blaðið - 26.04.2007, Blaðsíða 19
blaðið
BLOGGARINN...
Ofmetin Valgerður
Valgerður Sverrisdóttir er því miður
ekki í miklu áliti hjá mér. Ég tel hana
raunar einn ofmetnasta stjórnmála-
mann samtímans og með öllu óhæfa
til að gegna ráðherradómi. Hún er
í starfi sem krefst miklu meiri hæfi-
leika en hún býryfir. Henni hefur ver-
ið hlíft þrátt fyrir að hafa opinberað
veikleika sína með ótrúlegum hætti.
Tökum dæmi: Sem ráðherra hefur
hún ekki axlað ábyrgð á hundraða
milljóna króna tjóni á pípulögnum
í íbúðarhúsunum á varnarsvæð-
inu.j...] Hún stendur fyrir því rugli að
skipa Sigríði Dúnu sem sendiherra
Islands í Suöur-
Afríku. Þetta er
starfsem sinna
má með síma,
interneti og
fjarfundarbúnaði
frá Rauðarárstíg
í Reykjavík!
Haukur Nikulásson
haukurn.blog.is
Skoðanakönnunar-
skandall
Varaformaður Samfylkingarinnar,
Ágúst Ólafur Ágústsson, [...] greindi
frá þvísigri hrósandi á bloggsíðu
sinni ífyrradag (23. apríl) að skoð-
anakönnun sem Gallup hefði unnið
fyrir Samfylkinguna sýndi að kjósend-
ur treystu flokknum „best allra flokka
til að hrinda í framkvæmd umbótum
í velferðarmálum, verðlagsmálum og
jafnróttismálum". Það vakti athygli
að Ágúst sá Ijóslega hvorki ástæðu
til að taka fram hvenær könnunin var
gerð né hvernig hlutföllin í henni
hefðu verið. Það var
hins vegar upplýst
í gær á heimasíðu
Samfylkingarinn-
arþarsem fram
kemur að könn-
unin var gerð
fyrir nokkrum
vikum".
Hjörtur J. Guðmundsson
sveiflan.blog.is
Óli að hætta?
Drög munu nú hafa verið lögð að út-
gáfu ævisögu Ólafs Ragnars Gríms-
sonar, forseta Islands, sem eigi að
koma út um jólin. Mun Guðjóni Frið-
rikssyni hafa verið falið verkefnið að
halda utan um verkið. Það er varla
við því að búast að ævisagan verði lit-
laus og lítt áberandi. Persónan sem
er miðpunktur hennar hefur búið á
forsetasetrinu að Bessastöðum nú í
ellefu ár og hefur upplifað sorgir og
gleði þar.[...j Er bókin uppgjör við lit-
ríkan forsetaferil að leiðarlokum eða
erhún hinn dramatíski upphafspunkt-
urþess að Ólafur Ragnar Grímsson
feti i fótspor Ásgeirs Ásgeirssonar
og Vigdísar Finnbogadóttur; horfi
til fjórða kjörtímabilsins.
Þegar stórt er spurt
verður víst æði oft
fátt um svör. Það
eru þó örlagaríkir
tímar framundan fyrir
húsbóndann á Bessa-
stöðum hvort sem
verður ofan á
að lokum.
Stefán Friðrik Stefánsson
_________________stebbifr.b|jjg§§
Óðamála ljóska
Það var dálítið dónalegt af Jóni Bald-
vin að kalla menntamálaráðherrann
„Ijósku". Hún erkomin vel inn í sinn
málaflokk, og hefur margt ágætt að
segja. Margt gæti ég misjafnt um
hennar pólitík sagt, og hef stundum
gert það af nokkrum þunga, en aldr-
ei myndi ég kalla hana
„Ijósku". Stundum
vildi ég samt að
hún talaði svolítið
hægar, því ég á
oft erfitt með að
nema allt sem
hún ryður úr
sér eins og fljót í
leysingu.
Össur Skarphéðinsson
www.ossur.hexia.net
FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 19
Halda úti frasasíðu
Frasar og orðtök eru íslend-
ingum töm i tungumálinu. Hver
kannast ekki við fimmtudagsfras-
ann: „Eru menn komnir í helgarfí-
ling?“ Honum fylgir gjarnan mánu-
dagsfrasinn: „Jæja, ertu búinn að
jafna þig eftir helgina?" Þrír vaskir
drengir hafa haldið úti heimasíðu
með ýmsum frösum og kallast hún
www.frasi.tk.
„Heimasíðan er hugarfóstur okkar
vinanna en auk mín eru þeir Agnar
Þór Guðmundsson og Sverrir Örn
Arnarsson ábyrgðarmenn síðunnar.
Hugmyndin kviknaði í Stykkishólmi
en við höfðum lengi haft gaman af
slíkum frösum sem virðast flokkast
eftir stéttum og störfum. Hver at-
Frasar eru flottir Ertu ekki kominn í
helgarfíling? spyr Björn.
vinnugrein hefur ákveðna mállýsku
að því er virðist og allir kannast við
sjóaramál, mál bifvélavirkja, tölvu-
málið sem og ýmiss konar stofnana-
mál. Við ákváðum því að viða að
okkur sem flestum frösum á einn
stað og úr varð þessi heimasíða,“
segir Björn Hólmsteinsson, sem ann-
ars starfar hjá Samskipum.
„Hann Sverrir vann nú með mér
hjá Samskipum einnig en ákvað að
flytja til Danmerkur. Agnar nemur
lögfræði en hann hefur átt mestan
heiðurinn af rekstri síðunnar und-
anfarið, enda pilturinn í prófum og
hefur því lítið annað að gera en að
halda frasakeppni á Netinu,“ segir
Björn með hæðnistón.
Mynd af Jóni Viðari Jónssyni, gagn-
rýnanda íslands, prýðir forsíðu vefs-
ins. „Hann sagði gjarnan að hitt og
þetta væri afskaplega klént. Sá frasi
lifir lengi," sagði Björn að lokum.
Misty, Laugavegi 178,
Sími551 2070
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Leðurskór á dömur
Sérstaklega þœgilegir leður-
skór í stœrðum 36-41 á
kr. 5.885,-
Mjúkir leðurskór í stœrðum
36-41 á kr. 5.885,-
SPr R
BÆJARLIND 1 - Sími 544 4510
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 10.00 - 20.00
SVÍNAKJÖTSÚTSALA!
UR KJOTBORÐI
t.r ífj
mt
Kótielettur
Hnakki úrb.
Lundir
Snitsel
Gúllas
Bógur
JT x «1 ■
kr 899 kg
kr 899 kg
kr 1.998 kg
kr 1.298 kg
kr 1.198 kg
kr 499 kg
Grillaður kjúklingur,
franskar og 21. Coce