blaðið


blaðið - 24.04.2007, Qupperneq 13

blaðið - 24.04.2007, Qupperneq 13
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 24. APRIL 2007 13 r Ekki innflytjendavandi á íslandi Eiríkur Bergmann og fleiri í líkri stöðu, sem ekki telja sína atvinnu og afkomu í hættu vegna straums innflytjenda, tala digurbarkalega og gera lítið úr áhyggjum verka- fólks og iðnaðarmanna. Fullyrðing Eiríks og liðsmanna hans sem þeir halda mjög fram er á þessa leið: Við viljum hafa rétt til þess að fara utan og starfa erlendis og hví eigum við þá að amast við erlendu verkafólki á Islandi. Rétt er að benda Eiríki enn einu sinni á þá staðreynd að hver sá íslendingur sem utan heldur til starfa krefst hvar sem er sömu launa og innlendir menn og gjarnan heldur hærri ef hægt er. Hið gagn- stæða gerist hér á landi og það er eitt vandamálið sem þarf að taka á, inn- flytjendunum til góðs. Eiríkur Berg- mann og viðhlæjendur hans vita (held ég) að einungis örfáir illa upp- lýstir menn amast við hinu erlenda verkafólki. Af pólitískum ástæðum kýs hann og lið hans hins vegar að halda því fram að Frjálslyndir séu upp til hópa andstæðingar hins erlenda fólks. Það er rangt. Ég til dæmis talaði á fundi Frjálslyndra ákveðið máli hins erlenda fólks og lagði áherslu á að ekki væri enn til innflytjendavandi á íslandi. Ég full- yrti hins vegar að varðandi innflytj- endur væri vandamálið íslenskir atvinnurekendur, verkalýðsleið- togar og íslenskir stjórnmálamenn. Ég lagði áherslu á í ræðu minni að við ættum að sýna hinu erlenda verkafólki vinsemd og hjálpsemi og stuðla að því eftir mætti að það kynntist sem fyrst þeim reglum sem gilda um laun og kjör á hérlendum vinnumarkaði. Rasismi Fréttastofa Ríkissjónvarpsins sem tók upp mál mitt á fundinum kaus af einhverri ástæðu að kljúfa úr ræðu minni þau orð sem slitin úr sam- hengi mátti túlka sem rasisma. Þessi vinnubrögð fréttastofunnar eru afar ámælisverð og sýna ekkert annað en hlutdrægni eða með öðrum orðum ófyrirleitni í því skyni að bregða því ljósi á fund Frjálslyndra að þar væru rasistar á ferð. Þau vinnubrögð hugn- ast Eiríki Bergmann greinilega mjög vel og öðrum sem stunda ámóta óheiðarlegan málflutning. Að frétta- stofa ríkisútvarps landsmanna skuli klippa bút úr ræðu sem flutt var á fundinum í þvi skyni að „sanna' með rangindum að rasisti hafi talað gegn útlendu fólki er hneisa. Að Ei- ríkur Bergmann skuli taka undir slíkt, án þess að hafa heyrt alla ræðu íslenskukennslu er til skammar. Að annað en flótti pólitískra afla sem íslensktfólksemvillbreytaþessuog skammast sín og reyna að breiða bæta hag hins erlenda verkafólks sé yfir skítinn. kallað rasistar vegna þess að það vill _____________________________________ ræða þessi mál, er vitanlega ekkert Höfundur er leigubílstjóri Að opna maðkaveituna Til skammar Loks skal ég geta þess að hvorki ég né nokkur annar á fundi Frjáls- lyndra talaði gegn innflytjendum en uggandi voru margir vegna hinnar miklu og óstýrðu fjölgunar þess fólks sem streymir til landsins og lendir hér hjá óhæfum stjórnmála- mönnum, sljóum verkalýðsleið- togum og atvinnurekendum sem stunda nánast þrælahald. Að vilja ekki ræða þessi mál er til skammar. Að halda erlendu verkafólki í ólög- legu húsnæði er til skammar. Að láta það viðgangast að erlent verka- fólk vinni jafnvel á hálfum launum er svívirða. Að okrað sé í húsaleigu á erlendu fólki er óþolandi. Að erlent fólk sem komið er hér í vinnu fái enga Á fundi Frjálslyndra í Skeif- unni 7 fyrir skömmu tók ég þátt í umræðum varðandi málefni inn- flytjenda. Ríkissjónvarpið birti í fréttum örlítið brot af málflutningi mínum, þar sem ég nefndi þau áhrif sem hátíðarhöld í miðborg Malmö höfðu á mig. Að venju óvandaðra fjölmiðla var birt brot sem orkað gat tvímælis og bent gæti til rasisma. Eiríkur Bergmann og fleiri hafa van- hugsað, pólitískt ef ekki beinlínis af illum hvötum velt sér upp úr þessu broti ræðu minnar. Ég geri ekkert með bull óvandaðra manna en hefi hingað til ekki talið Eirík til þess hóps þó ég telji hann einfalda mjög og gera lítið úr þeim vanda sem gíf- urlegur innflutningur fólks sem er af erlendu bergi brotið getur valdið og sem þegar hefur valdið ólgu sem er þegar orðin kveikja að vanda- málum hér í landi. mína, er skiljanlegt en honum til skammar. Skiljanlegt þar sem Ingi- björg Sólrún, vinkona hans, ásamt R-listanum í Reykjavík fór í farar- broddi fyrir þeim verknaði að bjóða út ræstingar í skólum borgarinnar sem varð til þess að laun lækkuðu fyrir þau störf og varð upphafið að því að erlent verkafólk gekk á lægri launum inn í störf sem íslendingar höfðu gegnt áður. Þeir sem nenna ættu að kynna sér máttleysi Eflingar í því máli og sinnuleysi stjórnmála- manna í Reykjavík varðandi sama mál og ósvífni atvinnurekandans sem tók að sér ræstingarnar. Þeir munu sjá að það sem ég fullyrti á fundi Frjálslyndra í Skeifunni er rétt. I/andamálið er íslenskir atvinnu- rekendur, verka- lýðsleiðtogar og stjómmálamenn. Kristinn Snæland ORUGG FJ ARFESTI NG A ISLENSKA H LUTABREFAMARKAÐN U M ICE in Höfuðstólstryggður 0 4 0 8 hlutabréfareikningur Vegna frábærra undirtekta á ICEin 0308 höfum við opnað fyrir sölu á ICEin 0408. Fjárfestu á íslenska hlutabréfamarkaðnum án fyrirhafnar og með takmarkaðri áhættu. ICEin 0408 er höfuðstólstryggður hlutabréfareikningur sem fylgir gengi íslenska hlutabréfa- markaðarins, OMXI15 vísitölunni (áður ICEX-15). • Lágmarksupphæð er 500.000 kr. • Innlánið er bundið í eitt ár • Ávöxtun allt að 25% • Höfuðstóll er tryggður • Upphafsgengi ákvarðast í lok dags 26. apríl Kynntu þér málið á kaupthing.is, í þjónustuveri bankans í síma 444 7000 eða komdu við í næsta útibúi. So/ut/'mab/7 0408 16.-26. apr/7 KAUPÞiNG Hugsum lengra Svívirða Að láta það viðgangast að erlent verkafólk vinni jafnvel á hálfum launum er svívirða.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.