blaðið - 24.04.2007, Page 18

blaðið - 24.04.2007, Page 18
 blaðið Staða og gildi tónlistarnáms Tónlistamám aðeins fyrir útvalda? er yfirskrift fundar sem haldinn verður í Öskju (stofu N132) í dag kl. 12-13:30. Þar verður rætt um gildi tónlistarnáms og viðhorf stjórn- málamanna til þess. Meðal annars verður fjallað um aðgengi ólíkra þjóðfélagshópa að tónlistarnámi og hvort skynsamlegt sé að færa það í auknum mæli inn í hið kerf- > isbundna menntakerfi. Sigurður Flosason, aðstoðarskólastjóri Tón- listarskóla FÍH, heldur erindi sem heitirTónlistarnám á íslandi, staða þess og gildi. Að erindi hans loknu verður efnt til pallborðsumræðna þar sem fulltrúar stjórnmálaflokk- anna fjalla um viðhorf síns flokks til tónlistarnáms. Loks gefst áheyr- endum tækifæri til að leggja spurn- ingar fyrir frambjóðendurna. Fundurinn er öllum opinn og eru þeir sem stunda eða hafa stundað tónlistarnám sérstaklega hvattir til að mæta. . Samfélagið, félag diplóma-, meist- ara- og doktorsnema félagsvísinda- deildar Háskóla íslands, stendur fyrir fundinum. Námskynningar Kynningarfundir um nám við Há- skólann í Reykjavík verða haldnir í dag og næstu daga. Stærðfræði- svið Háskólans í Reykjavík heldur opinn kynningarfund um BSc- og BSED-nám í stærðfræði í dag kl. 15 til 16:20. Þar gefst áhugasömum tækifæri til að kynna sér stærð- fræðinámið, skoða kennslu- og -r kynningarefni og spjalla við kenn- ara og nemendur. Opna húsið fer fram í húsnæði kennslufræði- og lýðheilsudeildar að Ofanleiti 2 (4. hæð). Kynningarfundur um meistaranám í tölvunarfræði verður haldinn í húsnæði skólans að Kringlunni 1 á morgun, miðvikudag, kl. 17 og á fimmtudag verður opinn kynningar- fundur um meistaranám í alþjóða- viðskiptum (MSc International Business) að Ofanleiti 2 og hefst sá fundur kl. 12. Hugmyndarikir verkfræðlnemar í Háskóla íslands Bjór og hreyfingarleysi Eftir Einar Jónsson einar.jonsson@bladid.net Ætla mætti að nemendur í véla- og iðnaðarverkfræði við Háskóla íslands hefðu aðallega áhuga á að drekka bjór og hreyfa sig sem minnst þegar litið er á prófverkefni þeirra úr námskeiðinu Tölvustýrður vélbúnaður sem kynnt voru í gær. Meðal verkefna má nefna bjór- og vínkæli, sjálfvirka bjórdælu sem stytta á biðina eftir bjór á veit- ingahúsum, þjark sem þrífur glugga á húsum og hlið sem hægt er að opna með SMS-skilaboðum. Magnús Þór Jónsson prófesor segir að námskeiðið hafi verið kennt í nokk- ur ár og mörg frumleg og skemmtileg tæki hafi komið út úr því í gegnum tíðina svo sem internetstýrður skot- pallur og tæki sem vaktaði ungbörn í barnavögnum. „Ef barnið fór að gráta þá ruggaði það vagninum og ef það tókst ekki að svæfa barnið með því þá gerði það foreldrunum viðvart með því að hringja í þá,“ segir hann. Námskeiðið gengur út á að nemend- ur smíði frumgerð hlutar sem tengir saman tölvustýringu og vélbúnað sem hreyfist. Að öðru leyti hafa nem- endur frjálsar hendur með hugmynd- ir og útfærslu þeirra. „Þeir mega sjálfir velja verkefnin og þá er það í rauninni þeirra að leysa þau. Þeir fá metið hvernig til tókst og það sem þeir eru að sýna fram á í dag (mánudag) er að tækin sem þeir hafa smíðað virki. Það er eiginlega sama hvernig þeir hanna tækið því að ef það virkar ekki hefur þeim ekki tekist að leysa vandamálið," segir hann. Mikil vinna liggur að baki verkefn- um nemendanna og segir Magnús að síðustu vikur hafi þeir unnið að þeim dag og nótt. „Það tekur tíma að fá hluti til að virka eða útvega sér íhluti og búnað,“ segir hann og bætir við að ýmis fyrirtæki hafi útvegað þeim bún- að sem sé mjög virðingarvert. Tryggir skilvirkara lýðræði Eitt prófverkefnanna heitir Framtíð- armótmælandinn og er eftir Árna Pét- ur Gunnsteinsson, Benedikt Skúlason og Heimi Hjartarson. Mótmælandan- um er ætlað að auðvelda almenningi að koma skoðunum sínum á framfæri. Markmið tækisins er að hægt verði að virkja það til að kasta eggi að illa þokkuðum valdníðingum með SMS- skilaboðum. I lýsingu á tækinu segir að með því móti megi tryggja skilvirk- ara lýðræði. Nú þarf fólk að mæta á staðinn til að koma skoðunum sínum á framfæri en með tilkomu Mótmæl- andans þarf það hvorki að hreyfa legg né lið. Árni Pétur, einn hönnuða tækisins, þvertekur fyrir að þeir félag- ar séu miklir mótmælendur sjálfir. ,Nei, ég get ekki sagt það. Við erum bara að gera þetta í gríni. Markmiðið með verkefninu er að tengja saman vélbúnað og tölvustýringu. Við vor- um með ýmsar hugmyndir en ákváð- um að leggja ekki út í neitt rosalega flókið þar sem við erum náttúrlega í fullu námi. Okkur fannst þetta bara skemmtileg hugmynd," segir Árni sem treystir sér ekki til að kveða upp úr um hvort mikil þörf sé fyrir slíkt tæki hér á landi. Partígræja sumarsins GuðniSteinarssonogSæþórÁsgeirs- son eiga heiðurinn af hönnun bjór- og vínkælis sem kælir bjór eða vín niður í kjörhitastig á stuttum tíma eða um þremur mínútum. Kælirinn er mik- ið þarfaþing og segir Guðni að menn séu almennt ánægðir með hann. „Ég held að þetta sé partígræja fyrir sum- arið,“ segir hann. „Það er náttúrlega gaman að fá sér bjór og betra að hafa hann kaldan og þá er gott að geta kælt hann á einfaldan hátt.“ Guðni segir að hann hafi fengið hug- myndina í byrjun annar en ýmsir erf- iðleikar komu upp i sköpunarferlinu. ,Það er búið að ganga á ýmsu. Við lent- um í vandræðum með kælihólfið sem við smíðuðum. Það lak alltaf vatni og við vorum að reyna að kítta í það. Síð- ast í gær (sunnudag) þegar við vorum að ganga frá rafmagninu sprakk öll rásin framan í okkur. Þetta leit illa út en tókst samt svona ljómandi vel á endanum," segir Guðni sem er greini- lega ánægður með uppfinninguna. Náðu kjörþyngd - kíktu inn á metasys.is 4 metasys.is virkar strax! fift hylk Kemur i veg fyrir og eyðir: Bolgum, þreytuverkjum og harösperrum á feröalögum og viö álagsvinnu. jgum* vi/íí*** Styrkir varnir húöarinnar gcgn skaöscmi sólar. Húöin vcröur fyrr fallcga brún + „w, i sól og Ijósabekkjum, mcö rcglulegri inntöku helst húöin lcngur brún. Sigruðu í Raunveruleiknum Nemendur í ío. bekk Tjarnar- skóla sigruðu í Raunveruleik Lands- bankans annað árið í röð en verð- launaafhending fór fram í síðustu viku. í keppni einstaklinga fór Unn- ur Svava Sigurðardóttir, nemandi í Hvassaleitisskóla, með sigur af hólmi. Þetta er í þriðja skipti sem efnt er til Raunveruleiksins og frá því í okt- óber hafa rúmlega 1600 nemendur tekið þátt í honum. Raunveruleikurinn er gagnvirkur hermileikur á Netinu sem gengur út á að fræða nemendur um ábyrga meðferð fjármuna og neytendamál. Þátttakendur þurfa að vinna verk- efni um fjármál, atvinnulíf og neyt- endamál aukþess að taka ákvarðan- ir um lífshætti og neyslu persónu sinnar í leiknum. Þátttakandi hefur leikinn sem ungmenni um tvítugt sem er á leið út í lífið eftir framhaldsskóla. Hann fær ákveðna byrjunarupphæð á bankareikning en að öðru leyti er líf hans óskrifað blað. Auk þess að móta persónu sína þarf hann að taka ákvarðanir um neyslu, eyðslu, nám, vinnu, mataræði, búsetu og annað slíkt. Þátttakendur keppast fyrst og fremst við að komast af i hörðum heimi raunveruleikans, þekkja og skilja gangverk þjóðlífsins, ná end- um saman, taka réttar ákvarðanir, læra af mistökunum og þroskast. Höfundur Raunveruleiksins er Ómar Örn Magnússon, kennari í Haga- skóla, og er leiknum ætlað að koma til móts við þörf fyrir nútímalegt og vandað námsefni fyrir unglinga í lífsleikni með áherslu á neytenda- mál. Leikurinn hefur hlotið verðlaun norrænu ráðherranefndarinnar sem besta námsefnið á þessu sviði.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.