá sér í gær.
Reykjanesbær, Hitaveita Suð-
urnesja og Norðurál undirrituðu
á vormánuðum 2005 samstarfs-
samning um könnun á mögu-
leikum þess að álver yrði reist.
Strax í kjölfarið var farið af stað
með frekari könnun á orkuöflun,
umhverfisskilyrðum, hafnarað-
stæðum, staðsetningu og öðrum
þáttum. I júní undirrituðu Norð-
urál, Hitaveita Suðurnesja og Orku-
veita Reykjavíkur viljayfirlýsingu
um raforkusölu til fyrirhugaðs ál-
vers í Helguvík. Ef allt gengur sam-
kvæmt áætlun er áformað að jarð- 2007 og að fyrsta afhending orku
vegsframkvæmdir hefjist í lok árs til álvinnslu verði árið 2010.
dJI]Qin UJJ íj/ J/jyJ óí'úM
HEILSUDYN
Ein besta heilsudýna í'heimi
IQ-CARE aðlagast fullkomlega að líkamanum og tryggir dýpri og betri svefni.
IQ-CARE er svæðisskipt og gefur því réttan stuðning fyrir mjóbak og axlir.
IQ-CARE er með opnari efniseiginleika en flestar vörur úr skyldum efnum og andar því betur.
IQ-CARE aðlagast hraðar að líkamanum en flest rúm úr skyldum efnum.
IQ-CARE er ein sterkasta efnablanda sem þróuð hefur verið og endist því lengur en skyldar vörur
IQ-CARE þrýstijöfnunarefnið er mikið notað og viðurkennt af sjúkrahúsum og heilsustofnunum.
VELDU AÐEINS ÞAÐ BESTA!
S-CAPE
WALLHUGGER
Hjónarúm með
okkar bestu IQ-CARE heilsudýnu
Dæmi: 160 x 200 cm kr. 369.900 stgr.
Rúm sem dregst að veggnum þannig
að þú helst við hlið náttborðsins.
• Mest seldi botninn í heiminum.
• Upplýst þráðlaus fjarstýring með
öllum stillingum.i.
• Sterkir og hljó[átir þýskir
lyftumótorar.
• Sér stilling fyrir höfuðlag.
• Öflugir nuddmótorar með
sjálfvirkum tímarofa.
• Einn allra sterkasti stálgrindarbotn
sem framleiddur er í dag.
• Öll liðarmót úr flugvélaplasti.
• 12 ára ábyrgð.
Loftrúm án rafmagns
Hjónarúm með
okkar bestu IQ-CASÆ heilsudýnu
Dæmi: 160 x 200 cm kr. 219.900 stgr.
Mest selda stillanlega rúmið
Frábær reynsla á íslandi frá árinu 2000.
• Sterkir og hljóðlátir þýskir mótorar.
• Stýring er einföld og þægileg.
• Mýkra axlasvæði og stillanlegt
mjóbakssvæði.
• Hægt að fá stillanlega fætur sem
ráða hæð rúmsins.
• 5 ára ábyrgð.
Ef þig vantar gott og sterkt stillanlegt
rúm þá er BIFLEX lausnin.
Frí þrýstijöfnunarmæling
sem greinir hvaða dýna
hentar þér best
Dalsbraut 1
SVEFN & HEILSA GEGNIR MIKILVÆGU HLUTVERKI
£.Utö.
Svefn&heilsa
^ ★ ★ ★ ★ ★ ^
Svefn&heilsa
^ ★★★★★ ^
AKUREYRI IGII.I. ÞORSTHNSSOX KÍRÓPRAKTOR
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Dalsbraut 1, Akureyri, 461 1150
Opið virka daga 10:00 - 18:00 - laugardaga 11:00 - 16:00
REYKJAVÍK
www.svefn.is