blaðið - 24.04.2007, Qupperneq 15
blaðió
ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2007 15
Hræsnarar vilja
þagga niðurþað
sem kraumar
undir hjá þjóðinni
með stimplinum
rasismi.
Umrœðan
Albert Jensen
undanskilin. Aðeins ein úr þessum
fjölda fannst mér óhæf. Þá konu hef
ég ekki séð í nokkur ár. Hinar eru ljúf-
mannlegar ogþolinmóðar. Meðferðin
á þessum konum og þeim fáu íslensku
sem enn láta þetta yfir sig ganga er
þjóðarskömm. Til að gera starfið
þokkalega aðlaðandi þarf mikil kaup-
hækkun að verða í þjónustunni og
bætt vinnutilhögun. Aðeins þannig er
velsæmis gætt.
Notfæra sér neyð
Á fáum misserum hefur meiri
fjöldi útlends farandverkafólks og
innflytjenda streymt til landsins en
Frónverjar hafa getað tekið við með
sæmd. Langt umfram það sem aðrar
þjóðir gera. Að skipulagið var ekki í
okkar höndum má rekja til óforsjálla,
nánast hræsnisfullra pólitíkusa og
þrýstings frá verktökum, en ljóst er að
margir þeirra ásamt vinnumiðlurum
hafa notfært sér neyð þessa fólks. Ég
hef ógeð á íslensku og útlendu fólki
sem hýsir verkafólk í gámum og at-
vinnuhúsnæði, svo ekki sé talað um
aðbúnaðinn, okrið og launasvindlið.
Ekki er afsannað að útlendur leigu-
miðlari á fólki hafi sagt verktökunum
sem hann útvegaði eða leigði landa
sína, að þeir mættu berja úr þeim leti
og múður. Pólverjar eru duglegir og
fjölmennastir í hópi innfluttra. Ein-
staklingum úr röðum innflytjenda
sem skaða okkur og þeirra heiður á að
vísa umsvifalaust úr landi. Við eigum
ekki að fylla fangelsin af útlendum
misindismönnum. Þeim er næg refs-
ing að vera vísað úr landi.
Hræsnarar
Ótrúlegt er hve margt ágætis fólk
lætur óábyrga blaðrara úr röðum
þingmanna og öfgafulla einstaklinga
leiða sig í ógöngur í málum innflytj-
enda. Síðasta hálmstrá gamals, úr
sér gengins stjórnmálaflokks, er að
ófrægja alla þá sem vilja málefnalega
umræðu um innflytjendur. Hann
og fleiri með slæma fortíð verða sér
frekar til skammar á öðrum sviðum
til að forðast athygli í þeim efnum.
Málefnaleg umræða „Síðasta hálm-
strá gamals, úr sér gengins stjórnmála-
flokks, erað ófrægja alla þá sem vilja
málefnalega umræðu um innflytjendur. *
Þú færð gómsætar uppskriftir ó www.holta.is
Vinsælasti ferski kjúklingurinn á Islandi'
*Skv. könnun Capacent Gallup, október 2006
Eru Islendingar Norður-
landameistarar í hræsni?
Þótt ég mæli með íslandshreyfing-
unni, fyrirlít ég alla hræsnis- og
fúkyrðafullar árásir á Frjálslynda
flokkinn sem einn allra þorir að
ræða skipulagslausan innflutning á
fólki. Klaufaskapur formælendanna
og lævís útúrsnúningur andstæðing-
anna veldur því að þjóðin fær ranga
sýn á meininguna. Stóriðju- og ESB-
stefna flokksins er hans Akkillesar-
hæll. Hræsnarar vilja þagga niður
það sem kraumar undir hjá þjóðinni
með stimplinum rasismi. Þó ólíku
sé saman að jafna má segja að það
minni á þá sem horfa aðgerðalausir
á illþýði berja saklausan mann. Þora
jafnvel ekki að segja frá af ótta um
sjálfa sig. Orð eru til alls fyrst og
við eigum ekki að láta hagsmuni
huglausra hræsnara koma í veg fyrir
að viðkvæm mál séu rædd. Ég gæti
auðvitað ekki verið á lista hjá íslands-
hreyfingunni og stutt hana af alefli ef
ég hefði ekki samúð með fólki sem er
að sækja okkur heim.
Höfundur er trésmíðameistari og býður
sig fram fyrir hönd íslandshreyfingarinnar
Um daginn varð ég sem oftar vitni
að því hvernig íslendingar gjörnýta
útlent verkafólk og innflytjendur. Svo
langt er gengið, að jaðrar við andlega
og líkamlega útjöskun. 1 þessu tilfelli
voru þrjár asískar konur í umönnun-
arstörfum í tveimur blokkum við
Sléttuveg. íbúar húsanna eru flestir
ósjálfbjarga og álagið langt umfram
getu starfskvennanna. Tvær voru á
sífelldum hlaupum milli húsanna. I
öllum veðrum, alla daga síðastliðin
ár, fara konurnar oft á dag milli hús-
anna úr hitanum út í kuldann, upp
og niður misfæran brattann og aftur
inn í hitann. Á báðum stöðum tekur
við þeim andlega og líkamlega mikil
vinna sem gerir umtalsverðar kröfur
til þeirra. Ég er viss um að hámenntuð-
ustu sérgráðufurstar sem hafa þreföld
árslaun þessa fólks á mánuði, yrðu að
gjalti frammi fyrir slíkum kröfum.
Svívirðilega lág laun
Vegna svívirðilega lágra launa, álags
í þrælkunarstíl og skilnings- og til-
litsleysis stjórnenda er svo slæmt orð
komið á þennan rekstur Félagsþjón-
ustunnar að fólk fæst ekki í vinnu. Ef
íslensk kona hættir í starfinu kemur
útlend í staðinn sem ekki skilur málið.
Eftir að ég fór að fylgjast með starf-
semi Félagsþjónustunnar við Sléttu-
veg, hafa kynni mín af útlendum starfs-
konum verið góð ef málakunnáttan er
Mexikóskt kjúklinga taco
í boði Svövu Vífilsdóttur, nema.
Skerið 400 gr af kjúklingalærum i strimla og kryddið með
2 matskeiðum af Mexico kryddblöndu. Steikið strimlana á
milliheitri pönnu í 5-7 mínútur. Setjið hálfan poka af salati,
eina papriku í strimlum, sneiddan rauðlauk og
kjúklingastrimlana i taco skálar (miðað við einn pakka) og
berið fram með 1 dl af salsasósu, guacamole og sýrðum
rjóma. Skreytið síðan með fersku kóríander.