blaðið - 24.04.2007, Page 12

blaðið - 24.04.2007, Page 12
blaðið blaði Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Ár og dagurehf. Trausti Hafliðason Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Óspennandi barátta Það eru ekki nema tæpar þrjár vikur til kosninga. Ætli fólk átti sig al- mennt á þessu? Jú, eflaust átta kjósendur sig á þessu en ég hef efasemdir um að frambjóðendur geri það, slík er ládeyðan í kosningabaráttunni. Ef fram fer sem horfir verður þessarar kosningabaráttu minnst sem ein- hverrar þeirrar minnst spennandi i manna minnum. Það er með ólíkindum hversu óspennandi hin pólitíska umræða hefur verið, sérstaklega eftir páska þegar maður ætlaði að hún færi á fullt. Það er hreinlega eins og handritið hafi verið skrifað af stjórnarflokkunum. Það er þannig í þeim löndum sem búa við fulltrúalýðræði að kosninga- baráttan er knúin áfram af stjórnarandstöðuflokkunum. Það eru þeir sem þurfa að sækja á. Það eru fyrst og fremst þeir sem þurfa að benda á það sem miður hefur farið hjá ríkisstjórnarflokkunum. Það eru þeir sem þurfa að sannfæra kjósendur um mikilvægi þess að fella núverandi stjórn - mikilvægi þess að breyta til. Það er ekki hægt að segja að stjórnarandstöðunni hafi tekist neitt af þessu. Að minnsta kosti ekki eins og staðan er í dag. Kannski bíður hún með ásana, en guð minn góður hvað þeir eru þá langt uppi í erminni. Reyndar leyfi ég mér að efast um að hún finni ásana innan þriggja vikna og ef hún finnur þá ekki þá heldur núverandi stjórn velli. Miðað við núverandi aðstæður er alls ekki órökrétt að halda því bein- línis fram að það sé harla lítill málefnaágreiningur milli flokkanna í þeim málum sem skipta kjósendur hvað mestu. En ef hann er til staðar þá hefur stjórnarandstöðunni að minnsta kosti alls ekki tekist að draga hann fram. Fram að þessu hafa kosningarnar fyrst og fremst snúist um stóriðjumál, samgöngumál og kannski skattamál. Það fjaraði reyndar mikið undan stóriðjuumræðunni eftir kosningarnar í Hafnarfirði. Svo virðist sem kjósendur séu orðnir þreyttir á þeirri umræðu eða að þeim finnist kannski nóg komið fyrst komið var í veg fyrir stækkun álversins í Straumsvík. Þetta endurspeglast ef til vill best í fylgi Vinstri grænna sem hefur snarminnkað samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum. Það eru fáir sem andmæla því að íslendingar búa almennt við vel- megun. Það má aftur á móti deila um hvort það er núverandi stjórn að þakka eða öðrum. Þessi uppgangur hefur hins vegar kostað sitt. Verð- bólgan hefur um langt skeið mælst alltof há, viðskiptahallinn hefur verið gríðarlegur og húsnæðisverð hækkað fram úr öllu hófi, svo mjög að ungt fólk á í stökustu erfiðleikum með að koma sér þaki yfir höfuðið. Þó Is- lendingar búi almennt við velmegun þá er líka alveg ljóst að aldraðir og öryrkjar hafa dregist aftur úr. Stjórnarandstaðan hefur gert sér lítinn mat úr þessu. Fyrir þá sem vilja líflega og málefnalega umræðu fyrir kosningar þá hefur botninum vonandi verið náð. Vonandi fer kosningabaráttan að hefjast. Trausti Hafliðason Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins NÁM í ÍTALSKRI HÖNNUN OG TÍZKU MILANO • TORINO • ROMA • BARCELONA • MADRID KENNT ER Á ENSKU, ÍTÖLSKU, EÐA SPÆNSKU Istituto Europeo di Design hefur í 40 ár verið í fararbroddi hönnunarskóla í Evrópu. Nám hjá IED hentar vel nemum sem hafa lokið grunnnámi á lista- og hönnunarsviði, svo og þeim sem lokið hafa BA námí tengdu tísku- og hönnun. Nám hjá IED er einstakt tækifæri til að upplifa af eigin raun óviðjafnanlegt umhverfi i'talsks og spænsks hönnunarheims. IStltutO/^K Europeo w di Design KYNNTU ÞÉR MÁUÐ • SÍMI 562 2220 • WWW.LINGO.IS 12 ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2007 ÞIDþARNA! ÉG ætla m L/irfl YKKþh VITfl Vií> ^KpMumst EKKi A P/J MVM mmnim vimst í VfTlSLobUM MAwjv/leSJM . EVMPAR. OQ %újJT\JR1W i IUSTUR5TRÆH Rt\lÞREj AETUFl TEKlMN UPP. Sagan Stofnun Samfylkingarinnar markar skörp skil í íslenskri stjórn- málasögu. Þeirri uppstokkun sér ekki fyrir endann á og gagnlegt að líta til upphafsins nú þegar þriðja atlagan að einokun Sjálf- stæðisflokksins og hægri manna á íslenskum stjórnmálum stendur sem hæst. Árið 1999 buðum við fram í fyrsta sinn. í loftinu lá að um tímamót var að ræða. Nú yrði ekki snúið til baka. Sameiginlegt framboð flokkanna fjögurra, A- flokka, Kvennalista og Þjóðvaka árið 1999 undir forystu Margrétar Frímannsdóttur, Jóhönnu Sigurð- ardóttmv Guðnýjar Guðbjörns og Sighvats Björgvinssonar markaði merkileg skil í söguna. Saman skyldu starfa f einum flokki fé- lagshyggjuöflin á Islandi. Einn breiður jafnaðar- og félagshyggju- flokkur varð til. Reynt var að ná öllum með. Nokkrir einstaklingar töldu sér það ekki fært. Samfylk- ingin var ekki nógu langt til vinstri að þeirra mati. Of mikið slegið af. Auðvitað var málum miðlað og deilur settar til hliðar. Ekkert mál að finna sér tilefni til brottfarar. Stæði hugur til þess. En hið merkilega gerðist að flokkarnir náðu saman mínus Steingrímur J. og fáeinir aðrir. Þeir voru sósíalistar af þeirri gerð- inni að ekki áttu samleið með hóf- samari félagshyggju. Ekkert mátti slá af. Nýr miðflokkur Því er sérkennilegt í besta falli að fylgjast með þróun VG nú þegar byrlegar blæs i könnunum Klippt & skorið T0 l u |orkennileg hljóð eru farin að berast úr sókn- arlúðrum Framsóknar- flokksins en flestar kannanir sem gerðar hafa verið mæla flokkinn með innan við tíu prósenta fylgi. Verði það raunin geta sjö af tólf þingmönnum flokksins skráð sig atvinnu- lausa eftir þrjár vikur. Guðni Ágústsson varafor- maðursegirstöðuna erfiða ogljóstaðflokkurinn þurfi að íhuga stöðuna vel að loknum kosningum. Kliþþari man ekki betur en flokkurinn hafi ein- mitt komið sérstaklega saman eftir hrapallegar niðurstöður í sveitarstjórnarkosningum fyrr í vetur með einmitt það í huga að íhuga stöðuna vel.í kjölfarið var skipt um formann. Forvitnilegt verður að vita hvort flokksmenn finni aftur hjá sér þörf til að skipta um fyrirliða fari kosningar á þannveg semkannanirsýna. og Samfylkingin hjá flokknum og fimmtungur kjósenda spáir í að leggja þeim til atkvæði sitt. Þá breytist margt og iða kemst á hlutina. Helg vé falla og mildari blær er á framsetningu allra þanka flokksins. Flokkurinn fer að miðju. Ekki á að hækka skatta. Ekki heldur á fjármagn og fyrirtæki. Ekki stopp á stóriðju heldur frestun og hlé eins og Samfylkingin boðar. Hver veit nema megi meira að segja ræða um Evrópusambandið og breytingar á landbúnaðarstefnu Framsóknar? Ekki enn en hver veit, það eru enn nokkrir klukku- tímar til kosninga. Einfaldlega Björgvin G. Sigurðsson svona; skilaboðin eru um margt sæmandi ágætum sósíaldemókra- tískum flokki. Svona að því er virðist við fyrstu sýn. Þá hlýtur maður að velta því upp; af hverju fóru þeir ekki með í sögulegt ferðalag um sameiningu vinstra megin við miðju? Hvað varð um vinstri harðlínuna sem átti að reka til hliðar við breiða félags- hyggjuflokkinn? Því í ósköpunum að dreifa kröftum og undirstrika þannig stöðu hægri manna í einum íhaldsflokki? Breiður félagshyggjuflokkur Samfylkingin var stofnuð til að búa til stóran, breiðan jafnaðar- flokk. Valkost við íhaldið. Valda- flokk til vinstri sem breytti þjóð- félaginu í anda félagshyggju og samhjálpar. Sú þróun stendur enn yfir og hefur gengið vel. 30 prósent flokkur á þingi og í sveitarstjórnum. Nú er sótt að þeirri stöðu. Verjum hana af öllu afli. Blekkingar til hægri og vinstri mega engu breyta þar um. Nú í nokkar vikur er meira að segja Sjálfstæðisflokkur frjáls- hyggjuúlfur í velferðargæru. Það mun standa stutt yfir. Það væri mikið áfall fyrir íslenskt félags- hyggjufólk ef þessi staða breytt- ist og fylgi við flokkanna félli í far gömlu margsundruðu vinstri flokkanna. Sundrungin sem Sjálf- stæðisflokkurinn nærðist á. Sterk Samfylking markar endalok valda- skeiðs Sjálfstæðisflokksins. Svo einfalt er það mál. Sundraðir og fylgislitlir flokkar vinstra megin við miðju sem keppa að því marki að verða næsti partner íhaldsins er framhald á þeirri sterku stöðu sem hægri öflin hafa í íslenskum stjórnmálum. Einu Norðurland- anna. Verjum því sterka stöðu Sam- fylkingarinnar af öllum þeim pól- itíska þrótti sem tiltækur er. Um leið tryggjum við það að Island verði aftur í hópi norrænu velferð- arríkjanna. Endurreisum velferð- arkerfið. Sterk Samfylking er eina svarið við þessari þróun. Vinnum þennan sigur í vor. Höfundur er þingmaður og oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi r aðdraganda alþingiskosn- inga er flugvallarmálið aftur farið að bera á góma. Fleiri eru fylgjandi núverandi legu flugvallarins en talið var en ekki er alveg búið að slá út af borði þeirri hugmynd að færa hann út á Löngusker. Mun það vera æskilegur sameiningarkostur fyrir marga þótt kostnaður- inn sé ef til vill í hærri kantinum. Tíminn hlýtur þó að vera orðinn naumur þegar hafðar eru í huga landvinningahugmyndir Gunnars Birg- issonar í Kópavogi. Uppfyliingar þær undir íbúðir og iðnað er þar hafa verið skoðaðar við vesturströndina fara langleiðina að skerjunum og Gunnar vill ólmur hefjast handa. Hætt er við að fyrirhugað bryggjuhverfi missi marks þegar umferð Fokker-véla og einkaþotna er al- gengari en skemmtibáta og seglskútna íbúa. Blaðamenn Frétta- blaðsins, þeir Björg- vin Guðmundsson og Páll Baldvin Baldvinsson, eru jafnan með nóg á sinni könnu. Morgundag- urinn kann þó að verða þeim erfiður í skauti enda bókstaflega gert ráð fyrir að báðir séu á tveimur stöðum í einu. Annars vegar í Hér- aðsdómi Reykjaness þar sem aðalmeðferð fer fram í meiðyrðamáli gegn þeim og tveimur öðrum frá klukkan níu árdegis til þrjú um dag- inn. Hins vegar eiga þeir einnig að vera við- staddir fyrirtöku vegna annars meiðyrðamáls gegn þeim ( Héraðsdómi Reykjavíkur laust fyrir klukkan ellefu. Bæði málin eru höfðuð vegna starfa þeirra sem ritstjóra DV í fyrra. albert@bladid.net

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.