blaðið - 26.04.2007, Blaðsíða 10

blaðið - 26.04.2007, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 blaöiö Einstakt heyrnartæki - Nánast ósýnilegt bak við eyrað! award reddotdesi9n vjinner 2006 Delta er ný tegund af heyrnartæki sem býr yfir gervigreind, fullkomnustu tækni sem völ er á UTAN ÚR HEIMi SÓIVIflUft + Gera hjálparstarfsmönnum erfitt ffyrir Vestrænir eftirlitsmenn í Sómalíu segja bráöabirgöastjórn landsins standa í vegi fyrir því að hjálparstarfsmenn geti sinnt fólki sem hefur lagt á flótta frá hinni róstusömu höfuðborg Mogadishu. Eftirlitsmenn segja að kröfur bráðabirgðastjórnarinnar um að rannsaka öll hjálpar- gögn sem berast tefji fyrir og bæti einungis gráu ofan á svart. Erlent verkafólk Færyfir- leitt lakari laun en islenskt verkafólk, en vinnur oft lengri vinnudaga. Áhrif erlends vinnuafls á launaþróun hér jákvæð segja SA: Leikur að tölum segir Efling ■ Lækkar ekki meðallaun ■ Útlendingar á lágmarkslaunum Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net Samkvæmt launakönnun Hagstofu íslands hækkuðu laun verkafólks mest af öllum starfstéttum á al- mennum vinnumarkaði frá upp- hafi árs 2005 til loka árs 2006, eða um 19 prósent. Verkafólk er sú stétt þar sem mest er af erlendu vinnu- afli. Meðalhækkun á almennum vinnumarkaði var 17 prósent. Laun í byggingariðnaði, en í þeirri at- vinnugrein eru erlendir starfsmenn fjömennastir, hækkuðu um 17% eða um það sama og meðaltalshækk- unin. Þetta kemur fram í frétt frá Samtökum atvinnulífsins (SA). Þar segir að á árunum 2004 til 2006 hafi laun hækkað meira á íslandi en í nokkru öðru aðild- arríki OECD og þrefalt meira en að meðaltali í þessum ríkjum. Ástæða hækkunarinnar er sögð sú að eftirspurn eftir starfsfólki sé meiri en framboð. Ennfremur segir þar: „Staðhæfingar um að erlendir starfsmenn hafi leitt til lækkunar launa eru því úr lausi lofti gripnar." Harpa Ólafsdóttir, forstöðumaður kjaramálasviðs Eflingar, gagnrýnir þessar niðurstöður. „Þegar þeir hjá SA tala um byggingariðnað eru þeir með allt undir. Ef við skoðum bara verkafólk innan byggingariðnaðar- ins, þá fáum við væntanlega allt aðra niðurstöðu. Þeir vinnuseðlar sem koma hingað endurspegla alls ekki þá hækkun sem þeir gefa til kynna. Því miður erum við ekki með nægi- lega stórt úrtak til að geta afsannað þessar staðhæfingar, en við munum vonandi rannsaka þessi mál nánar, helst í samstarfi við SA.“ Hún segir ekki heldur rétt að verkafólk hafi hækkað mest af öllum starfstéttum. { umræddri frétt er verið að ræða um árin 2005 og 2006 eins og áður sagði. Á þvi tímabili fékk verkafólk einstaka við- bótarhækkun ofan á kauptaxta. „Ef þú tekur þetta stutta tímabil getur verið að það sjáist umframhækkun hjá verkafólki miðað við aðrar stéttir. En ef þú tekur lengra tíma- Þú getur tekið það timabil sem þérhentar Harpa Ólafsdóttir, forstöðumaður kjara- málasviðs Eflingar. bil, t.d. fyá 2004, þá sést að verkafólk hefur hækkað minna en allar aðrar stéttir. Þetta er bara leikur að tölum; þú getur tekið það tímabil sem þér hentar og fengið þá útkomu sem þú vilt,“ segir Harpa. Miðað við þá launaseðla sem Efling hefur skoðað bendir allt til þess að erlent verkafólk sé á lak- ari launum en íslenskt. Hins vegar vinnur það mun lengur og eru mánaðarlaun hópanna tveggja því mögulega svipuð, segir Harpa. „At- vinnurekendur eru gjarnir á að setja erlent verkafólk á lágmarkstaxta, þrátt fyrir að í fyrirtækjum þeirra séu aðrir á markaðslaunum sem eru yfirleitt mun hærri. Það á ekki að fara þannig með erlent vinnuafl að það sé sett í sér-launaflokk.“ Delta er kjörið fýrir einstaklinga með væga til meðalmikla heyrnarskerðingu Pantaðu tíma í heyrnarmælingu í síma 568 6880 og fáðu að prófa Delta Glæsibæ Álfheimum 741104 Reykjavík'f sími: 568 6880 | www.heyrnartaekni.is Verðkönnun í sjoppum: Tregða við að lækka verð Aðeins 6 af 64 söluturnum og bensínstöðvum á höfuðborgarsvæð- inu, sem Neytendasamtökin gerðu verðkönnun hjá, hafa skilað virðis- aukaskattslækkuninni frá 1. mars til neytenda. Neytendasamtökin könnuðu verð á 300 vörutegundum í lok febrúar og aftur í apríl. Umræddar 6 sjoppur, sem skil- uðu virðisaukaskattslækkuninni, eru Bónusvídeó við Lækjargötu í Hafnarfirði, Nesti, Select, STÁ Video við Kársnesbraut í Kópavogi, Uppgrip og Víkivaki við Laugaveg í Reykjavík. Alls fengu 17 sjoppur einkunnina sæmilegt, 28 fengu einkunnina ófull- nægjandi og 12 fengu falleinkunn. Engin verðlækkun hafði orðið í Að- alhorninu við Barónsstíg, Granda- kaffi, Sælgætis- og vídeóhöllinni á Garðatorgi, Söluturninum Bæjarhrauni í Hafnarfirði og Trisdan við Lækjartorg. 1 eftirfarandi 7 sjoppum var seinni verðupptaka ekki heimiluð: Biðskýlinu við Kópavogsbraut, Bitahöllinni við Stórhöfða, Holtanesti við Melabraut í Hafnarfirði, Is Café við Vegmúla, Nesbitanum við Eiðistorg, Söluturninum Toppur- inn við Síðumúla og Texas við Veltu- sund, að því er kemur fram á frétta- vef Ney tendasamtakanna.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.