blaðið - 26.04.2007, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007
blaAiö
INNLENT
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Henti fíkniefnum undir bíl
Tveir piltar um tvítugt voru handteknir á mánudag
grunaðir um fíkniefnamisferli. Annar henti ætluðum
fíkniefnum undir bíl félaganna þegar lögreglumenn
komu á vettvang. Ung kona var einnig handtekin
sama dag þegar hún framvísaði fölsuðum lyfseðli.
LÖGREGLAN
FBI-námskeið
FBI, alríkislögregla Bandarikjanna, hélt námskeið fyrir yfir-
menn lögreglu á Norðurlöndunum í síðustu viku. Er þetta
í fyrsta sinn sem FBI stendur fyrir námi í Evrópu en á nám-
skeiðinu var meðal annars farið yfir nútímastjórnunarhætti
í lögreglu. Þremur fulltrúum var boðið frá (slandi.
HJÓLBARÐAR
Ekki þarf að greiða fyrir skil
Ekki þarf að greiða sérstaklega fyrir skil á ónýtum
hjólbörðum þar sem úrvinnslugjald hefur þegar
verið greittvið kaup á hjólbörðunum. Ónýtum hjól-
börðum viðskiptavina dekkjaverkstæða komið til
endurnýtingar, endurvinnslu eða förgunar.
Von í skugga sorgar
Fræðslufundur í Neskirkju í kvöld 26. apríl kl. 20-22.
Fyrirlesari Gunnar Hersveinn heimspekingur.
Allir velkomnir!
NÝDÖGUN
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
Söfnunarsjóöur
lífeyrisréttinda
Arsfundur 2007
ÁrsfundurSöfnunarsjóðs lífeyrisréttinda verður
haldinn að Skúlagötu 17, Reykjavík á 2. hæð,
26. apríl 2007 og hefst kl. 17.00.
Dagskrá fundarins er
1. Skýrsla stjórnar.
2. Gerð grein fyrir ársreikningi.
3. Tryggingafræöileg úttekt.
4. Fjárfestingarstefna sjóðsins kynnt.
5. Nýjar samþykktir.
6. Önnur mál.
Allir sjóðfélagar, jafnt greiöandi sem lífeyrisþegar,
eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum.
Sjóðfélagar eru hvattir til aö mæta á fundinn.
Reykjavik 19.03.2007
Stjórn Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda
Almannatryggingakerfið er
frumskógur Tryggingastofn-
un ríkisins BiaM/FrlM
Afnám tekjutengingar bóta án annarra aögerða:
Hætta á fjölgun
öryrkja um skeið
; Örorkumatið ófullkomið ■ Læsast í fátæktargildru
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Formaður Öryrkjabandalags ís-
lands, Sigursteinn Másson, segir
að verði örorkumati ekki breytt,
almannatryggingakerfið ekki ein-
faldað og starfsendurhæfing ekki
efld samhliða afnámi tekjuteng-
ingar sé hætta á að öryrkjum fjölgi
tímabundið. „Örorkumatið er ófull-
komið. Ég á alls ekki við að öryrkjar
séu óheiðarlegri en annað fólk eða
að nýta sér kerfið. Það er alls ekki
mín skoðun, heldur þvert á móti. En
þeir eru í þeirri stöðu að þeir verða
að leita allra mögulegra og ómögu-
legra leiða til þess að bjarga sér.“
Samkvæmt niðurstöðum rann-
sóknar Rannsóknaseturs verslunar-
innar við Háskólann á Bifröst myndi
ríkissjóður hagnast á afnámi tekju-
tengingar bóta vegna launatekna
þeirra sem færu út á vinnumarkað-
inn, bæði eldri borgara og öryrkja.
Sigursteinn segir að til að slík
aðgerð heppnist verði um leið að
breyta örorkumatinu þar sem það
gefi ranga mynd af aðstæðum fólks.
.Einstaklingur sem er metinn 49 pró-
senta öryrki nýtur engra réttinda.
Þess vegna ríkir sú tilhneiging að
hífa fólk upp í örorkumati en við
það læsist það inni í fátæktargildru
tekjutenginga og skerðinga. Það er
að vaxa úr grasi þriðja kynslóð ör-
yrkja í okkar samfélagi. Það segir
okkur ýmislegt um hvernig þessi
gildra fátæktar er og hefur verið.
Þess vegna er það gríðarlega mikið
hagsmunamál að aflétta tekjuteng-
ingu en það verður að gera sam-
hliða öðrum breytingum. Verði þær
ekki gerðar verður skilinn eftir stór
hópur fólks sem mest þarf á stuðn-
ingi að halda.“
Formaður Öryrkjabandalagsins
segir marga þurfi að koma að breyt-
ingunum. „Það verður ekki gert með
því að veifa einum töfrasprota. Það
þarf að meta hvernig eigi að veita
stuðning og persónulega liðveislu.
Það þarf að vera samvinna um
að skapa hér sveigjanlegan vinnu-
Ekki breytt
með einum
töfrasprota
Sigursteinn Másson,
formaður Öryrkjabanda-
lags Islands
markað og aukna endurhæfingu
þannig að þetta heppnist. Almanna-
tryggingakerfið er frumskógur sem
enginn skilur, ekki heldur starfs-
fólkið í Tryggingastofnun ríkisins.“
Hann segir núverandi örorkumat
ónákvæmt. „Það lýsir ekki með
réttum hætti aðstæðum fólks og
stöðu. Ef við gerum það eitt að af-
létta öllum tekjutengingum á einu
bretti án annarra aðgerða verður
áfram langstærstur hluti öryrkja
með 75 prósenta örorkumat sem á
að þýða 25 prósenta vinnufærni. Ef
starfshlutfallið verður allt annað
verður enn meira misræmi á milli
örorkumatsins annars vegar og
raunverulegrar stöðu fólks hins
vegar.“
Stráð yfir hreinan
jarðveg; heldur illgresi
í skefjum.
G7
GARÐHEIMAR
allt í garðinn á einum stað!
Stekkjarbakka 6 - Sfmi 540 3300
www.gardheimar.is
k............ ............J